10.04.1969
Neðri deild: 75. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 888 í B-deild Alþingistíðinda. (913)

177. mál, breytingar á lausaskuldum bænda í föst lán

Vilhjálmur Hjálmarsson:

Herra forseti. Ég vil aðeins í framhaldi af þessu og að fengnum þessum upplýsingum spyrjast fyrir um það, hvort það sé búið endanlega að ráðstafa þessum málum og ákveða til fulls, hvernig með þetta gengistap verði farið og hvort hæstv. ráðh. gæti núna upplýst okkur um það í einstökum atriðum.