Forsetar þjóðþinga Norðurlanda og Eystrasaltsríkja funda í Litáen 22. og 23. ágúst
Birgir Ármannsson, forseti Alþingis, sækir árlegan fund þingforseta Norðurlanda og Eystrasaltsríkja sem haldinn er í Kaunas í Litáen, dagana 22. og 23. ágúst. Á fundinum munu þingforsetar m.a. ræða samstarf þjóðþinganna og tækifæri til að efla frekara pólitískt samstarf landanna svo sem á sviði öryggis- og efnahagsmála í ljósi þeirra breytinga sem orðið hafa í norðanverðri Evrópu.
Forsetar þinga Norðurlanda og Eystrasaltsríkja samankomnir í Kaunas í Litáen, ásamt starfsfólki.
© Ljósmynd / Litáíska þingið