09.04.1976
Sameinað þing: 78. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3234 í B-deild Alþingistíðinda. (2660)
Skýrsla iðnaðarráðherra um Kröfluvirkjun
Iðnrh. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Út af þessari fsp. þm. vil ég taka það fram, að í þeirri orkuspá, sem ég lýsti hér, þar sem fyrri vélasamstæða Kröflu væri fullnýtt á árinu 1978 og síðari vélasamstæðan á árinu 1982, er ekki reiknað með nýrri stóriðju.