18.12.1968
Sameinað þing: 24. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 749 í D-deild Alþingistíðinda. (3785)
269. mál, Sementsverksmiðja ríkisins
Fyrirspyrjandi (Benedikt Gröndal):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir skýr og greinargóð svör og lýsi ánægju minni yfir því, að nú skuli loksins eiga að framkvæma þá ákvörðun verksmiðjustjórnar að flytja skrifstofurnar á einn stað á Akranesi.