29.03.1977
Sameinað þing: 71. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 2983 í B-deild Alþingistíðinda. (2166)

195. mál, leigu- og söluíbúðir á vegum sveitarfélaga

Fyrirspyrjandi (Gunnlaugur Finnsson) :

Herra forseti. Ég vildi aðeins koma hér til að þakka hæstv. félmrh. fyrir þær upplýsingar sem hann hefur flutt okkur. Sýnist mér, miðað við þær tölur sem hér komu fram, að allmjög sé sótt á um að fara þessa leið varðandi húsnæðisvandamál dreifbýlisins vítt um land, og það kæmi mér ekki á óvart að allir landshlutar ættu þar býsna margar umsóknir sem ekki verður hægt að sinna.

En eigi að síður er gagnlegt að fá þessar upplýsingar hér inn, ekki síst með tilliti til þess að ýmsir velta því fyrir sér hvort þetta sé hið rétta form eða hvort við eigum frekar að snúa okkur að breytingum, þ. e. að efla verkamannabústaðakerfið sem slíkt. En það er annað mál sem ég ætla ekki að ræða hér.