21.12.1976
Neðri deild: 41. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1587 í B-deild Alþingistíðinda. (1274)

Þingfrestun

Forseti (Ragnhildur Helgadóttir) :

Þar sem þetta er síðasti fundur deildarinnar fyrir jólahlé vil ég þakka hv. þdm. gott og ánægjulegt samstarf það sem af er þessu þingi og sömuleiðis starfsliði Alþingis öllu. Ég óska hv. alþm. og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og farsæls komandi árs, svo og starfsmönnum Alþ. og fjölskyldum þeirra. Þeim sem þurfa að fara um langan veg til heimila sinna óska ég góðrar ferðar og góðrar heimkomu og óska þess að við megum hittast hér heil á næsta ári til starfa ný.