04.05.1972
Efri deild: 75. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1378 í B-deild Alþingistíðinda. (1061)

227. mál, virkjun Lagarfoss

Frsm. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Iðnn. hefur haft til meðferðar frv. til l. um breyt. á l. nr. 111 frá 30. des. 1970, um virkjun Lagarfoss. Mál þetta hefur borizt frá hv. Nd., þar sem frv. var samþ. án breytinga. N. hefur orðið sammála um að mæla með samþykkt þessa frv. eins og það er.