15.02.1968
Efri deild: 56. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 762 í B-deild Alþingistíðinda. (641)

100. mál, hækkun á bótum almannatrygginga

Einar Ágústsson:

Herra forseti. Ég ætla ekki að halda uppi frekari umr. um þetta mál hér. Ég vil aðeins þakka hæstv. ráðh, fyrir þau svör, sem hann gaf við fsp. minni. Ég vænti þess, að þetta mál verði ekki lengur látið dragast, og m.a. af þeim ástæðum vona ég, að hæstv. ríkisstj, megi sem fyrst verða fullskipuð á ný, svo að hún geti ráðið fram úr þessum vanda eins og öðrum, sem á hennar herðum hvílir nú.