26.04.1977
Sameinað þing: 81. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3757 í B-deild Alþingistíðinda. (2671)
10. mál, votheysverkun
Þorv. Garðar Kristjánsson:
Herra forseti. Ég skal ekki gera lítið úr því, að það þurfi fjármagn til þess að vinna verk, og þá er auðvitað æskilegt að það sé líka fjármagn til þess að gera það sem þessi till. gerir ráð fyrir. En sumt af því, sem till. gerir ráð fyrir, hygg ég að muni ekki kosta mikið fjármagn, svo sem að kynna bændum reynslu þeirra sem um árabil hafa byggt heyöflun sína að öllu eða mestu leyti á votheysverkun. Það vill þannig til, að það er heill hópur af mönnum í þjónustu hins opinbera eða Búnaðarfélagsins, mönnum sem eru vel að sér í þessum efnum, og þeir gætu beint störfum sínum að þessu sviði, geri ég ráð fyrir, að sjálfsögðu án þess að þar komi til mikil ný fjárútlát.
En svo er hinn þáttur þessarar till., þar sem talað er um að veita hærri stofnlán til byggingar votheyshlaðna en þurrheyshlaðna. Það má segja að það þurfi meira fjármagn ef gert er ráð fyrir að það verði sömu lán til þurrheyshlaðna og hafa verið. En það er hægt að hugsa sér að ná þessu marki með því að lækka lánin til þurrheyshlaðnanna, svo það fé, sem við það sparast geti hrokkið til þess að hækka lánin til votheyshlaðnanna, þannig að þau verði hærri. Nú er ég ekki að segja að þetta eigi að gera. Að sjálfsögðu er æskilegt að fá þarna fjármagn. En till. sjálf er, má segja, að forminu til hlutlaus í þessu efni. Ef þessi till. verður samþykkt, sem ég vonast til að verði, þá er það að sjálfsögðu ríkisstj. að vega og meta hvað hægt er að gera til aukinnar fjáröflunar í þessu skyni.
Mér sýnist af því, sem hv. þm. Stefán Valgeirsson sagði, að það væri full ástæða til að auka fé til lána vegna þurrheyshlaðna og annarra útihúsa bænda, og það væri full ástæða þó að þessi till. hefði ekki komið til. Ég geri ráð fyrir að það verði athugaður sá möguleiki að auka fjárframlög í þessu skyni. Geri ég ráð fyrir að það mundi vera gert í samráði við Stofnlánadeildina og þá lánastofnun sem hv. þm. Stefán Valgeirsson er formaður fyrir.