29.03.1974
Efri deild: 94. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3245 í B-deild Alþingistíðinda. (2931)

24. mál, kaupstaðarréttindi til handa Seltjarnarneshreppi

Frsm. (Björn Fr. Björnsson):

Herra forseti. Félmn. hefur haft með þetta mál að gera. Það er komið frá Nd. og fjallar um kaupstaðarréttindi til handa Seltjarnarneshreppi. N. er ásátt um, að mæla með samþykkt frv., eins og það liggur fyrir og komið er frá Nd.

Fjarverandi við afgreiðslu málsins voru þeir hv. þm. Steingrímur Hermannsson og Páll Þorsteinsson.