04.05.1977
Sameinað þing: 87. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 4303 í B-deild Alþingistíðinda. (3388)

Þinglausnir

Lúðvík Jósepsson:

Herra forseti. Ég vil fyrir hönd okkar alþm. þakka hæstv. forseta fyrir hlý orð og góðar óskir í okkar garð. Ég vil jafnframt þakka hæstv. forseta fyrir gott samstarf við okkur þm., og sérstaklega vil ég þakka honum fyrir góða og réttláta fundarstjórn. Ég óska hæstv. forseta og fjölskyldu hans gleðilegs og góðs sumars um leið og ég þakka honum fyrir sam­starfið yfir veturinn. Ég bið hv. alþm. að taka undir óskir mínar til hæstv. forseta með því að rísa úr sætum. — [Þingmenn risu úr sætum.]