18.12.1976
Sameinað þing: 35. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1417 í B-deild Alþingistíðinda. (1039)

112. mál, landhelgismál

Frsm. meiri hl. (Guðmundur H. Garðarsson):

Herra forseti. Utanrmn. hefur tekið til meðferðar till. til þál. um landhelgismál á þskj. 133. Meiri hl. mælir með því, að till. verði vísað til ríkisstj., en minni hl. mun skila séráliti. Um frekari rökstuðning fyrir þessu áliti meiri hl. vísa ég til málflutnings stuðningsmanna ríkisstj. við fyrri hluta umr.