17.12.1973
Neðri deild: 43. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1500 í B-deild Alþingistíðinda. (1361)

145. mál, tekjustofnar sveitarfélaga

Félmrh. (Björn Jónsson) :

Herra forseti. Ég get ekki svarað þessu á annan veg en þann, að hér er aðeins sú breyting á gerð að breyta fasteignamatinu, og legg ég þann skilning í það, að að öðru leyti sé ekki um neina breytingu að ræða, það gildi aðeins um fasteignaskattinn.