23.02.1971
Sameinað þing: 27. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 2111 í B-deild Alþingistíðinda. (2260)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o.fl.

Sigurvin Einarsson:

Herra forseti. Það mun hafa verið í desembermánuði, sem hæstv. fjmrh. svaraði fsp. frá hv. 1. þm. Norðurl. v. um það, hvenær fasteignamatið nýja tæki gildi. Ég ætla, að hæstv. ráðh. hafi svarað eitthvað á þá leið, að hann byggist við, að fasteignamatið tæki gildi 1. marz. Nú eru fimm dagar þangað til, og þess vegna leyfi ég mér að spyrja hæstv. ráðh., hvenær það verði, sem nýja fasteignamatið taki gildi, og hvenær muni verða lokið endurskoðun þeirra laga, sem fasteignamatið hefur áhrif á.