21.12.1974
Sameinað þing: 30. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1356 í B-deild Alþingistíðinda. (1160)

1. mál, fjárlög 1975

Jón Árm. Héðinsson:

Herra forseti. Jafnvel þó að þessi liður kynni að vera nauðsynlegur, þá kom þetta fram á síðustu stundu og hér er enn eitt dæmi um það, þegar hlustað er á erindi án eðlilegrar greinargerðar, sem nemur þó milljónum króna. Þetta hefur átt sér stað í fjvn. oftar en einu sinni. Ég er þeirrar skoðunar, að lágmarksvirðing við okkur í n. sé að öllum meiri háttar erindum fylgi sómasamleg grg., og því segi ég nei.