17.04.1975
Neðri deild: 68. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3022 í B-deild Alþingistíðinda. (2278)

130. mál, fóstureyðingar

Pálmi Jónsson:

Hæstv. forseti. Þar eð svo virðist sem það sé ríkjandi skilningur heilbr.og trn. og ýmissa annarra aðila, að hverfandi munur yrði á framkvæmd fóstureyðingalöggjafar skv. till. minni hl. n., Magnúsar Kjartanssonar, um fóstureyðingu að ósk konu og þeirrar till., sem hér liggur fyrir um fóstureyðingu vegna félagslegra ástæðna, treysti ég mér ekki til þess að greiða því atkvæði og segi nei.