19.12.1968
Efri deild: 36. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 199 í B-deild Alþingistíðinda. (180)

116. mál, skólakostnaður

Frsm. meiri hl. (Auður Auðuns):

Herra forseti. Það er um þetta frv. eins og það, sem síðast var hér til umræðu, að það var til 1. umr. í hv. þd. í gær og efni þess þá útskýrt í ræðu hæstv. menntmrh., þegar hann fylgdi því úr hlaði. Ég sé þess vegna ekki ástæðu til þess að fjölyrða um efni frv., sem í raun og veru er mjög einfalt, en þetta frv. hefur verið til athugunar hjá menntmn., og nefndin hefur ekki orðið sammála um afgreiðslu þess. Eins og fram kemur á þskj. 204 í nál., leggur meiri hl. menntmn. til, að frv. verði samþykkt, en minni hl. mun hins vegar skila séráliti.