07.03.1967
Efri deild: 48. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 978 í B-deild Alþingistíðinda. (690)

149. mál, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins

Fjmrh. (Magnús Jónsson):

Herra forseti. Frv. þetta er samkynja frv. um breytingar á l. um Lífeyrissjóð barnakennara og gefur því ekki tilefni til neinnar sérstakrar framsögu. Ég legg til, að frv. verði, að lokinni þessari umr., vísað til 2. umr. og hv. fjhn.