08.11.1976
Efri deild: 9. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 505 í B-deild Alþingistíðinda. (311)

56. mál, launaskattur

Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Á þskj. 58 er frv. til l. um breyt. á lögum um launaskatt. Hér er um að ræða framlengingu á gildandi lögum alveg óbreyttum eins og þau eru nú og hafa verið frá því að lög um skattkerfisbreytingu tóku gildi. Eins og rakið er í grg. frv., eru lögin að stofni til frá 1965, en þá var lagður á 1% launaafsláttur. Árið 1970 var lagður á sérstakur launaskattur, 1.5%, í tengslum við efnahagsráðstafanir sem þá voru gerðar. Launaskattur er hækkaður enn 1974 um 1% og var sú hækkun tengd ráðstöfun til lausnar vinnudeilu sem uppi var fyrri hluta þess árs.

Gildistími launaskatts samkv. núgildandi lögum rennur út nú um næstkomandi áramót. Frv. á þskj. 58 gerir ráð fyrir að gildistíminn verði enn framlengdur um eitt ár og hefur verið við það miðað við gerð fjárlaga. Að mínu mati er óeðlilegt að binda gildistíma skatta í lögum, en þar sem hér hefur verið talið um bráðabirgða­ skattheimtu að ræða að hluta til, er að sjálfsögðu rétt að framlengja gistitíma laganna aðeins um eitt ár.

Ég legg til, herra forseti, að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.