08.12.1970
Sameinað þing: 14. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 640 í D-deild Alþingistíðinda. (4343)
338. mál, vaxtakjör Seðlabankans
Fyrirspyrjandi (Stefán Valgeirsson):
Herra forseti. Ég hef leyft mér að bera fram hér fsp. til hæstv. viðskrh., og fsp. er svo hljóðandi:
„Er þess ekki að vænta, að vextir af endurseldum víxlum með veði í útflutningsvörum landbúnaðarins verði eftirleiðis 6%, eins og af víxlum með veði í öðrum útflutningsvörum?“