17.05.1969
Efri deild: 99. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 2208 í B-deild Alþingistíðinda. (2302)

Starfslok deilda

Ólafur Jóhannesson:

Ég veit, að ég mæli fyrir hönd okkar allra þdm., er ég flyt hæstv. forseta þakkir fyrir árnaðaróskir í okkar garð. Jafnframt vil ég þakka honum fyrir réttláta og röggsamlega fundarstjórn og gott samstarf við okkur þdm. Ég vil óska honum og hans fjölskyldu velfarnaðar og góðs gengis og leyfi mér að láta í ljós þá von, að við megum hitta hann heilan og hressan, er þing kemur saman aftur. Ég vil biðja hv. þdm. að taka undir þessi orð mín með því að rísa úr sætum. — (Dm. risu úr sætum.]