28.11.1977
Neðri deild: 18. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 854 í B-deild Alþingistíðinda. (595)
Varamaður tekur þingsæti
Forseti (Magnús T. Ólafsson):
Borist hefur svolátandi bréf:
„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 1. varamaður Sjálfstfl. í Austurlandskjördæmi, Pétur Blöndal vélsmíðameistari, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
Sverrir Hermannsson, 3. þm. Austurl.
Til forseta Nd.“
Pétur Blöndal hefur áður skipað þingbekk á þessu kjörtímabili og býð ég hann velkominn til starfa í hv. deild.