26.02.1974
Neðri deild: 67. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2350 í B-deild Alþingistíðinda. (2115)

119. mál, skipulagslög

Fjmrh. (Halldór E. Sigurðsson):

Herra forseti. Þegar verið var að undirbúa þetta mál, var það lagt fyrir í okkar þingflokki af einum af flm. þess, hv. 2. þm. Sunnl., og það var okkar niðurstaða að fylgja málinu eftir. Nú var þetta mál ekki afgreitt, þegar fjárlög voru afgr. í vetur, svo að ég hef rætt við hv. flm. um það, að frv. taki gildi 1. jan. 1975. Ég hef fulla ástæðu til að ætla, að því máli verði vel tekið af þeirra hálfu, og munu þeir gera grein fyrir afstöðu sinni þar um.