14.02.1968
Sameinað þing: 38. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 651 í D-deild Alþingistíðinda. (3153)
198. mál, framkvæmdaáætlun fyrir Norðurland
Forseti (BF):
Forseti vill aðeins í tilefni af aths. hv. næstsíðasta ræðumanns í byrjun ræðu hans taka fram, að í upphafi þessara umr. um þær fsp., sem nú eru á dagskrá um framkvæmdaáætlun Norðurlands — en það eru tvær fsp., sem eru efnislega samhljóða, — tók forseti það fram, að þær yrðu ræddar sem ein fsp., og var því ekki mótmælt þá.