10.04.1973
Sameinað þing: 68. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3282 í B-deild Alþingistíðinda. (2749)

205. mál, opinberar nefndir sem lagðar hafa verið niður

Fyrirspyrjandi (Pétur Sigurðason):

Herra forseti. Ég hef leyft mér að bera fram á þskj. 389 tvær fsp. til hæstv. fjmrh. Sú fyrri hljóðar á þessa leið:

1) Hvaða n. hafa verið lagðar niður í tíð núv. ríkisstj.?

2) Hver var kostnaðurinn við n. þessar árin 1971 og 1972?

3) Hve stór hluti þessa kostnaðar var launakostnaður nm.?

4) Var eitthvað af þessum nefndastörfum ólaunað?