Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög í febrúar 1996. Útgáfa 120a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um framkvæmd alþjóðasamþykktar um þjálfun, skírteini og vaktstöður sjómanna
1987 nr. 47 30. mars
1. gr. Ráðherra þeim, sem fer með siglingamál, er heimilt að setja reglur til að framfylgja alþjóðasamþykkt um þjálfun, skírteini og vaktstöður sjómanna á kaupskipum (STCW, 1978).
2. gr. Ráðherra er heimilt að setja reglur um heildarmönnun kaupskipa í samræmi við ályktun A. 481 sem samþykkt var á 12. þingi Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar árið 1981.
3. gr. Brot gegn reglum, sem settar verða samkvæmt lögum þessum, varða sektum.
4. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi.