Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1372, 152. löggjafarþing 23. mál: tekjuskattur (fyrningarálag á grænar eignir o.fl.).
Lög nr. 73 28. júní 2022.
Fari greiðsla fram með eign atvinnurekstrar skal ákvarða hagnað eða tap með sama hætti og hefði eignin verið seld ótengdum aðila, þ.m.t. við úttekt eigenda.
Þingskjal 1372, 152. löggjafarþing 23. mál: tekjuskattur (fyrningarálag á grænar eignir o.fl.).
Lög nr. 73 28. júní 2022.
Lög um breytingu á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003 (fyrningarálag á grænar eignir o.fl.).
1. gr.
Við 21. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:Fari greiðsla fram með eign atvinnurekstrar skal ákvarða hagnað eða tap með sama hætti og hefði eignin verið seld ótengdum aðila, þ.m.t. við úttekt eigenda.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á ákvæði til bráðabirgða LXX í lögunum:- Á eftir orðunum „stofnverð eigna“ í 2. mgr. kemur: skv. 1. mgr.
- Orðin „og hvenær skattaðili telst vera í fjárhagsvanda“ í 8. mgr. falla brott.
3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 16. júní 2022.