28.10.1976
Sameinað þing: 11. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 281 í B-deild Alþingistíðinda. (202)

Umræður utan dagskrár

Forseti (Ásgeir Bjarnason):

Hv. 5. þm. Norðurl. e. hefur kvatt sér hljóðs utan dagskrár. En þess vil ég geta, að umr. þessar utan dagskrár geta ekki tekið nema örskamman tíma vegna þess að það á að ræða fjárl. á eftir og það mun ekki verða leyft að aðrir hv. þm. taki til máls í umr. þessum en fyrirspyrjandi og hlutaðeigandi ráðh. sem svarar.