03.05.1977
Efri deild: 87. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 4230 í B-deild Alþingistíðinda. (3304)
15. mál, veiðar í fiskveiðilandhelgi
Frsm. (Halldór Ásgrímsson):
Herra forseti. Frv. til 1. um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, sem samþ. var frá d. í gær, er hér á dagskrá aftur vegna þess að hv. Nd. hefur gert smávegis orðalagsbreytingu á brtt. þeirri sem hér var samþ. Hér er aðeins um að ræða orðalagsbreytingu sem skiptir litlu sem engu máli, en af fagurfræðilegum ástæðum hefur Nd. séð ástæðu til að breyta þessari gr. og hef ég ekkert við það að athuga. Ég hef rætt það við nm. í sjútvn. hv. Ed., og sjá þeir ekki ástæðu til að málið verði tekið til meðferðar í n. Legg ég því til að frv. verði samþykkt með þessari orðalagsbreytingu, sem gerð var í Nd., og samþ. sem lög Alþ. frá þessari deild.