11.04.1973
Neðri deild: 86. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3358 í B-deild Alþingistíðinda. (2893)

59. mál, veiting ríkisborgararéttar

Forsrh. (Ólafur Jóhannesson):

Herra forseti. Þetta er hið árvissa frv. um veitingu ríkisborgararéttar. Það hefur verið til meðferðar í Ed. og allshn. beggja deildanna hafa að því unnið.

Ég vil leyfa mér að leggja til, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til hv. allshn.