30.04.1969
Efri deild: 82. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 1685 í B-deild Alþingistíðinda. (1857)

242. mál, bann gegn veiðum með botnvörpu og flotvörpu

Frsm. (Pétur Benediktsson):

Herra forseti. Sjútvn. hefur haldið fund um þetta frv. og er samdóma um að mæla með, að það verði samþ. og nauðsynleg afbrigði frá þingsköpum verði veitt, til þess að það megi ná fram að ganga í dag.