17.05.1969
Sameinað þing: 53. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 202 í D-deild Alþingistíðinda. (3114)

204. mál, Stofnlánadeild landbúnaðarins

Frsm. (Jónas Pétursson):

Herra forseti. Þessi þáltill. er á þskj. 427 um endurskoðun laga um Stofnlánadeild landbúnaðarins, landnám, ræktun og byggingar í sveitum. Henni var vísað til allshn. hv. Sþ. Enn fremur var annarri till. á þingskjali 394 einnig vísað til n., en sú till. fjallaði einnig um dálítið svipað viðfangsefni. Allshn. tók báðar þessar till. til athugunar og fram kemur í nál. á þingskjali 668, að allshn. varð sammála um það, eftir að hafa haft samráð við aðalflm. beggja till., að mæla með samþykkt þáltill. á þskj. 427 með þeirri breyt., sem fram kemur í nál. á þskj. 668.