Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 1993, 154. löggjafarþing 832. mál: brottfall laga um Stofnun Vilhjálms Stefánssonar og samvinnunefnd um málefni norðurslóða, nr. 81/1997.
Lög nr. 77 1. júlí 2024.

Lög um brottfall laga um Stofnun Vilhjálms Stefánssonar og samvinnunefnd um málefni norðurslóða, nr. 81/1997.


1. gr.

      Lög um Stofnun Vilhjálms Stefánssonar og samvinnunefnd um málefni norðurslóða, nr. 81/1997, falla úr gildi.

2. gr.

     Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2025. Frá sama tíma tekur Háskólinn á Akureyri við eignum og skuldbindingum Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar. Stofnun Vilhjálms Stefánssonar er samtímis lögð niður, ásamt embætti forstöðumanns stofnunarinnar.

Ákvæði til bráðabirgða.
     Starfsfólk Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar sem er í starfi við gildistöku laga þessara verður starfsfólk Háskólans á Akureyri með sömu ráðningarkjörum og áður giltu. Ákvæði 7. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, gilda ekki um ráðstöfun starfa samkvæmt þessu ákvæði.

Samþykkt á Alþingi 21. júní 2024.