12.04.1973
Efri deild: 91. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3404 í B-deild Alþingistíðinda. (2943)

244. mál, alþjóðasamningur um varnir gegn mengun hafsins

Frsm. (Björn Fr. Björnsson):

Herra forseti. Frv. þessu er ætlað að veita ríkisstj. heimild til þess að staðfesta samning, sem gerður var m.a. af Íslands hálfu 29. des. 1972 í London og fjallar um varnir gegn mengun hafsins af völdum úrgangsefna og annarra efna af slíku tagi. N. hefur athugað frv. og leggur til, að það verði samþ. óbreytt.