19.04.1974
Neðri deild: 109. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3790 í B-deild Alþingistíðinda. (3320)

261. mál, dýralæknar

Frsm. (Ágúst Þorvaldsson):

Herra forseti. Þetta frv. á þskj. 460 var flutt í Ed. og er stjórnarfrv. Það var gerð á því nokkur breyting þar. Landbn. Nd. fékk málið til athugunar og varð sammála um að mæla með því, að það yrði samþ. óbreytt eins og það kom frá Ed. Fjarstaddir við afgreiðslu málsins voru þeir Eðvarð Sigurðsson og Eyjólfur K. Jónsson. Nál. er prentað á þskj. 638. Sem sagt, n. leggur til, að málið verði samþykkt.