17.12.1975
Neðri deild: 34. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1365 í B-deild Alþingistíðinda. (1040)

95. mál, Samábyrgð Íslands á fiskiskipum

Sjútvrh. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Ég get að mestu leyti vísað til þess sem ég sagði áðan þegar ég fylgdi frv. um bátaábyrgðarfélögin úr hlaði. Þetta frv. er samið og unnið af sömu n. og samdi frv. um bátaábyrgðarfélögin, og eru ákaflega litlar og tiltölulega veigalitlar breyt. sem gerðar eru á lögum um Samábyrgðina. Það er fyrst og fremst í samræmi við lög um vátryggingastarfsemi sem voru samþ. eftir að þessi lög tóku gildi. Enn fremur er gerð ein breyt. Það er heimild til þess að boða aukafulltrúafund bátaábyrgðarfélaganna, ef þrjú eða fleiri bátaábyrgðarfélög óska þess, en það er ekki í gildandi lögum. Þetta er flutt einnig eftir ósk bátaábyrgðarfélaganna sjálfra eða fulltrúafundar þeirra. Að öðru leyti eru þessar breyt. í fullu samræmi við þær breyt. sem lagðar eru til á frv. um bátaábyrgðarfélög.

Ég legg til að að lokinni þessari umr. verði þessu frv. vísað til heilbr.- og trn.