27.10.1971
Neðri deild: 6. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 168 í B-deild Alþingistíðinda. (231)

22. mál, gjaldaviðauki

Fjmrh. (Halldór E. Sigurðsson):

Herra forseti. Frv. á þskj. 22 er kunnugt þeim hv. alþm., sem setið hafa hér á undanförnum þingum, en það er um heimild til þess að innheimta ýmis gjöld með viðauka. Það hefur aldrei komið til neinna átaka um það hér í hv. Alþ. um, að það næði fram að ganga, og ég treysti því, að svo verði einnig nú.

Ég legg til, herra forseti, að málinu verði vísað til 2. umr. að þessari lokinni og hv. fjhn.