14.04.1973
Sameinað þing: 72. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3530 í B-deild Alþingistíðinda. (3078)

35. mál, nýting orkulinda til raforkuframleiðslu

Frsm. meiri hl. (Ásgeir Bjarnason):

Herra forseti. Atvmn. hefur athugað till. á þskj. 37 og sent hana til umsagnar. Er greint frá því í nál., hvernig umsagnirnar hljóðuðu, og sé ég ekki ástæðu til að ræða það frekar, en meiri hl. n. leggur til, að till. verði vísað til ríkisstj.