27.10.1966
Neðri deild: 8. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 20 í B-deild Alþingistíðinda. (26)

3. mál, gjaldaviðauki

Dómsmrh. (Jóhann Hafstein):

Herra forseti. Þetta er mál hæstv. fjmrh., sem er bundinn við umr. núna í Ed., en ég held, að það þyrfti ekki að koma neitt að sök, þó að málinu yrði hleypt núna til n. og hæstv. fjmrh. hefði svo samráð við n., og vildi ég mega leggja til, að málinu verði nú að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. fjhn.