Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1992, 154. löggjafarþing 689. mál: hollustuhættir og mengunarvarnir (geymsla koldíoxíðs).
Lög nr. 78 1. júlí 2024.
Þessi kafli gildir um geymslu koldíoxíðs í jörðu á yfirráðasvæði Íslands, þ.e. á landi, innsævi, í landhelgi, efnahagslögsögu og á landgrunni.
Koldíoxíðsstraumur skal vera að langmestu leyti úr koldíoxíði. Af þeim sökum má ekki bæta í hann úrgangi eða öðru efni í því skyni að farga úrganginum eða öðru efni. Koldíoxíðsstraumur getur þó innihaldið tilfallandi tengd efni úr uppsprettunni, fönguninni eða niðurdælingarferlinu og snefilefni sem bætt er í hann til að auðvelda vöktun og sannprófun á flæði koldíoxíðs. Styrkur allra tilfallandi og viðbættra efna skal ekki vera svo hár að hann:
Rekstraraðili skal sjá til þess að innihald koldíoxíðsstraums sé efnagreint og að fram fari áhættumat sem staðfesti að mengunarstig koldíoxíðsstraums sé í samræmi við kröfur 1. mgr.
Samstarf yfir landamæri.
Ef koldíoxíð er flutt yfir landamæri eða ef geymslusvæðin eða geymslusamstæðurnar liggja yfir landamæri skulu lögbær yfirvöld hlutaðeigandi ríkja í sameiningu uppfylla kröfur laga þessara og annarrar viðeigandi löggjafar þeirra ríkja sem í hlut eiga.
Þingskjal 1992, 154. löggjafarþing 689. mál: hollustuhættir og mengunarvarnir (geymsla koldíoxíðs).
Lög nr. 78 1. júlí 2024.
Lög um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998 (geymsla koldíoxíðs).
1. gr.
1. mgr. 33. gr. a laganna orðast svo:Þessi kafli gildir um geymslu koldíoxíðs í jörðu á yfirráðasvæði Íslands, þ.e. á landi, innsævi, í landhelgi, efnahagslögsögu og á landgrunni.
2. gr.
1. tölul. 33. gr. b laganna orðast svo: Könnunarleyfi og starfsleyfi til geymslu, þ.m.t. um form og efni umsóknar og leyfis, fjárhagslega tryggingu, breytingar á útgefnum leyfum, kröfur vegna aðilaskipta, niðurfellingu leyfis þegar starfsemi er hætt eða forsendur leyfis bresta og málsmeðferð við veitingu leyfis.3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 33. gr. c laganna:- 3. mgr. orðast svo:
- Í stað orðanna „á meðan könnun stendur yfir“ í 4. mgr. kemur: á gildistíma könnunarleyfis.
- 5. mgr. fellur brott.
4. gr.
33. gr. d laganna orðast svo:Koldíoxíðsstraumur skal vera að langmestu leyti úr koldíoxíði. Af þeim sökum má ekki bæta í hann úrgangi eða öðru efni í því skyni að farga úrganginum eða öðru efni. Koldíoxíðsstraumur getur þó innihaldið tilfallandi tengd efni úr uppsprettunni, fönguninni eða niðurdælingarferlinu og snefilefni sem bætt er í hann til að auðvelda vöktun og sannprófun á flæði koldíoxíðs. Styrkur allra tilfallandi og viðbættra efna skal ekki vera svo hár að hann:
- hafi skaðleg áhrif á áreiðanleika geymslusvæðis eða tengdra innviða,
- stofni umhverfinu eða heilbrigði fólks í hættu,
- brjóti í bága við kröfur annarrar viðeigandi löggjafar.
Rekstraraðili skal sjá til þess að innihald koldíoxíðsstraums sé efnagreint og að fram fari áhættumat sem staðfesti að mengunarstig koldíoxíðsstraums sé í samræmi við kröfur 1. mgr.
5. gr.
Í stað „33. gr. j“ í 1. mgr. 33. gr. f laganna kemur: 33. gr. k.6. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 33. gr. g laganna:- 1. tölul. orðast svo: Öll tiltæk gögn benda til þess að koldíoxíð sé fullkomlega og varanlega aflokað.
- Við bætist nýr töluliður sem verður 2. tölul., svohljóðandi: Lágmarkstími sem Umhverfisstofnun ákvarðar er liðinn. Sá lágmarkstími skal ekki vera styttri en 20 ár nema unnt sé að sýna fram á að koldíoxíð sé fullkomlega og varanlega aflokað áður en því tímabili lýkur.
- Í stað „33. gr. j“ í 2. tölul. kemur: 2. mgr. 33. gr. k.
- Orðin „og geymslu“ í 3. tölul. falla brott.
7. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 33. gr. h laganna:- 2. mgr. orðast svo:
- geymslugetu sem eðlilegt er að sé tiltæk á geymslusvæði,
- markmiði íslenskra stjórnvalda samkvæmt alþjóðlegum skuldbindingum um samdrátt í losun koldíoxíðs og reglum um föngun og geymslu koldíoxíðs í jörðu,
- nauðsyn þess að synja um aðgang í tilvikum þegar tækniforskriftir eru ósamrýmanlegar og erfitt er að bæta úr,
- nauðsyn þess að virða tilhlýðilega rökstuddar og eðlilegar þarfir eiganda eða rekstraraðila geymslusvæðis eða flutningskerfis og hagsmuni allra annarra sem nota geymsluna eða netið eða viðkomandi vinnslu- eða meðhöndlunarbúnað og kunna að verða fyrir áhrifum.
- 3. mgr. fellur brott.
8. gr.
Við 3. mgr. 33. gr. i laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Falli viðkomandi flutningskerfi eða geymslusvæði undir fleiri en eitt ríki í deilumáli sem nær yfir landamæri skulu hlutaðeigandi ríki hafa samráð sín á milli til þess að ákvæðum þessa kafla sé beitt á samræmdan hátt.9. gr.
Á eftir 33. gr. i laganna kemur ný grein, 33. gr. j, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi, og breytist greinatala samkvæmt því:10. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 33. gr. j laganna:- Í stað orðanna „tryggingu fyrir allri starfsemi á geymslusvæði“ í 1. mgr. kemur: fjárhagslega tryggingu fyrir allri starfsemi á geymslusvæði eða jafngildi tryggingar.
- 2. mgr. orðast svo:
11. gr.
Við 1. mgr. 53. gr. laganna bætist nýr töluliður, 3. tölul., svohljóðandi: Könnunarleyfi, sbr. VI. kafla A.12. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 21. júní 2024.