08.12.1970
Sameinað þing: 14. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 648 í D-deild Alþingistíðinda. (4355)

332. mál, fiskiræktarmál

Landbrh. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Því miður er ég ekki tilbúinn til þess að svara þessari fsp. eins vel og ég vildi gera. Þetta mál er það víðtækt og merkilegt, að ég vil ekki kasta til þess höndunum að gefa svar, og ég vona, að hv. fyrirspyrjandi sætti sig við það að fá svar við fsp. sinni á næsta fundi í Sþ., eftir viku. Sama vil ég segja um fsp. frá hv. 4. þm. Reykv. Ég vildi mælast til þess, að það væri beðið með að svara þeirri fsp. þangað til eftir viku.