30.10.1973
Sameinað þing: 9. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 236 í B-deild Alþingistíðinda. (185)

29. mál, móttökuskilyrði sjónvarpssendinga á fiskimiðunum

Fyrirspyrjandi (Karvel Pálmason):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. menntmrh. fyrir hans svör, þó að ég verði hins vegar að lýsa sárum vonbrigðum mínum yfir því, að þessari könnun skuli ekki lokið, eins og ráð var fyrir gert. Að vísu var tekið fram í svari hans, að þessi könnun væri yfirstandandi og henni mundi lokið. h`g vil á þessu stigi máls eindregið óska eftir því við hæstv. ráðh., að hann ýti á sína embættismenn í þessum efnum og sjái til þess, að þessi könnun liggi fyrir innan ekki langs tíma, eins og ráð var gert fyrir með téðri þál.