08.02.1972
Sameinað þing: 35. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1188 í D-deild Alþingistíðinda. (4895)

155. mál, fjármagn til Landnáms ríkisins

Fjmrh. (Halldór E. Sigurðsson):

Herra forseti. Ég skal ekki lengja þessar umr. eða fara að taka ný atriði inn í þær. Ég vil aðeins undirstrika það, af því að það féll niður hjá mér áðan, að í till. landbrn., sem lágu fyrir, þegar ég kom þar, var ekki gert ráð fyrir því, að tekin yrði upp sérstök fjárveiting vegna þessarar heimildar. Ég skar þar ekkert niður, en bætti hins vegar við á sumum liðum, þó að ég gerði það ekki á þessum.