21.12.1976
Sameinað þing: 38. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1588 í B-deild Alþingistíðinda. (1280)

Þingfrestun

Forsrh. (Geir Hallgrímsson) :

Herra forseti. Forseti Íslands hefur gefið út svo hljóðandi bréf: „Forseti Íslands gerir kunnugt:

Að ég að tilskildu samþykki Alþingis veiti forsrh. umboð til þess að fresta um sinn fundum Alþingis, 98. löggjafarþings, frá 21. des. 1976 eða síðar, ef henta þykir, enda verði þingið kvatt til fundar á ný eigi síðar en 24. jan. 1977.

Gert í Reykjavík, 20. des. 1976.

Kristján Eldjárn.

Geir Hallgrímsson.

Samkv. þessu umboði og með tilvísun til samþykkis Alþingis lýsi ég hér með yfir því, að fundum þessa Alþingis, 98. löggjafarþings, er frestað frá 21. des. og verður þingið kvatt til fundar á ný eigi síðar en 24. jan. 1977.

Að svo mæltu vil ég óska hæstv. forseta, öllum hv. alþm., starfsmönnum þingsins og öllum landsmönnum gleðilegra jóla og farsæls nýárs.