22.02.1971
Sameinað þing: 26. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 2148 í B-deild Alþingistíðinda. (2306)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt:

„Reykjavík, 18. febr. 1971.

Halldór E. Sigurðsson, 3. þm. Vesturl., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég vegna sérstakra anna heima fyrir mun ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Vesturlandskjördæmi, Daníel Ágústínusson aðalbókari, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Benedikt Gröndal,

forseti neðri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Fyrir liggur kjörbréf til handa Daníel Ágústínussyni, útgefið af yfirkjörstjórn Vesturlandskjördæmis. Leyfi ég mér að biðja hv. kjörbréfanefnd að taka kjörbréfið til rannsóknar. i1 meðan verður gert fundarhlé. —