Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 2136, 154. löggjafarþing 942. mál: Orkusjóður (Loftslags- og orkusjóður).
Lög nr. 66 28. júní 2024.

Lög um breytingu á lögum um Orkusjóð, nr. 76/2020 (Loftslags- og orkusjóður).


1. gr.

  1. Í stað orðsins „Orkusjóður“ í 1. málsl. 1. gr., 2. mgr. 2. gr. og 1. málsl. 1. mgr. 8. gr. laganna kemur: Loftslags- og orkusjóður.
  2. Í stað orðsins „Orkusjóðs“ í 1. mgr. 2. gr., 1., 2. og 3. mgr. 3. gr., 1. mgr. 4. gr., 1. og 2. mgr. 5. gr., 6. gr., 7. gr., 2. málsl. 1. mgr. og 2. mgr. 8. gr. laganna kemur: Loftslags- og orkusjóðs.
  3. Í stað orðsins „Orkusjóði“ í 1. og 2. mgr. 4. gr., 1. mgr. 5. gr. og 1. málsl. 1. mgr. 8. gr. laganna kemur: Loftslags- og orkusjóði.

2. gr.

     Fyrirsögn 1. gr. laganna orðast svo: Loftslags- og orkusjóður.

3. gr.

     Við 2. gr. laganna bætast tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
     Loftslags- og orkusjóður skal enn fremur styðja við nýsköpunar- og innviðaverkefni á sviði loftslagsmála, verkefni sem stuðla að innleiðingu hringrásarhagkerfisins og verkefni sem lúta að kynningu og fræðslu um áhrif loftslagsbreytinga.
     Jafnframt er hlutverk Loftslags- og orkusjóðs að sjá um beinar stuðningsaðgerðir, svo sem styrki til kaupa á rafbílum og styrki til jarðhitaleitar, eftir atvikum hverju sinni.

4. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. laganna:
  1. 1. mgr. orðast svo:
  2.      Ráðherra skipar fimm einstaklinga í stjórn Loftslags- og orkusjóðs til fjögurra ára. Formaður skal skipaður án tilnefningar og honum til viðbótar skipar ráðherra einn fulltrúa án tilnefningar, einn fulltrúa, sem hefur þekkingu á loftslagsmálum, samkvæmt tilnefningu háskólasamfélagsins, einn fulltrúa samkvæmt tilnefningu Samtaka atvinnulífsins og einn fulltrúa samkvæmt tilnefningu umhverfisverndarsamtaka.
  3. Við 3. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Stjórninni er þó heimilt að framselja óháðum aðila faglega umsýslu sjóðsins samkvæmt samningi.
  4. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
  5.      Ákvarðanir sem teknar eru um að veita styrki úr Loftslags- og orkusjóði eru endanlegar á stjórnsýslustigi.


5. gr.

     Orðin „og framlög“ í 1. mgr. 4. gr. laganna falla brott.

6. gr.

     Heiti laganna verður: Lög um Loftslags- og orkusjóð.

7. gr.

     Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 2024.

8. gr.

     Við gildistöku laga þessara verða eftirfarandi breytingar á öðrum lögum:
  1. Lög um loftslagsmál, nr. 70/2012:
    1. 4. mgr. 4. gr. laganna fellur brott.
    2. IX. kafli laganna ásamt fyrirsögn fellur brott.
  2. Lög um tekjuskatt, nr. 90/2003: Í stað heitisins „Orkusjóði“ í ákvæði til bráðabirgða LXXVII í lögunum kemur: Loftslags- og orkusjóði.


Samþykkt á Alþingi 23. júní 2024.