Lagasafn. Íslensk lög 1. febrúar 1998. Útgáfa 122a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um loftferðir
1964 nr. 34 21. maí
I. kafli.
Upphafsákvæði.
1. gr. Loftfar nefnist í lögum þessum hvert það tæki, sem lagað er til að hefja sig á loft eða haldast og hreyfast á lofti og telst að eðlisrökum loftfar.
2. gr. Loftferðir um íslenskt yfirráðasvæði (lofthelgi Íslands) eru háðar þeim skilyrðum og takmörkunum, er segir í lögum þessum eða reglum, settum samkvæmt þeim.
3. gr. Loftfari er rétt að fljúga um íslenskt yfirráðasvæði, enda hafi það:
a. íslenskt þjóðerni eða
b. þjóðerni erlends ríkis, sem hefur með sáttmála verið veittur réttur til loftferða um íslenskt yfirráðasvæði.
c. Þá er sérstakar ástæður eru til, er ríkisstjórninni rétt að veita loftfari, sem eigi er svo farið sem í 1. mgr. segir, heimild til loftferða um íslenskt yfirráðasvæði með því skilorði, er telja má nauðsynlegt, svo sem til öryggis. Slíkt leyfi má afturkalla, er vill.
4. gr. Rétt er forseta Íslands að takmarka eða banna loftferðir um tiltekna hluta íslensks yfirráðasvæðis, enda horfi slík ráðstöfun eindregið til almannaöryggis eða allsherjarreglu.
![](/lagas/hk.jpg)
Þá er brýna nauðsyn ber til, svo sem vegna almannaöryggis, er forseta Íslands rétt að takmarka eða banna loftferðir almennt um íslenskt yfirráðasvæði.
5. gr. Lög þessi taka einnig yfir loftferðir íslenskra loftfara utan íslensks yfirráðasvæðis, enda mæli hvorki lögin öðruvísi né skipan þessi fari í bág við erlend lög, sem beita skal samkvæmt samningi við erlent ríki eða annars samkvæmt almennum grundvallarreglum laga.
![](/lagas/hk.jpg)
Flugmálaráðherra ákveður, að hve miklu leyti reglur,
1) sem samdar eru samkvæmt lögum þessum, skuli gilda utan íslensks yfirráðasvæðis.
![](/lagas/hk.jpg)
Ákvæðum IX. kafla skal einnig beita um loftferðir erlends loftfars utan íslensks yfirráðasvæðis, að því leyti sem það leiðir af milliríkjasamningi eða almennum réttarreglum.
1)
Augl. 55/1992, sbr.
206/1996, um setningu flugreglna.
II. kafli.
Skrásetning, þjóðerni og merking.
Þjóðernisskrásetning.
6. gr. Flugmálastjórnin skal halda skrá um loftför (þjóðernisskráning).
![](/lagas/hk.jpg)
Um skráning réttinda í loftförum gilda sérstök lög.
7. gr. [Rétt er að skrásetja loftfar hér á landi í eigu íslenskra ríkisborgara sem eiga lögheimili hér á landi eða íslenskra lögaðila sem eiga heimili hér á landi. Réttur til skrásetningar loftfars er þó háður því að fullnægt sé skilyrðum laga um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri.]
1)
![](/lagas/hk.jpg)
Flugmálaráðherra er rétt, þá er mjög mikilvægar ástæður eru til, að leyfa, að loftfar, sem heimastöð hefur á Íslandi og er í stöðugri notkun, megi skrá hér á landi, þótt eigandi þess fullnægi eigi skilyrðum 1. mgr. a–g.
1)L. 23/1991, 7. gr.
8. gr. Loftfar, sem skrásett er erlendis, verður eigi skrásett hér á landi, fyrr en það hefur verið strikað af erlendri skrá.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú hvíla á loftfari skráð réttindi, sem meta skal gild hér á landi samkvæmt samningi við erlent ríki, og verður loftfarið eigi tekið á íslenska skrá, nema rétthöfum hafi verið gerð full skil, þeir samþykki flutninginn eða réttindin séu niður fallin við nauðungarsölu.
9. gr. Loftfar skal eigi skrásetja, nema það hafi lofthæfisskírteini, sem stjórn loftferðamála hefur gefið út eða metið gilt.
10. gr. Skrásetja skal loftfar samkvæmt skriflegri umsókn eiganda þess. Umsókn skal geyma skýrslur, sem nauðsynlegar eru til skrásetningar, og henni skulu fylgja skilríki fyrir því, að umsækjandi sé eigandi loftfarsins, hvenær og af hverjum það er smíðað og svo að skilyrðum 7.–9. gr. sé fullnægt. Nú er eignarréttur umsækjanda bundinn skilyrðum eða takmörkunum, sem leitt geta til þess, að eignarrétturinn flytjist til annars aðila, og skal geta þess í umsókn.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú gerir umsækjandi sennilegt, að hann sé eigandi, en tekst eigi að leiða fullnægjandi sönnur að eignarheimild sinni, og er skrásetjara rétt að beiðni hans að birta opinberlega áskorun til þess, er kann að telja sig eiganda, að gefa sig fram, áður en liðinn er frestur, er eigi má vera styttri en tveir mánuðir. Ef enginn gefur sig fram, er skrásetjara rétt að viðurkenna eignarheimild umsækjanda.
11. gr. Nú eru að dómi skrásetjara skilyrði skrásetningar fyrir hendi, og skrásetur hann loftfar og lætur því í té skrásetningarmerki.
![](/lagas/hk.jpg)
Á skrá skal setja:
a. Þjóðernismerki og skrásetningarmerki loftfars.
b. Nauðsynlega skýrslu um annað það, er einkennir loftfar.
c. Skýrslu um eiganda og eignartöku hans á loftfari og, sé því að skipta, skilyrði og hömlur, sem greindar eru í 1. mgr. 10. gr.
d. Tilvísun til lofthæfisskírteinis handa loftfari.
e. Dag og ár skrásetningar.
f. Aðrar skýrslur eftir ákvörðun flugmálaráðherra.
12. gr. Nú verða eftir skrásetningu eigandaskipti að loftfari að nokkru eða öllu, eigandi þess breytir þjóðerni sínu eða gerð er breyting á loftfarinu, sem máli skiptir um kennsl á því, og skal eigandi tafarlaust tilkynna skrásetjara breytinguna ásamt nauðsynlegum skýrslum og skilríkjum. Með sama hætti skal með fara, þá er eigandi fullnægir eigi lengur skilyrðum 7. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú verða með samningi eigandaskipti að loftfari að nokkru eða öllu, og hvílir tilkynningarskylda einnig á afseljanda. Nú fer eignartaka á loftfari fram fyrir nauðungarsölu, …
1) gjaldþrot eða opinber skipti, og hvílir slík skylda á [þeim, sem fer með þá gerð].
1)
![](/lagas/hk.jpg)
Skrásetjari skal skrá breytingu og geta, eftir því sem þörf er, ákvæða 10. og 11. gr. eða, beri atvik undir 13. og 14. gr., strika loftfar af skrá eða gera athugasemd á blað þess.
1)L. 20/1991, 136. gr.
13. gr. Loftfar skal strika af skrá, þá er:
a. þess er krafist af þeim, sem skráður er eigandi þess;
b. skilyrðum 7. gr. er eigi lengur fullnægt, enda veiti flugmálaráðherra eigi leyfi til, að skráning loftfarsins haldist;
c. loftfar er rifið eða það hefur eyðilagst;
d. loftfar er horfið. Loftfar telst horfið, þá er liðnir eru þrír mánuðir frá því síðasta flug hófst, og eigi er vitað, að það sé enn óskaddað.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú hefur að hendi borið eitthvert þeirra tilvika, sem nefnd eru í b–d þessarar greinar, og skal eigandi loftfars tafarlaust tilkynna það skráningaryfirvöldum, enda sé það eigi þegar gert samkvæmt 12. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú hefur loftfar í þrjú ár eigi haft gilt lofthæfisskírteini, og má strika það af skrá enda afli eigandi eigi slíks skírteinis, áður en liðinn er frestur, sem skrásetningaryfirvöld setja honum.
14. gr. Nú er skráð haft á loftfari, og skal eigi fella loftfar niður af þjóðernisskrá, nema rétthafi samþykki. Í þess stað skal gera í skránni athugasemd um það tilvik, sem leiða hefði átt til niðurfellingar af skrá. Slík athugasemd hefur engin áhrif á haftið, en hefur að öðru sömu verkun sem afskráning.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú er loftfar fellt af þjóðernisskrá eða í hana er skráð slík athugasemd, sem í 1. mgr. getur, og skal tilkynna það til réttindaskrár.
15. gr. Nú er skráð loftfar selt gegn afborgun og eignarréttarfyrirvara, og skal tilkynna skrásetjara tafarlaust samninginn. Tilkynningarskylda hvílir bæði á eiganda og kaupanda.
![](/lagas/hk.jpg)
Skrásetjari skal skrá málavexti.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú er loftfar, sem skráð er hér á landi, látið um óákveðinn tíma eða eigi skemmri tíma en 14 daga í forræði leigutaka eða annars, sem notar það á sinn kostnað, og er hvorum samningsaðila rétt að tilkynna þetta skrásetjara, sem skráir umráðin.
16. gr. Nú lætur íslenskur aðili smíða á sinn kostnað loftfar erlendis eða fær þar eignarheimild í loftfari og fullnægt er skilyrðum 7. og 8. gr. til skrásetningar, og má samkvæmt umsókn hans skrá loftfarið til bráðabirgða í sérstakri deild loftfaraskrárinnar eftir nánari reglum, sem flugmálaráðherra setur.
17. gr. Nú er loftfar í smíðum hér á landi, og má skrá það að beiðni eiganda þess til bráðabirgða í sérstakri deild loftfaraskrár, enda sé smíði þess komin á það stig, að þekkja má deili á því og eigandi fullnægir skilyrðum 7. gr.
18. gr. Nú hefur loftfar verið skráð til bráðabirgða samkvæmt 16. eða 17. gr., og taka þá ákvæði 12.–15. gr. yfir það, eftir því sem við á. Nú verður slíkt loftfar skráð fullnaðarskráningu, og skal fella niður skráningu þess í hinni sérstöku deild, og höft, er getið var, skulu skráð að nýju á blaði þess í skránni.
Þjóðerni loftfara.
19. gr. Nú er loftfar skráð samkvæmt 11. gr., og hlýtur það íslenskt þjóðerni.
![](/lagas/hk.jpg)
Skrásetjari gefur út þjóðernis- og skrásetningarskírteini handa loftfarinu.
20. gr. Nú er loftfar fellt niður af skrá eða athugasemd gerð eftir 14. gr., og skal eigandi loftfarsins eða fyrri eigandi þess, sé það komið í eigu erlends aðila, tafarlaust senda skrásetjara þjóðernis- og skrásetningarskírteinið. Nú er annars færð á skrána einhver breyting á þeim atriðum, sem getur í skírteininu, og skal eigandinn án tafar senda skrásetjara skírteinið, sem getur breytingarinnar á skírteininu eða gefur út nýtt skírteini í stað hins.
21. gr. Nú hefur loftfar verið skrásett til bráðabirgða samkvæmt 16. og 17. gr., og skal gefa út handa því bráðabirgða þjóðernis- og skrásetningarskírteini eftir nánari reglum, sem flugmálaráðherra setur.
![](/lagas/hk.jpg)
Loftfarið hefur íslenskt þjóðerni, meðan skírteinið heldur gildi sínu.
22. gr. Í íslensku loftfari, sem er í flugferðum samkvæmt lögum þessum, skal vera þjóðernis- og skrásetningarskírteini þess, er fullnægi reglum þessa kafla. Í erlendu loftfari skal, þá er það er á íslensku yfirráðasvæði, vera þjóðernis- og skrásetningarskírteini þess eða samsvarandi skilríki frá erlendu ríki, sem samið hefur um rétt til flugferða um íslenskt yfirráðasvæði.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú er loftfari samkvæmt c-lið 3. gr. veitt sérstakt leyfi til loftferða um íslenskt yfirráðasvæði, og gilda um það reglur, er flugmálaráðherra setur.
Merking loftfara.
23. gr. Nú hefur loftfar verið tekið á þjóðernisskrá samkvæmt 11., 16. eða 17. gr., og skal merkja það íslensku þjóðernismerki og svo skrásetningarmerki því, sem því er úthlutað. Merki þessi skal loftfarið bera, meðan skrásetning þess er í gildi.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú á loftfar heima í erlendu ríki, sem samið hefur um rétt til flugferða á íslensku yfirráðasvæði, og skal loftfarið í slíkum flugferðum vera merkt samkvæmt þeim reglum, er gilda í heimalandi þess.
![](/lagas/hk.jpg)
Loftfar, sem leyfð er notkun þess samkvæmt c-lið 3. gr., skal merkja eftir reglum, sem flugmálaráðherra setur.
1)
1)
Augl. 176/1983.
III. kafli.
Um lofthæfi.
1)
1)Rg. 443/1976, sbr. 433/1979 og 478/1982.
24. gr. Loftfar, sem notað er til loftferða eftir lögum þessum, skal vera lofthæft.
![](/lagas/hk.jpg)
Loftfar er einungis þá lofthæft, er það er þannig saman sett, smíðað, útbúið og því við haldið og það hefur þá flugkosti, að kröfum um öryggi er fullnægt.
25. gr. Flugmálastjórnin framkvæmir skoðun á loftförum og hefur eftirlit með því, að loftför, sem notuð eru til flugferða eftir lögum þessum, séu lofthæf.
![](/lagas/hk.jpg)
Flugmálastjórninni er rétt að láta íslenskan eða erlendan kunnáttumann, er hún skipar til þess, og svo erlent stjórnvald framkvæma skoðun og eftirlit.
26. gr. Nú er með skoðun eða á annan hátt sannreynt, að loftfar sé lofthæft, og gefur flugmálastjórnin út lofthæfisskírteini handa loftfarinu. Gefa má skírteini út til tiltekins tíma, og takmarka má það við loftferðir tiltekinnar tegundar eða á tilteknu svæði. Rétt er flugmálaráðherra að kveða svo á, að taka skuli upp í skírteinið eða sérstakt skjal, er skírteininu fylgi, leiðbeiningar um notkun loftfarsins,
1) enda teljist það einungis þá lofthæft, er leiðbeiningunum er fylgt.
![](/lagas/hk.jpg)
Lofthæfisskírteini skal samkvæmt umsókn endurnýja, enda sé loftfarið lofthæft samkvæmt gildandi ákvæðum, þá er endurnýja skal. Nú framkvæmir íslenskur eða erlendur kunnáttumaður skoðun eða erlend yfirvöld samkvæmt 2. mgr. 25. gr., og er flugmálastjórninni rétt að fela aðila þeim, er skoðun framkvæmir, að endurnýja lofthæfisskírteini.
1)Rg. 281/1980, um flokkun loftfara, sbr. 78/1994.
27. gr. Íslenskt loftfar, sem notað er til loftferða eftir lögum þessum, skal til sannindamerkis um lofthæfi sitt hafa lofthæfisskírteini, sem sé gefið út eða staðfest af flugmálastjórninni.
![](/lagas/hk.jpg)
Erlent loftfar skal í loftferðum um íslenskt yfirráðasvæði hafa annað tveggja slíkt skírteini eða lofthæfisskírteini, sem hefur verið út gefið eða staðfest í erlendu ríki, sem samið hefur verið við um viðurkenningu þess háttar skírteinis hér á landi.
![](/lagas/hk.jpg)
Flugmálaráðherra er rétt að veita loftfari, sem eigi hefur lofthæfisskírteini samkvæmt 1. eða 2. mgr., sérstakt leyfi til loftferða á íslensku yfirráðasvæði. Slíkt leyfi má taka aftur, ef vill.
28. gr. Nú lætur flugmálaráðherra eigi öðruvísi mælt, og verður íslenskt lofthæfisskírteini ógilt:
a. Þá er eigi hefur verið framkvæmd fyrirskipuð skoðun á loftfari.
b. Þá er gerð hefur verið slík breyting á loftfari og búnaði þess, að máli getur skipt um lofthæfi þess.
c. Þá er loftfar eða búnaður þess hefur orðið fyrir spjöllum, sem einsýnt er, að máli skiptir um lofthæfi þess.
![](/lagas/hk.jpg)
Flugmálaráðherra er annars rétt að ógilda lofthæfisskírteini, þá er einhver þau atvik verða, sem skipta að dómi hans máli um lofthæfi loftfars.
![](/lagas/hk.jpg)
Í tilviki því, er í staflið c greinir, helst ógildingin, uns flugmálastjórnin lýsir loftfar lofthæft.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú er lofthæfisskírteini ógilt, og er flugmálastjórninni rétt að heimta það til sín.
29. gr. Ákvæði 26. og 28. gr. um íslenskt lofthæfisskírteini skulu með tilsvarandi hætti eiga við um staðfestingu flugmálastjórnar á erlendu lofthæfisskírteini og svo um endurnýjun og ógildingu slíkrar staðfestingar.
30. gr. Eigandi eða umráðandi (notandi) loftfars, sem notað er til loftferða samkvæmt lögum þessum, ber ábyrgð á því, að loftfarið sé lofthæft og að því fylgi gilt lofthæfisskírteini.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú ber við eitthvað það, sem máli skiptir um lofthæfi, og skal eigandi eða umráðandi loftfars samkvæmt reglum,
1) er flugmálaráðherra setur, tilkynna það, svo fljótt sem verða má, flugmálastjórninni og veita henni alla þá vitneskju, sem nauðsynleg er við framkvæmd eftirlits með lofthæfinu.
1)Rg. 248/1995.
31. gr. Flugmálastjórninni og svo kunnáttumanni þeim eða yfirvaldi, er í 26. gr. getur, er heimill aðgangur að hverju því loftfari, sem notað er til loftferða eftir lögum þessum, og rétt er nefndum aðilum að framkvæma hverja þá rannsókn á loftfarinu og búnaði þess, sem þeir telja nauðsynlega við skoðun og eftirlit. Sömu aðilum er í þessu skyni rétt að krefja eiganda, umráðanda (notanda) og áhöfn loftfars þeirrar aðstoðar, sem þörf er. Þeim er þannig rétt að krefjast þess, að loftfarið sé haft tiltækt til skoðunar, það affermt og prófflug og önnur próf framkvæmd.
![](/lagas/hk.jpg)
Rannsókn samkvæmt grein þessari skal framkvæma með þeirri nærgætni, sem kostur er.
32. gr. Nú þykir rétt að prófa kosti loftfars eða séu aðrar sérstakar ástæður til, og er flugmálastjórninni rétt eftir nánari reglum, er flugmálaráðherra setur, að veita undanþágu frá ákvæðum þessa kafla og reglum, settum samkvæmt þeim.
33. gr. Rétt er flugmálaráðherra að ákveða,
1) að smíði loftfara, búnaðar, tækja og varahluta þeirra og svo nánar tiltekin störf við viðhald, viðgerðir og breytingar á loftförum, búnaði, tækjum og varahlutum þeirra skuli einungis falin sérfróðum mönnum, sem sérstaklega eru til slíks starfs löggiltir, eða fyrirtækjum, sem til starfans setja sérfróða og löggilta menn.
1)
Augl. 477/1994.
IV. kafli.
Áhöfn.
34. gr. Hvert það loftfar, sem notað er til loftferða lögum þessum samkvæmt skal hafa áhöfn, svo að tryggilegt sé.
![](/lagas/hk.jpg)
Flugmálaráðherra setur nánari reglur um áhöfn.
1)
![](/lagas/hk.jpg)
Eigandi eða umráðandi (notandi) loftfars ábyrgist, að það sé réttilega áhöfn skipað.
1)Rg. 344/1990, sbr. 19/1995, 71/1996 og 137/1996.
35. gr. Flugmálastjórnin hefur eftirlit með því, að ákvæðin um áhöfn séu haldin. Rétt er henni að láta íslenskan eða erlendan kunnáttumann og svo erlent yfirvald framkvæma eftirlitið.
36. gr. Flugmálaráðherra ákveður, hverjum skilyrðum flugverjar, er í loftfari starfa, skuli fullnægja um ríkisfang, aldur, líkamlegt og andlegt hæfi, reglusemi, menntun og þjálfun.
37. gr. Flugmálastjórnin gefur út skírteini flugstjóra og þeirra annarra flugverja, sem flugmálaráðherra kveður á um, enda leiði sá, er í hlut á, sönnur að því, að hann fullnægi skilyrðum til að rækja starfann.
![](/lagas/hk.jpg)
Skírteini má binda við loftferðir loftfara tiltekinnar tegundar eða loftferðir á tilteknu svæði.
![](/lagas/hk.jpg)
Skírteini skal gefa út til tiltekins tíma, og það skal eftir umsókn endurnýja til tiltekins tíma, enda fullnægi handhafi þess lögmæltum skilyrðum til starfans á endurnýjunarstundu.
![](/lagas/hk.jpg)
Rétt er að synja skírteinis þeim manni, sem dæmdur hefur verið fyrir refsiverða hegðun, er veitir ástæðu til að ætla, að hann misfari með skírteinið.
38. gr. Nú hefur maður á hendi starfa í loftfari, slíkan sem greinir í 37. gr., og skal hann sanna heimild sína til hans með skírteini, sem flugmálastjórnin hefur gefið út eða staðfest, eða skírteini, sem út er gefið eða staðfest af erlendu ríki, sem samið hefur verið við um viðurkenningu á þess háttar skírteini.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú hefur maður á hendi starfa á íslensku loftfari í milliríkjaflugi, og skal hann hafa skírteini, sem út er gefið eða staðfest af flugmálastjórninni.
![](/lagas/hk.jpg)
Flugmálastjórninni er rétt að synja viðurkenningar á skírteini, sem annað ríki hefur veitt íslenskum ríkisborgara, að því er tekur til loftferða yfir íslensku yfirráðasvæði.
![](/lagas/hk.jpg)
Flugmálastjórninni er, án tillits til ákvæða 1. mgr., rétt að veita sérstakt leyfi til starfa í loftfari. Afturkalla má slíkt leyfi hvenær sem er.
39. gr. Flugmálastjórninni er rétt að ógilda íslenskt skírteini fyrir óliðinn gildistíma þess eða hluta hans, þá er skírteinishafi fullnægir eigi lengur skilyrðum til þess starfa, sem skírteinið varðar.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú þykir flugmálastjórninni ástæða til að ætla, að efni séu til þess að ógilda skírteini samkvæmt 1. mgr., og er henni rétt að fella skírteinið úr gildi um stundarsakir, uns útkljáð er, hvort skírteinið skuli ógilda að fullu.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú er skírteini ógilt eða fellt úr gildi um stundarsakir samkvæmt ákvæðum greinar þessarar, og skal skila flugmálastjórninni skírteininu.
40. gr. Ákvæði 37. og 39. gr. um útgáfu, endurnýjun og ógildingu skírteinis skulu með samsvarandi hætti taka yfir staðfestingu flugmálastjórnarinnar á erlendum skírteinum og svo endurnýjun og ógildingu slíkrar staðfestingar.
41. gr. Nú hefur maður skírteini, sem flugmálastjórnin hefur gefið út eða gilt metið, og skal hann, svo fljótt sem verða má, tilkynna henni atriði, sem máli skipta, er meta skal, hvort hann fullnægi áfram skilyrðum til starfans. Honum er skylt, hvenær sem er, að gangast undir þá rannsókn og þau próf, sem flugmálastjórnin telur nauðsynleg.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú verður læknir þess vís, að flugverji er haldinn slíkri heilsubilun, að hætta stafi af starfa hans í loftfari, og ber lækninum að vara hann við, og stoði viðvörun eigi, tilkynna vitneskju sína flugmálastjórn eftir reglum, er flugmálaráðherra setur.
42. gr. Flugmálastjórninni er rétt að leyfa, að loftfar sé notað til loftferða í æfingarskyni eða annars, séu sérstakar ástæður til, þótt það sé eigi áhöfn skipað samkvæmt ákvæðum þessa kafla.
V. kafli.
Um flugstjóra og flugstarfa.
43. gr. Flugstjóri skal vera á hverju því íslensku loftfari, sem notað er til loftferða samkvæmt lögum þessum.
![](/lagas/hk.jpg)
Flugstjóri hefur æðsta vald í loftfari.
44. gr. Flugstjóri skal annast um, að loftfar sé lofthæft og tilhlýðilega búið, áhöfn skipað og fermt og að flug sé annars undirbúið og framkvæmt samkvæmt gildandi ákvæðum.
![](/lagas/hk.jpg)
Flugstjóri skal hlíta ákvæðum 30. gr. um skyldu til að tilkynna
1) flugmálastjórninni atriði, sem máli skipta um lofthæfi, og til að láta henni í té skýrslur, sem nauðsynlegar eru við framkvæmd eftirlits með lofthæfinu. Honum er skylt samkvæmt reglum, er flugmálaráðherra setur, að gefa flugmálastjórninni skýrslur um atriði, sem máli skipta, er meta skal starfshæfni flugverja.
1)Rg. 248/1995.
45. gr. Flugstjóri hefur undir sinni forsjá loftfar, áhöfn, farþega og farm.
![](/lagas/hk.jpg)
Honum er rétt, þá er hann telur nauðsyn til bera, að setja flugverja um stundarsakir til annarrar þjónustu en þeirrar, sem þeir eru ráðnir til.
![](/lagas/hk.jpg)
Farþegum er skylt að fara eftir þeim fyrirmælum, sem flugstjóri setur um góða hegðun og reglu í loftfari.
![](/lagas/hk.jpg)
Flugstjóra er rétt, er nauðsyn ber til, að synja viðtöku í loftfari eða vísa úr því flugverjum, farþegum eða varningi og farangri.
46. gr. Rétt er flugstjóra að þröngva mönnum með valdi til hlýðni við sig, enda sé það nauðsynlegt til uppihalds á góðri hegðun og reglu í loftfari.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú er loftfar í hættu statt eða annars konar neyðarástand er fyrir hendi, og er flugstjóra rétt að beita hverri þeirri aðferð, sem nauðsynleg er til að koma á reglu og hlýðni.
1) Flugverja hverjum er skylt, og það án þess að á hann sé skorað, að veita flugstjóra aðstoð.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú er manni, er hlýðni neitar, veittur áverki eða ákoma, og má hann þá einungis koma fram ábyrgð af þeim sökum, að harðari aðferðum sé beitt en efni voru til.
1)Rg. 248/1995.
47. gr. Nú er í loftfari framið stórfellt lögbrot, og ber flugstjóra að gera, eftir því sem kostur er, þær ráðstafanir, sem nauðsynlegar eru til öflunar réttrar vitneskju um málið og eigi má að meinalausu fresta.
![](/lagas/hk.jpg)
Flugstjóri skal, svo sem kostur er, annast um, að hinn seki komist eigi undan, og er flugstjóra rétt, ef nauðsyn ber til, að setja hann í gæslu, uns hann verður afhentur lögreglu á Íslandi eða yfirvöldum, er í hlut eiga, erlendis.
![](/lagas/hk.jpg)
Rétt er flugstjóra að taka í sína umsjá hluti, sem ætla má, að séu sönnunargögn, uns þeir verða afhentir lögreglu eða yfirvöldum, svo sem í 2. mgr. segir.
48. gr. Flugstjóri skal gæta þess, að lögmæltar dagbækur og önnur flugskjöl séu í loftfari og að skráð sé í bækur þessar og skjöl, svo sem lög mæla.
49. gr. Nú lendir loftfar í háska, og skal flugstjóri gera allt, sem honum er unnt, til bjargar loftfari, mönnum og varningi, sem í því eru. Nú ber nauðsyn til að yfirgefa loftfarið, og skal hann eftir megni annast um, að flugskjölum sé komið á óhultan stað.
50. gr. Nú verður flugslys, sem af hlýst mannslát, stórfelld meiðsl á mönnum, stórfelld spjöll á loftfari eða eignum utan þess, og ber flugstjóra tafarlaust að sjá um, að flugmálastjórninni sé sagt til slyssins,
1) og gefa skal hann síðan skýrslu um það, svo fljótt er verða má. Sama gildir, ef alvarleg hætta á slíku slysi hefur vofað yfir eða eitthvað hefur að hendi borið, sem til þess bendir, að meiri háttar löstur sé á loftfari, flugvirkjum eða flugtækjum á jörðu niðri eða rekstri þeirra.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú er flugstjóra eigi unnt að gefa hina lögmæltu tilkynningu eða skýrslu, og hvílir skylda til þess á eiganda loftfars eða umráðanda (notanda).
![](/lagas/hk.jpg)
Flugmálaráðherra er rétt að setja reglur um takmörkun tilkynningarskyldu, að skylda þessi taki til fleiri flugverja en flugstjóra eða tilkynna skuli fleirum en flugmálastjórninni.
1)Rg. 248/1995.
51. gr. Flugverji hver skal hlýða skipunum yfirmanna sinna í starfa sínum, vera umhyggjusamur um loftfar, menn og varning, sem í því eru, og rækja starfsskyldur sínar af samviskusemi.
52. gr. Enginn flugverji má hafa á hendi starfa í loftfari, sé hann vegna neyslu áfengis, æsandi eða deyfandi lyfja, vegna sjúkdóms eða þreytu eða annarrar líkrar orsakar óhæfur til að rækja starfann á tryggilegan hátt. Nú er vínandamagn í blóði flugstjóra eða annars flugverja yfir 0,4‰ eða áfengi er í líkama hans, sem leitt getur til slíks vínandamagns í blóðinu, og telst hann með áhrifum áfengis og eigi hæfur til að starfa í loftfari. Eigi leysir það aðila undan sök, þótt hann ætli vínanda í blóði sínu minni.
![](/lagas/hk.jpg)
Flugstjóri og flugverjar, sem teljast til áhafnar loftfara, svo og flugumferðarstjórar, mega ekki neyta áfengis síðustu 18 klukkustundir, áður en störf eru hafin, né heldur meðan þeir eru að starfi. Varðar það að jafnaði missi skírteinis um stundarsakir, þó eigi skemur en 3 mánuði, eða fyrir fullt og allt, ef sakir eru miklar eða brot ítrekað.
![](/lagas/hk.jpg)
Sá, sem starfað hefur í loftfari, má eigi neyta áfengis, æsandi eða deyfandi lyfja næstu 6 klukkutíma, eftir að starfa hans í loftfari lauk, enda hafi hann ástæðu til að ætla, að opinber rannsókn verði hafin um atferli hans við starfann.
![](/lagas/hk.jpg)
Rétt er [lögreglu],
1) þá er ástæða er til, að flytja aðila til læknis til rannsóknar, þ. á m. til blóð- og þvagrannsóknar, og er honum skylt að hlíta nauðsynlegri meðferð læknis.
![](/lagas/hk.jpg)
Bannað er að fela manni starfa í loftfari, þá er hann er haldinn þeim meinbug, sem í 1. og 3. mgr. getur.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú neytir flugstjóri eða annar flugverji áfengis á opinberum veitingastað og veitingamaður eða þjónar hans vita eða hafa ástæðu til að ætla, að hann muni verða brotlegur við 1. og 3. mgr., og ber þeim að gera allt, sem unnt er, til að afstýra broti, þar á meðal að gera lögreglu viðvart. Lögreglustjórar skulu, hver í sínu umdæmi, brýna ákvæði þessarar greinar fyrir veitingamönnum.
![](/lagas/hk.jpg)
Ráðherra setur í reglugerð ákvæði um lágmarkshvíldartíma flugmanna til að tryggja fyllsta öryggi, að fengnum tillögum félagssamtaka flugverja, flugfélaga og flugmálastjórnar.
1)L. 90/1996, 43. gr.
53. gr. Nú veikist eða slasast flugverji fjarri heimili sínu og fjarvistin er vegna starfs hans. Ber þá vinnuveitanda að greiða allan kostnað við læknishjálp, sjúkrahúsvist og flutning sjúklings til heimilis hans.
54. gr. Flugmálaráðherra kveður á, að hve miklu leyti ákvæði þessa kafla skuli taka til erlends loftfars á íslensku yfirráðasvæði.
[V. kafli.
A. Vinnuumhverfi áhafna loftfara.]
1)
1)L. 81/1989, 1. gr.
[54. gr. A. Ákvæði þessa kafla gilda um alla starfsemi sem áhöfn loftfars vinnur fyrir flugrekanda.
![](/lagas/hk.jpg)
Flugrekandi er sá sem fengið hefur leyfi samgönguráðherra til loftferðastarfsemi í samræmi við ákvæði laga þessara.
![](/lagas/hk.jpg)
Með ákvæðum þessa kafla er leitast við að
a. tryggja öruggt og heilsusamlegt vinnuumhverfi,
b. tryggja að flugrekendur og áhafnir geti sjálf í sameiningu leyst öryggis- og heilbrigðisvandamál um borð í loftförum.]
1)
1)L. 81/1989, 1. gr.
[54. gr. B. Flugrekandi skal stuðla að góðum aðbúnaði, hollustuháttum og öryggi um borð í loftförum og að virkt eftirlit sé með því að vinnuumhverfi þar fullnægi settum kröfum.]
1)
1)L. 81/1989, 1. gr.
[54. gr. C. Hjá flugrekanda, þar sem starfa einn til fjórir flugverjar, skulu úrbætur á vinnuumhverfi gerðar í nánu samstarfi flugrekanda og áhafna.]
1)
1)L. 81/1989, 1. gr.
[54. gr. D. Hjá flugrekanda, þar sem starfa fimm flugverjar eða fleiri, skulu starfsmenn tilnefna einn öryggistrúnaðarmann fyrir hverja tegund loftfara eða annað afmarkað vinnusvæði til að vera fulltrúi sinn í málum sem varða vinnuumhverfi um borð í loftförum.
![](/lagas/hk.jpg)
Atvinnurekandi ber kostnað vegna starfs öryggistrúnaðarmanns og bætir honum tekjutap sem af því kann að hljótast.
![](/lagas/hk.jpg)
Öryggistrúnaðarmenn njóta þeirrar verndar sem ákveðin er í
11. gr. laga nr. 80/1938, um stéttarfélög og vinnudeilur.]
1)
1)L. 81/1989, 1. gr.
[54. gr. E. Hjá flugrekanda, þar sem starfa fimm flugverjar eða fleiri, skal stofna öryggisnefnd.
![](/lagas/hk.jpg)
Í öryggisnefnd eiga sæti tveir fulltrúar starfsmanna og tveir fulltrúar flugrekanda.
![](/lagas/hk.jpg)
Öryggisnefndin skipuleggur aðgerðir varðandi bætt vinnuumhverfi um borð í loftförum og annast fræðslu starfsmanna um þessi efni.]
1)
1)L. 81/1989, 1. gr.
[54. gr. F. Þegar starfsmenn flugmálastjórnar koma í eftirlitsferðir í fyrirtæki skulu þeir hafa samband við hlutaðeigandi öryggistrúnaðarmann og fulltrúa í öryggisnefnd. Þeim aðilum skal auðvelda svo sem kostur er að leggja mál fyrir flugmálastjórn.]
1)
1)L. 81/1989, 1. gr.
[54. gr. G. Samgönguráðherra setur nánari reglur um skipulag og framkvæmd ráðstafana er miða að auknu öryggi og bættum aðbúnaði og hollustuháttum um borð í loftförum, svo sem um stofnun samstarfshópa og öryggisnefnda, um verkefni þeirra og um daglega stjórn þeirrar starfsemi er lýtur að auknu öryggi og bættu vinnuumhverfi.]
1)
1)L. 81/1989, 1. gr.
[54. gr. H. Samgönguráðherra skipar vinnuverndarráð fyrir flugstarfsemi til fjögurra ára í senn.
![](/lagas/hk.jpg)
Verkefni ráðsins skal vera:
1. Að vera ráðgefandi fyrir ráðherra og flugmálastjóra í málum varðandi vinnuumhverfi um borð í loftförum.
2. Að gera tillögur og veita umsagnir um nýjar reglur eða breytingu á eldri reglum um vinnuumhverfi um borð í loftförum.
3. Að fjalla um einstök mál, sem ráðherra eða flugmálastjóri leggja fyrir það, og eiga frumkvæði að málum sem hafa áhrif á vinnuumhverfi áhafna.
![](/lagas/hk.jpg)
Flugmálastjórn skal sjá um að þegar nauðsyn krefur standi ráðinu til boða sérfræðileg aðstoð.
![](/lagas/hk.jpg)
Vinnuverndarráðið er skipað fjórum fulltrúum frá áhöfnum og fjórum fulltrúum frá flugrekendum. Ráðherra skipar formann án tilnefningar. Varamenn eru skipaðir á sama hátt. Flugmálastjóri eða fulltrúi hans situr fundi ráðsins ásamt þeim starfsmönnum flugmálastjórnar, sem hann telur ástæðu til eða ráðið óskar eftir, með málfrelsi og tillögurétti.
![](/lagas/hk.jpg)
Ráðherra setur nánari reglur um starfsemi ráðsins.]
1)
1)L. 81/1989, 1. gr.
VI. kafli.
Flugvellir og önnur flugvirki.
Almenn ákvæði.
55. gr. Flugvellir og önnur flugvirki skulu fullnægja þeim kröfum, sem flugmálaráðherra setur, enda mæli lög eigi öðruvísi.
1)
![](/lagas/hk.jpg)
Rétt er flugmálaráðherra að ákveða í reglugerð, hverjum skilyrðum flugvellir skuli fullnægja, er þeir hafa eigi verið sérstaklega til flugs gerðir.
![](/lagas/hk.jpg)
Flugmálaráðherra setur reglur um rekstur og viðhald flugvalla og flugvirkja og um eftirlit með þeim. Sá handhafi stjórnvalds, sem hefur umsjón með flugvirkjum, skal einnig annast um, að haldin séu önnur þau ákvæði, sem kafli þessi geymir, og reglur, settar samkvæmt þeim. Rétt er honum að krefjast, hvenær sem er, aðgangs að flugvirkjum og öðrum stöðum, eftir því sem nauðsynlegt er til framkvæmdar á verki sínu.
1)Rg. 297/1964 (um umferð, öryggi o.fl. á Keflavíkurflugvelli).
56. gr. Flugmálaráðherra er rétt að kveða á, að loftferðir á tilteknum leiðum eða yfir tilteknum svæðum skuli háðar sérstakri skipan.
57. gr. Flugöryggisþjónustu skal veita loftferðum til öryggis og léttis. Flugmálaráðherra setur reglur um hana og ákveður, að hve miklu leyti aðrir en ríkisstofnanir skuli hafa hana á hendi.
Sérleyfi.
58. gr. Sá, sem gera vill og starfrækja flugvöll, sem sé almenningi til afnota, þarf sérleyfi flugmálaráðherra auk viðurkenningar samkvæmt 63. gr. Ríkið þarfnast þó eigi sérleyfis.
![](/lagas/hk.jpg)
Rétt er flugmálaráðherra að ákveða, að gera megi og starfrækja flugvöll án sérleyfis, þá er ásigkomulag flugvallarins, magn og tíðleiki umferðar eða aðrar sérstakar ástæður gera slíka skipan eðlilega.
59. gr. Sérleyfi skal því aðeins veita, að almenn sjónarmið leiði til þess. Áður en sérleyfi er veitt, skal leita umsagnar sveitarstjórnar þeirrar, sem í hlut á.
60. gr. Sérleyfi skal vera tímabundið og svo bundið slíkum skilyrðum, sem nauðsynleg teljast.
![](/lagas/hk.jpg)
Í sérleyfi má áskilja ríkinu rétt til að leysa til sín flugvöll, önnur flugvirki og útbúnað sérleyfishafa. Um endurgjald fer samkvæmt ákvæðum laga um eignarnám.
61. gr. Sérleyfi má taka aftur, ef sérleyfishafi brýtur í rekstri sínum í mikilvægum atriðum ákvæði laga, sérleyfisskilmála eða reglur, sem slíkan rekstur varða.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú má ætla, að sérleyfishafi sé eigi fær um að gera flugvirkin á fullnægjandi hátt eða halda rekstri uppi, og má afturkalla sérleyfið.
62. gr. Flugmálaráðherra er rétt að ákveða, að leyfi hans þurfi til gerðar eða rekstrar á flugvelli, sem eigi er til almennrar notkunar, eða til annars flugvirkis. Hann setur reglur um slíkt leyfi.
Viðurkenning.
63. gr. Flugvellir, sem ætlaðir eru til almennrar notkunar, þarfnast viðurkenningar flugmálaráðherra. Hann ákveður, að hve miklu leyti krefjast skuli slíkrar viðurkenningar um aðra flugvelli og önnur flugvirki.
![](/lagas/hk.jpg)
Flugmálaráðherra bindur viðurkenningu sína þeim skilyrðum, sem nauðsynleg má telja.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú fullnægir flugvöllur eða annað flugvirki eigi lengur þeim kröfum, sem viðurkenning slíks flugvirkis er háð, eða sett skilyrði eru vanhaldin í mikilvægum atriðum, og er flugmálaráðherra rétt að afturkalla viðurkenningu sína.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú ber eitthvað við, sem í för með sér hefur, að flugvirki fullnægir eigi lengur settum kröfum, og er eiganda þess eða umráðanda skylt, undir eins og hann verður þess vís, að tilkynna það flugmálastjórninni.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú liggja atvik til þess, að hættulegt er að nota flugvirkið, og skal eigandi eða umráðandi þess stansa rekstur þess, án þess að bíða ákvörðunar flugmálastjórnarinnar.
Eignarnám og loftferðatálmanir.
64. gr. [Heimilt er flugmálaráðherra að framkvæma eignarnám á hvers kyns fasteignaréttindum vegna gerðar og reksturs flugvalla eða annars flugvirkis. Um framkvæmd eignarnámsins fer samkvæmt
lögum nr. 11/1973 um framkvæmd eignarnáms.]
1)
1)L. 17/1982, 1. gr.
65. gr. Aðflug að flugvelli, sem almenningi er heimil notkun hans til loftferða, skal vera tryggt samkvæmt þeim reglum, sem hér segir, en rétt er þó flugmálaráðherra að víkja frá þeim, þá er sérstaklega stendur á.
66. gr. Flugmálaráðherra ber að setja skipulagsreglur fyrir flugvelli, þá er í 65. gr. getur, nema sérstök undantekning sé gerð samkvæmt þeirri grein.
![](/lagas/hk.jpg)
Skipulagsreglur skulu m.a. geyma fyrirmæli um það svæði utan sjálfs flugvallarins, þar sem rétt er að setja takmörkun á hæð mannvirkja og annarra hluta, t.d. húsa, stanga, trjáa o.s.frv., eða takmörkun á meðferð fasteigna eða hluta, t.d. að því er varðar leiðslur, atvinnurekstur o.s.frv., enda séu slíkar kvaðir nauðsynlegar í þágu almenns öryggis. Kveða skal glöggt á um mörk þess svæðis, sem skipulagið tekur yfir.
![](/lagas/hk.jpg)
Með sama hætti skal setja skipulagsreglur, eftir því sem þurfa þykir, um hafnarsvæði og vatnasvæði, þar sem loftför lenda á sjó eða vatni.
![](/lagas/hk.jpg)
Innan skipulagssvæðis skal greina hinar mismunandi takmarkanir á mannvirkjahæð, sem nauðsynlegar eru til öruggrar lendingar og öruggs flugtaks.
![](/lagas/hk.jpg)
Rétt er, að skipulagsreglur kveði á um tiltekna geira fyrir aðflug og fráflug, er séu breytilegir eftir því, hvort veður er gott eða skyggni slæmt.
![](/lagas/hk.jpg)
Setja má reglur um tímabundið skipulag.
![](/lagas/hk.jpg)
Uppkast að fyrirhuguðum skipulagsreglum skal liggja frammi mönnum til sýnis á hentugum stað, og skal auglýsa framlagningu í Lögbirtingablaði og skora á fasteignaeigendur og aðra, sem í hlut eiga, að gera athugasemdir við það, áður en liðinn er frestur, sem eigi má vera styttri en 4 vikur.
![](/lagas/hk.jpg)
Flugmálastjórnin skal taka til gaumgæfilegrar athugunar þær athugasemdir, sem fram kunna að koma, og gefa þeim, sem í hlut eiga, færi á því að kynna sér breytingar, áður en gengið er frá skipulagi til fullnaðar. Fullnaðarskipulag skal birta með sama hætti og uppkastið.
![](/lagas/hk.jpg)
Þinglýsa skal kvöð, sem lögð er á fasteignir vegna flugvalla, enda skipti kvöð máli.
67. gr. Eigi má víkja frá hæðartakmörkun eða öðrum takmörkunum um forræði eigna, sem í skipulagsreglum segir, án samþykkis flugmálaráðherra. Fyrir slíku samþykki má setja skilyrði, svo sem um breytingu eða merkingu þeirra bygginga, sem máli skipta.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú er takmörkun eigi hlítt, án þess að fyrir liggi samþykki, og skal flugmálastjórnin setja þeim, er í hlut á, frest til að ganga löglega frá málum. Sama gildir, ef eigi eru haldin skilyrði fyrir samþykki eftir 1. mgr.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú líður frestur, án þess að úr sé bætt, og er flugmálastjórn rétt að framkvæma nauðsynlegar aðgerðir með atbeina fógeta og á kostnað þess, sem í hlut á. Nú fær ríkið kostnað sinn eigi bættan úr hendi hans, og er rétt að krefjast kostnaðar úr hendi eiganda flugvallar.
68. gr. Nú er fyrir hendi, er skipulagsreglur taka gildi, loftferðatálmi, sem fer í bága við skipulagið, og skal ryðja honum úr vegi, enda samþykki flugmálaráðherra eigi, að hann haldist. Ákvæði 67. gr. eiga hér við. Útgjöld af framkvæmdum skal eigandi flugvallar þó bera, enda sé eigi til að dreifa tilviki því, er greinir í 2. mgr. 67. gr.
69. gr. Nú er kvöð lögð á eign manns eða forræðisskerðing vegna flugvallar, og á eigandi hennar eða réttindahafi kröfu til skaðabóta úr hendi eiganda flugvallar, enda hafi kvöð eða forræðisskerðing í för með sér, að eignin verði eigi hagnýtt til fulls, miðað við stærð hennar, legu og allar aðstæður, eða eigandi hennar verður fyrir fjárhagstjóni, sem hann á að fá bætt eftir meginreglum laga.
![](/lagas/hk.jpg)
Bóta má og krefja úr hendi eiganda flugvallar, er aðili verður fyrir skaða vegna framkvæmda, er getur í 68. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Skilyrði skaðabóta er, að leitað hafi verið heimildar til undanþágu samkvæmt 67. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Ríkið ábyrgist, að skaðabætur séu af hendi inntar.
70. gr. Skaðabætur skal ákveða eftir reglum
laga nr. 61/1917.
1)
![](/lagas/hk.jpg)
Rétt er krefjanda skaðabóta að beiðast mats innan þess frests, sem ákveðinn er í skipulagsreglum. Frestur má eigi styttri vera en 2 ár frá birtingu skipulagsreglna. Rétt er flugmálaráðherra að veita uppreisn um 6 mánaða tímabil frá lokum frests.
1)Nú l. 11/1973.
71. gr. Eigandi eða umráðamaður (notandi) flugvallar skal annast um, að hinni fyrirskipuðu forræðisskerðingu á eignum og mannvirkjum sé hlítt. Nú er út af þessu brugðið, og ber honum að tilkynna flugmálastjórninni það tafarlaust.
72. gr. Við breytingu á skipulagsreglum skal beita sömu aðferð og við setningu nýrra. Veita má tilslökun á forræðisskerðingu, án þess að uppkast liggi áður frammi til sýnis.
73. gr. Skipulagsreglur skulu halda gildi sínu, uns flugmálaráðherra fellir þær úr gildi eða gildistími þeirra er útrunninn.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú eru skipulagsreglur úr gildi felldar, og taka ákvæði 6. og 7. mgr. 66. gr. til þess með tilsvarandi hætti.
74. gr. Rétt er flugmálaráðherra að krefjast þess, að brott séu numdir eða merktir tálmar, sem eru utan svæðis, sem skipulag tekur yfir, en vegna hæðar mega teljast hættulegir flugumferð. Beitt skal eignarnámi, ef því er að skipta. Kostnaður, þar með taldar skaðabætur handa eiganda eða notanda, greiðist úr ríkissjóði.
75. gr. Rétt er flugmálaráðherra að kveða svo á, að eigi skuli setja upp eða nota og, sé því að skipta, að brott skuli nema eða færa í annað horf merki, ljós eða hljóðvirki, tæki er senda frá sér útvarpsbylgjur, eða önnur tilfæri, sem telja má flugumferð stafa hættu af.
![](/lagas/hk.jpg)
Um skaðabætur fer eftir almennum reglum laga, ef því er að skipta.
Önnur ákvæði.
76. gr. Flugmálaráðherra er rétt að kveða á um flugvelli þá, er loftför mega nota, þá er þau hefja sig til flugs eða lenda, enda segi eigi öðruvísi í sérlögum.
77. gr. Rétt er flugmálaráðherra að setja reglur
1) um aðgang að flugvöllum, umferð um þá og dvöl loftfara á þeim og svo, beri nauðsyn til, banna í samráði við samgöngumálaráðherra siglingu eða vist á vatna- eða sjóleiðum, sem notaðar eru um stundarsakir eða til frambúðar sem flugstöðvar.
1)Rg. 81/1990.
78. gr. Heimta má afgjöld fyrir not flugvallar eða annars mannvirkis í þágu loftferða, sem eru til almennra nota, eftir reglum, sem flugmálaráðherra setur.
1) Taka má afgjöld lögtaki.
![](/lagas/hk.jpg)
[Enn fremur er heimilt að heimta afgjöld til greiðslu á kostnaði við gerð og rekstur annarra hjálpartækja til nota í þágu loftferða eftir reglum, sem settar eru af flugmálaráðherra. Gjaldskyldan hvílir á eigendum eða notendum íslenskra loftfara og erlendra vegna ferða um svæðið, þar sem nota má þessi hjálpartæki. Gjald þetta er kræft vegna loftferða yfir íslensk yfirráðasvæði, svo og yfir úthafið og erlend yfirráðasvæði, þegar um það hefur verið samið milli Íslands og viðkomandi erlends ríkis. Gjöld þessi eru lögtakskræf.
![](/lagas/hk.jpg)
Heimilt er flugmálaráðherra að semja við stjórnvöld annarra ríkja um, að þau taki að sér innheimtu á þessum gjöldum erlendis.]
2)
1)
Gjaldskrá 478/1992. 2)L. 71/1974, 1. gr.
79. gr. Flugvelli og önnur mannvirki í þágu loftferða, sem eru til almennra nota, mega erlend loftför einnig nota með sömu skilyrðum og íslensk loftför í þvílíkum milliríkjaförum, enda sé fyrir hendi samningur um þetta við það erlenda ríki, sem í hlut á.
80. gr. Flugmálaráðherra er rétt að kveða á, hverjum kostum þeir skulu búnir vera, sem starfa á flugvelli, í öðru flugvirki eða hafa á hendi annað það starf utan loftfars, sem mikilsvert er um öryggi loftferða. Ráðherra setur reglur um starfsskírteini fyrir slíkum starfa.
81. gr. Ákvæði 52. gr. taka með viðeigandi hætti til þeirra, sem hafa eftirlit með loftförum og loftferðum, hafa á hendi tæknistörf við loftfar eða önnur störf mikilsverð fyrir öryggi loftferða að dómi flugmálaráðherra.
VII. kafli.
Leyfi til loftferðastarfsemi.
82. gr. Leyfi flugmálaráðherra þarf til rekstrar reglubundinna loftferða í fjáraflaskyni yfir íslensku yfirráðasvæði.
![](/lagas/hk.jpg)
Leyfi flugmálaráðherra þarf einnig til rekstrar annarra loftferða til fjáröflunar yfir nefndu yfirráðasvæði, enda mæli ráðherra eigi öðruvísi.
![](/lagas/hk.jpg)
Rétt er flugmálaráðherra að láta svo mælt, að kennsluflug,
1) sýningarflug, samkeppnisflug
2) og önnur loftferðastarfsemi sérstakrar tegundar þurfi leyfis, enda þótt starfsemin sé eigi rekin til fjáröflunar.
![](/lagas/hk.jpg)
[Heimilt er flugmálaráðherra að setja reglur
3) um flugferðir innlendra flugfélaga og, ef nauðsyn krefur, veita einu eða fleiri félögum sérleyfi til fastra áætlunarferða á ákveðnum leiðum innanlands og utan.]
4)
1)Rg. 503/1979 (um flugskóla). 2)Rg. 442/1976. 3)
Augl. 523/1989. 4)L. 17/1982, 2. gr.
83. gr. Leyfi má því aðeins veita, að almenn sjónarmið styðji það.
84. gr. Nú er einungis um að tefla loftferðir milli staða á íslensku yfirráðasvæði, og má veita leyfi samkvæmt 82. gr. þeim einum, er fullnægir skilyrðum til skrásetningar á loftfari, þeim er í 7. gr. getur.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú fullnægir leyfishafi eigi skilyrðum leyfis, og gengur leyfi úr gildi, nema úr sé bætt, áður en liðinn er frestur, sem flugmálaráðherra setur.
![](/lagas/hk.jpg)
Þá er alveg sérstaklega stendur á, er flugmálaráðherra rétt að veita leyfi samkvæmt 82. gr., þótt skilyrðum þessarar greinar sé eigi fullnægt.
85. gr. Veita skal leyfi um tiltekinn tíma og binda þeim skilyrðum, sem nauðsynleg þykja, þar á meðal um farm- og fargjöld.
![](/lagas/hk.jpg)
Rétt er í leyfi að áskilja ríkinu heimild til innlausnar.
86. gr. Nú brýtur leyfishafi í hinni leyfðu starfsemi í mikilvægum atriðum lagaboð, skilyrði leyfis, önnur fyrirmæli um starfsemina, eða hann reynist ófær til að reka starfsemina, og er rétt að svipta hann leyfi.
87. gr. Rétt er að víkja frá ákvæðum þessa kafla, þá er leyfi er veitt, að því leyti sem sáttmáli við erlent ríki gerir það nauðsynlegt.
88. gr. Flugmálaráðherra er rétt að setja reglur um, með hverju skilorði afhenda megi loftfar eða flugvirki þess eða varahluti í hendur annars aðila til nota á sjálfs hans kostnað.
VIII. kafli.
Um umferð í lofti.
89. gr. Flugmálaráðherra setur reglur
1) um verndarráðstafanir, sem gerðar skulu til að afstýra árekstri loftfara, öðrum flugslysum, hættum og óhagræði af loftferðum.
2)
1)
Augl. 55/1992, sbr.
206/1996, um setningu flugreglna. 2)Rg. 442/1976. Rg. 627/1983, sbr. 396/1985 og 254/1986. Rg. 263/1986.
90. gr. Rétt er flugmálaráðherra að setja reglur um flugleiðir loftfara inn á íslenskt yfirráðasvæði og yfir því og hverja flugvelli nota megi í millilandaflugi.
91. gr. Rétt er þeim handhafa stjórnvalds, er í hlut á, að skipa loftfari að lenda, enda miði sú skipan til uppihalds á allsherjarreglu og öryggi. Lenda skal þá, svo skjótt sem kostur er. Nú er eigi gefin skipun annars efnis, og skal loftfar lenda á næsta flugvelli hér á landi, sem er til almennra flugnota og lenda má á.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú flýgur loftfar inn á svæði, þar sem loftferðir eru bannaðar, og skal loftfarið tafarlaust fljúga út fyrir svæðið og tilkynna þetta þeim handhafa stjórnvalds, sem í hlut á, og mæli hann eigi annað, lenda á næsta flugvelli hér á landi, sem er til almennra flugnota og lenda má á.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú fer stjórnandi loftfars eigi eftir fyrirmælum þessarar greinar, og er handhafa stjórnvaldsins rétt með viðeigandi ráðum að hindra áframhaldandi flug loftfarsins.
92. gr. Hergögn má eigi flytja í loftförum án leyfis flugmálaráðherra. Flugmálaráðherra setur í samráði við dómsmálaráðherra fyrirmæli um, hvað hergögn merkja.
1) Flugmálaráðherra er rétt, í samráði við dómsmálaráðherra, að veita undanþágu frá ákvæðum þessarar greinar.
![](/lagas/hk.jpg)
Rétt er flugmálaráðherra til uppihalds á allsherjarreglu og öryggi að banna eða setja reglur um flutning annars varnings en hergagna.
![](/lagas/hk.jpg)
Rétt er flugmálaráðherra að banna eða setja reglur um heimild manna til að hafa meðferðis og nota ljósmyndatæki í loftfari.
1)Rg. 348/1983.
93. gr. Nú er eigi öðruvísi mælt í sérstökum lögum, og setur flugmálaráðherra reglur um dagbækur og önnur loftfarsskjöl, vist þeirra í loftfari, ef þurfa þykir, gerð þeirra, ritun og geymslu.
94. gr. Hver, er það varðar hag hans að lögum, hefur rétt til að kynna sér efni dagbóka og annarra loftfarsskjala.
95. gr. Flugmálaráðherra kveður á, að hverju ráði flugverjar skulu hafa meðferðis skírteini og önnur skjöl.
96. gr. Flugmálastjórn, lögreglu og tollyfirvöldum er rétt að rannsaka loftfar og sannkanna þau skjöl, sem loftfar og flugverjar skulu vera búnir.
IX. kafli.
Um loftflutninga.
1)
1)Rg. um vátryggingu vegna loftferða, 116/1965.
Gildissvið.
97. gr. Ákvæði þessa kafla taka yfir flutninga í loftfari á farþegum, farangri eða varningi, enda sé flutningur inntur af hendi gegn endurgjaldi. Nú framkvæmir loftferðafyrirtæki flutninga, og gilda ákvæði laganna, enda þótt flutningur sé ókeypis.
98. gr. Ákvæði kafla þessa gilda eigi um póstflutninga.
![](/lagas/hk.jpg)
Ákvæðin um flutningaskjöl í 99.–105. gr. taka eigi til flutninga, sem inntir eru af hendi við óvenjulegar aðstæður og falla utan venjulegrar loftferðastarfsemi.
Flutningaskjöl.
99. gr. Nú eru farþegar fluttir, og skal flytjandi afhenda farseðil, þar sem greina skal:
a. Brottfararstað og ákvörðunarstað.
b. Að minnsta kosti einn umsaminn viðkomustað á leiðinni, svo fremi brottfararstaður og ákvörðunarstaður eru í sama ríki og samið er um einn eða fleiri viðkomustaði í öðru ríki.
c. Að flutningurinn megi hlíta ákvæðum Varsjársáttmálans eða lögum, sem til líka við sáttmálann takmarka að jafnaði ábyrgð flytjanda á mannskaða og glötun eða tjóni á farangri.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú eru eigi færðar sönnur á annað, og telst farseðill sönnun um gerð flutningssamnings og flutningskjör.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú er farseðill eigi gefinn út eða efni hans er eigi það, er mælt var, eða hann hefur glatast, og er flutningssamningur engu að síður gildur. Nú er farþegi með samþykki flytjanda í loftfari, án þess að farmiði sé afhentur, eða farmiði geymir eigi þá vitneskju, sem í c greinir, og getur flytjandi eigi borið fyrir sig ákvæði 118. gr. um takmörkun ábyrgðar.
100. gr. Nú er innrituðum farangri veitt viðtaka til flutnings, og skal gefa út farangursmiða. Nú er farangursmiði eigi festur við eða felldur inn í farseðil farþega, sem fullnægir kröfum 1. mgr. 99. gr., og skal í farangursmiða greina:
a. Brottfararstað og ákvörðunarstað.
b. Að minnsta kosti einn umsaminn viðkomustað á leiðinni, svo fremi brottfararstaður og ákvörðunarstaður eru í sama ríki og samið er um einn eða fleiri viðkomustaði í öðru ríki.
c. Að flutningurinn megi hlíta ákvæðum Varsjársáttmálans eða lögum, sem til líka við sáttmálann takmarka að jafnaði ábyrgð flytjanda á glötun eða tjóni á farangri.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú eru eigi færðar sönnur á annað, og telst farangursmiði sönnun um innritun og viðtöku farangurs til flutnings og um flutningskjörin.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú er farangursmiði eigi gefinn út eða efni hans er eigi það, sem mælt var, eða hann hefur glatast, og er flutningssamningurinn eigi að síður gildur.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú hefur flytjandi tekið við farangri, án þess að afhenda farangursmiða eða farangursmiði geymir eigi þá vitneskju, sem í c greinir, og hann er eigi heldur festur við eða felldur inn í farmiða, sem geymir vitneskju þá, sem segir í 1. mgr. c 99. gr., og getur flytjandi eigi borið fyrir sig ákvæði 2. mgr. 118. gr. um takmörkun ábyrgðar.
101. gr. Nú er varningur fluttur, og getur flytjandi krafist, að sendandi gefi út og afhendi honum skjal, sem nefnist flugfarmbréf. Sendandi getur og krafist, að flytjandi taki við skjali þessu.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú er flugfarmbréf eigi gefið út, eða það geymir eigi efni það, er mælt var, eða það hefur glatast, og er flutningssamningurinn eigi að síður gildur.
102. gr. Sendandi skal gefa flugfarmbréf út í þremur eintökum og afhenda þau flytjanda ásamt varningi. Á fyrsta eintakið skal rita „Handa flytjanda“, og skal sendandi undirrita það. Á annað eintakið skal rita „Handa viðtakanda“ og skulu bæði sendandi og flytjandi undirrita það. Skal það fylgja varningnum. Þriðja eintakið skal flytjandi undirrita og skila því sendanda, þá er varningnum hefur verið veitt viðtaka.
![](/lagas/hk.jpg)
Flytjandi skal undirrita flugfarmbréf, áður en varningur er færður í loftfar. Undirritun má rita með stimpli. Rétt er, að undirritun sendanda sé prentuð eða letruð með stimpli.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú hefur flytjandi gefið út flugfarmbréf eftir beiðni sendanda, og skal talið, að hann hafi gert það fyrir hönd sendanda, nema annað sannist.
103. gr. Nú eru fleiri en einn hlutir varnings fluttir, og skal sendandi gefa út sérstök flugfarmbréf, enda krefjist flytjandi þess.
104. gr. Í flugfarmbréfi skal greina:
a. Brottfararstað og ákvörðunarstað.
b. Að minnsta kosti einn umsaminn viðkomustað á leiðinni, svo fremi brottfararstaður og ákvörðunarstaður eru í sama ríki og samið er um einn eða fleiri viðkomustaði í öðru ríki.
c. Að flutningurinn megi hlíta ákvæðum Varsjársáttmálans að lögum,
1) sem til líka við sáttmálann takmarka að jafnaði ábyrgð flytjanda á glötun eða tjóni á varningi.
1)„að lögum“ á sennilega að vera „eða lögum“, sbr. 99. gr. 1. mgr. c og 100. gr. 1. mgr. c.
105. gr. Nú er varningur með samþykki flytjanda færður í loftfar, án þess að flugfarmbréf sé gefið út, eða flugfarmbréf geymir eigi vitneskju þá, sem mælt var í 104. gr. c, og getur flytjandi eigi borið fyrir sig ákvæði 2. mgr. 118. gr. um takmörkun ábyrgðar.
106. gr. Sendandi er ábyrgur fyrir tjóni, sem flytjandi eða einhver, sem flytjandi ber ábyrgð gegnt, bíður vegna þess, að frásögn sendanda í flugfarmbréfi um varning geymir eigi þau atriði, sem mælt var, eða er annars röng eða ófullkomin.
107. gr. Flugfarmbréf er gild sönnun fyrir gerð flutningssamnings, viðtöku varnings og flutningsskilmálum, enda séu eigi leiddar sönnur að öðru.
![](/lagas/hk.jpg)
Frásögn flugfarmbréfs um þyngd varnings, umtak, umbúðir og hlutatölu telst rétt, enda séu eigi sönnur leiddar að öðru. Aðrar skýrslur í flugfarmbréfi um magn varnings eða rúmtak eða ástand gilda hins vegar eigi sem sönnun gegn flytjanda, nema hann hafi í viðurvist sendanda kannað réttleik þeirra og staðfest það með áritun á flugfarmbréfið eða skýrslurnar varða sýnilegt ástand vöru.
Réttur til að ráðstafa varningi og afhending hans.
108. gr. Nú fullnægir sendandi skuldbindingum sínum samkvæmt flutningssamningi, og er honum, flytjanda eða öðrum sendendum að meinfangalausu, rétt að ráðstafa varningi þann veg, að hann endurheimtir hann á brottfarar- eða ákvörðunarflugvelli, stöðvar flutning hans, þá er lent er á leiðinni, lætur afhenda hann á ákvörðunarstað eða á leiðinni öðrum aðila en þeim, sem tilgreindur er í flugfarmbréfi sem viðtakandi, eða krefst þess, að hann sé fluttur aftur til brottfararflugvallar. Sendandi skal þó greiða kostnað af þessum ráðstöfunum. Nú er eigi unnt að framkvæma fyrirmæli sendanda, og skal flytjandi tilkynna honum það þegar í stað.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú fer flytjandi eftir fyrirmælum sendanda, án þess að lagt sé fram eintak það af farmbréfi, sem sendanda var skilað, og er flytjandi ábyrgur fyrir tjóni, sem réttur handhafi flugfarmbréfs bíður við það, en framkröfur á flytjandi þó á hendur sendanda.
![](/lagas/hk.jpg)
Réttur sendanda fellur niður, um leið og réttur viðtakanda hefst samkvæmt 109. gr. Nú neitar viðtakandi að taka við flugfarmbréfi eða varningi eða verður fundi hans eigi náð, og öðlast þá sendandi á ný ráðstöfunarrétt á varningnum.
109. gr. Nú er varningurinn kominn á ákvörðunarstað, og getur viðtakandi, sé eigi tilvikum 108. gr. til að dreifa, krafist, að flytjandi láti af hendi við hann flugfarmbréfið og varninginn gegn greiðslu þess, sem ógoldið er, og gegn efndum á flutningsskilmálum þeim, sem í flugfarmbréfi greinir.
![](/lagas/hk.jpg)
Flytjandi skal, þegar er varningur er kominn á leiðarenda, tilkynna það viðtakanda, enda sé eigi öðruvísi samið.
110. gr. Nú viðurkennir flytjandi, að varningur hafi glatast, eða hann er eigi kominn á leiðarenda í síðasta lagi sjö dögum eftir áætlun, og er viðkomanda rétt að neyta þess réttar, er flutningssamningurinn veitir honum, gegn flytjanda.
111. gr. Samningur, sem geymir frávik frá ákvæðum 108.–110. gr., er ógildur, nema hann sé tilfærður í flugfarmbréfi.
112. gr. Sendanda er skylt að gefa þær skýrslur og láta fylgja flugfarmbréfi þau skjöl, sem nauðsynleg eru til fullnægju toll- og lögregluákvæðum, áður en varningur verður afhentur viðtakanda. Sendandi ber gagnvart flytjanda ábyrgð á því tjóni, sem hljótast kann af því, að þessar skýrslur eða skjöl vantar eða þau eru ófullkomin eða eigi í samræmi við settar reglur, nema flytjandi eða starfsmenn hans hafi gerst sekir um yfirsjón eða vanrækslu.
![](/lagas/hk.jpg)
Flytjanda er eigi skylt að rannsaka, hvort þessar skýrslur og skjöl séu rétt eða alger.
Ábyrgð flytjanda.
113. gr. Nú lætur farþegi lífið eða hlýtur líkamsmeiðsl eða heilsutjón af völdum atburðar, sem gerist í loftfari eða þá er farið er upp í loftfar eða úr því, og ber flytjandi ábyrgð á því.
114. gr. Nú spillist eða týnist innritaður farangur eða varningur af völdum atburðar, sem gerist á þeim tíma, er farangurinn eða varningurinn er í vörslum flytjanda, hvort heldur það er á flugvelli, í loftfari eða á hverjum stað öðrum, þá er lent er utan flugvallar, og ber flytjandi ábyrgð á því.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú tekur flutningssamningur einnig til flutninga á láði eða legi utan flugvallar við fermingu, afhendingu eða endurfermingu, og skal hvers konar tjón, sem verður á farangri eða varningi talið hafa orðið á þeim tíma, er í 1. mgr. getur, uns annað sannast.
115. gr. Flytjandi ber ábyrgð á tjóni, sem verður af völdum dráttar við loftflutning farþega, innritaðs farangurs eða varnings.
116. gr. Flytjandi losnar undan ábyrgð, ef hann leiðir sönnur að því, að hann sjálfur og starfsmenn hans hafi gert allar nauðsynlegar varúðarráðstafanir til þess að afstýra tjóni eða það hafi eigi verið á þeirra valdi.
117. gr. Nú sannar flytjandi, að sá, sem fyrir tjóninu varð, hafi sjálfur verið valdur eða samvaldur þess, og má færa skaðabætur niður eða fella þær niður.
118. gr. Nú eru farþegar fluttir, og skal hámark á ábyrgð flytjanda vegna hvers einstaks farþega vera kr. 36.500,00. Semja má þó um hærra hámark ábyrgðar.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú er innritaður farangur eða varningur fluttur, og skal hámark á ábyrgð flytjanda vera kr. 37,00 á kg. Nú hefur farþegi eða sendandi, þá er farangur eða varningur er afhentur flytjanda, tilgreint sérstaklega þá hagsmuni, sem tengdir eru við afhendingu farangurs eða varnings á ákvörðunarstað, og greitt það aukafarmgjald, sem kveðið kann að vera á um, og gildir þá hin tiltekna fjárhæð sem hámark á ábyrgð flytjanda, nema hann sanni, að raunverulegir hagsmunir farþega eða sendanda hafi verið minni. Nú er um að tefla glötun, spjöll eða seinkun á hluta hins innritaða farangurs eða varnings eða einhvers, sem í farangri eða varningi kann að felast, og skal einungis leggja heildarþunga þess varnings, sem þannig stendur á um, til grundvallar við ákvörðun á hámarksábyrgð flytjanda. Ef glötun, spjöll eða seinkun lækkar verðmæti annarra hluta varnings, sem sami farangursmiði eða sama flugfarmbréf tekur til, skal einnig taka heildarþunga þessara varningshluta við ákvörðun á hámarksábyrgð.
![](/lagas/hk.jpg)
Hámarksábyrgð flytjanda á varningi, sem farþegar halda í vörslum sínum, skal vera kr. 730,00 til hvers farþega.
![](/lagas/hk.jpg)
Rétt er dómara að dæma sækjanda málskostnað án tillits til hámarksábyrgðar samkvæmt grein þessari. Þetta gildir þó eigi, ef flytjandi hefur áður en 6 mánuðir eru liðnir, frá því er atburður sá gerðist, er tjónið hlaust af, eða áður mál sé höfðað, boðið sækjanda skriflega skaðabætur, sem eigi eru lægri en dæmd fjárhæð að undanskildum málskostnaði.
![](/lagas/hk.jpg)
Skaðabætur samkvæmt grein þessari skal reikna eftir gullgildi. Nú verða breytingar á gullgildi íslenskrar krónu, því sem skráð er hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum við gildistöku laga þessara, og breytast tilgreindar hámarksbætur í samræmi við hið nýja gullgildi. Í dómsmáli skal reikna eftir gullgildi til íslensks gjaldeyris á dómsuppsögudegi.
119. gr. Ógildur er áskilnaður, sem miðar að því að leysa flytjanda undan ábyrgð eða kveða á um lægri hámarksábyrgð en í 118. gr. segir.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú er varningur fluttur, og er leyfilegt að gera áskilnað um tjón eða spjöll, sem leiðir af eðli varnings eða eðlislægum galla á honum.
120. gr. Nú sannast, að flytjandi eða starfsmenn hans hafa við framkvæmd starfa síns valdið tjóninu, annaðhvort af ásetningi eða af stórfelldu gáleysi samfara vitneskju um, að tjón myndi sennilega af hljótast, og skal eigi beita ákvæðum 118. gr. um hámarksábyrgð.
121. gr. Nú eru starfsmenn flytjanda sóttir til fébóta fyrir skaða, sem þeir hafa við framkvæmd starfa síns valdið af minni háttar gáleysi en því, sem í 120. gr. getur, og má heildarfjárhæð þeirra skaðabóta, sem þeim og flytjanda er gert að greiða, eigi fara fram úr hámarksábyrgð flytjanda.
122. gr. Nú er tekið við innrituðum farangri eða varningi án fyrirvara af hálfu viðtakanda, og skal telja, að farangurinn eða varningurinn hafi verið afhentur í góðu lagi og í samræmi við flutningsskírteini, enda sannist eigi annað.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú hefur farangur eða varningur orðið fyrir spjöllum eða eitthvað af honum glatast, og skal tilkynna það flytjanda, jafnskjótt sem tjónsins verður vart, og í síðasta lagi áður en liðnir eru frá viðtöku sjö dagar, að því er varðar farangur, en fjórtán dagar, að því er til annars varnings tekur. Tilkynningu um seinkun skal gefa, áður en liðinn er tuttugu og einn dagur frá þeim degi að telja, er farangur eða varningur var boðinn viðtakanda til umráða.
![](/lagas/hk.jpg)
Tilkynningu skal skrá á flutningsskírteini eða senda bréflega, áður en frestur er liðinn.
123. gr. Nú er tjón eigi tilkynnt, áður liðnir séu frestir þeir, sem í 122. gr. getur, og fellur niður sérhver krafa á hendur flytjanda, nema hann hafi farið sviksamlega að ráði sínu.
124. gr. Skaðabótamál skal höfða annaðhvort fyrir dómi á þeim stað, þar sem flytjandi býr eða hefur aðalskrifstofu sína eða útibú það, sem gerði flutningssamninginn, eða á ákvörðunarstaðnum.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú tekur Varsjársáttmálinn yfir flutninginn, og verður skaðabótamál einungis höfðað fyrir íslenskum dómstól eða dómstól í ríki, sem gerst hefur aðili að nefndum sáttmála.
125. gr. Réttur til skaðabóta eftir ákvæðum þessa kafla fellur niður, ef mál er eigi höfðað, áður en tvö ár eru liðin frá því er loftfar kom á ákvörðunarstað eða frá þeim degi, er loftfar skyldi koma þangað, eða frá því er flutningur stöðvaðist.
126. gr. Nú eiga fleiri en einn flytjandi, hver á eftir öðrum, að annast flutning, sem ber samkvæmt flutningssamningi eða flutningssamningum að telja einn og sama flutning, og er hver þeirra, þá er hann tekur við farþegum, innrituðum farangri eða varningi, ábyrgur fyrir þeim hluta flutningsstarfans, sem hann á að inna af hendi.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú er um að tefla flutning á innrituðum farangri eða varningi, og getur sendandi einnig beint kröfum sínum gegn fyrsta flytjanda, og sá, sem á rétt til afhendingar, gegn síðasta flytjanda, þótt tjón eða seinkun hafi orðið, meðan varningurinn var í vörslu annars flytjanda.
![](/lagas/hk.jpg)
Ef fleiri flytjendur eru ábyrgir samkvæmt þessu, bera þeir óskipta ábyrgð.
Flutningur með fleiri en eins konar flutningstækjum.
127. gr. Nú fer flutningur að nokkru fram með loftfari og að nokkru með öðru flutningstæki, og taka ákvæði laga þessara einungis til loftflutningsins.
![](/lagas/hk.jpg)
Taka má upp í loftflutningsskjalið skilmálana fyrir hinum greinum flutningsins.
Önnur ákvæði.
128. gr. Ógildir skulu vera fyrirvarar í flutningssamningi og samningar, gerðir áður en tjón verður, þar sem aðilar víkja frá ákvæðunum um þau lög, sem fara skal eftir, eða ákvæðum um varnarþing.
![](/lagas/hk.jpg)
Gerðardómssamningar, gerðir áður en tjón verður, eru einungis gildir, að því er varðar flutning á munum, enda sé gerðardómur háður á einhverjum þeim stað, sem er löglegt varnarþing eftir 124. gr., og sé málið útkljáð samkvæmt ákvæðum Varsjársáttmálans, að því leyti sem ákvæði hans taka til þess.
129. gr. Nú er loftflutningaskjal gert utan Íslands eða varðar loftflutninga milli ríkja, og er viðvörun samkvæmt 99. gr. 1 c, 100. gr. 1 c og 104. gr. c nægilega framkvæmd, ef skjalið ber það greinilega með sér, að flutningurinn geti hlítt Varsjársáttmálanum og að hann takmarki að jafnaði ábyrgð flytjanda í þeim tilvikum, sem viðkomandi ákvæði tekur til.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú er um að tefla loftflutning milli ríkja, sem Varsjársáttmálinn tekur eigi yfir, og getur flytjandi borið fyrir sig takmörkun ábyrgðar samkvæmt 118. gr., jafnvel þótt flutningsskjalið geymi eigi viðvörun þá, sem í 1. mgr. getur.
130. gr. Nú er um að tefla loftferðir innanlands og eigi samið um viðkomu utan lands, og er flugmálaráðherra rétt að gera undantekning frá ákvæðum 1. mgr. 99. gr., 1. mgr. 100. gr. og 1. mgr. 104. gr. um farseðla, farangursmiða og flugfarmbréf.
131. gr. Þá er rætt er um Varsjársáttmálann í lögum þessum, er átt við sáttmála þann um alþjóðaloftflutninga, sem gerður var í Varsjá 12. október 1929, með þeim breytingum, sem á honum urðu samkvæmt sáttmálaauka, undirrituðum í Haag 28. september 1955.
![](/lagas/hk.jpg)
Ákvæði kafla þessa skal eigi beita um milliríkja loftflutninga, sem framkvæmdir eru samkvæmt áskilnaði, gerðum með heimild í viðbótarbókun við 2. gr. Varsjársáttmálans frá 12. október 1929 eða XXVI. gr. Haagsáttmálaaukans frá 28. september 1955.
132. gr. Ákvæði laga þessara hrófla eigi við Varsjársáttmálanum frá 12. október 1929, að svo miklu leyti sem hann heldur gildi sínu í milliríkjaskiptum Íslands og annarra ríkja, sem eigi hafa fullgilt eða játast undir sáttmálaaukann, sem gerður var í Haag 28. september 1955.
X. kafli.
Skaðabætur.
133. gr. Nú hlýst af notkun loftfars skaði á mönnum eða hlutum, sem eru utan loftfarsins, og er eigandi þess eða, eftir því sem við á, aðili sá, sem það er rekið á kostnað hans, skyldur að bæta skaðann fé.
![](/lagas/hk.jpg)
Skaðabótaskyldan fellur niður, ef sannað er, að sá, sem fyrir skaða verður, hefur valdið tjóninu af ásetningi eða stórfelldu gáleysi.
![](/lagas/hk.jpg)
…
1)
1)L. 50/1993, 29. gr.
134. gr. Nú er um að tefla tjón, sem verða á mönnum eða hlutum innan marka viðurkennds flugvallar, og skal eigi beita ákvæðum 1. mgr. 133. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú verður tjón á loftfari eða farmi við árekstur loftfara, og skal beita ákvæðum siglingalaga um árekstur skipa.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú verður við árekstur tveggja eða fleiri loftfara tjón, sem hver þeirra, er bera kostnaðinn af rekstri loftfaranna, á að greiða samkvæmt ákvæði 1. mgr. 133. gr., og eru þeir allir samskulda. Dómstólar skera úr með hliðsjón af ástæðum, hversu mikinn hluta goldinna skaðabóta hver þeirra megi framkrefja úr hendi þess eða þeirra, sem samábyrgir eru.
135. gr. Ákvæði 133. og 134. gr. takmarka að engu þann rétt til skaðabóta, sem leiðir af almennum reglum.
136. gr. …
1)
1)L. 50/1993, 29. gr.
137. gr. Eigandi loftfars, sem nota skal til loftferða samkvæmt lögum þessum, skal taka og halda við vátryggingu eða tryggingu, er örugg telst, til greiðslu skaðabóta, sem falla kunna á hann eða umráðanda loftfarsins vegna tjóns, er verður á mönnum og hlutum utan loftfarsins og stafar af notkun þess. Leita skal viðurkenningar flugmálaráðherra á vátryggingarfélagi og tryggingu.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú fellur vátrygging úr gildi, og ber vátryggingarfélag gagnvart þriðja aðilja ábyrgð á tjóni samkvæmt hljóðan vátryggingarskírteinis í tvo mánuði, frá því er það tilkynnti flugmálaráðherra, að vátryggingin væri niður fallin, enda hafi loftfarið eigi á þeim tíma verið strikað af skrá eða flugleyfi samkvæmt 3. gr. c afturkallað. Rétt er flugmálaráðherra að kveða á um vátryggingu eða aðra tryggingu gegn tjóni á mönnum eða hlutum í loftfari eða við för eða flutning þeirra í loftfar eða úr því og svo gegn tjóni á innrituðum farangri og varningi, meðan flytjandi ber ábyrgð á honum samkvæmt IX. kafla.
![](/lagas/hk.jpg)
Flugmálaráðherra er rétt að setja nánari reglur um vátryggingu eða tryggingu, þar á meðal um afleiðingar þess, að vátryggingu eða tryggingu er eigi haldið í gildi.
XI. kafli.
Flugslys.
Bjargþjónusta.
138. gr. Flugmálaráðherra setur reglur um leit og bjargráð, þau er viðhafa skal, þá er loftfars er saknað, því hlekkist á eða það ferst, þar á meðal um aðstoð þá, sem einstaklingum og fyrirtækjum er skylt að veita við leit og bjargstörf, og um þóknun fyrir slíka aðstoð.
![](/lagas/hk.jpg)
Kostnað, sem ríkissjóður hefur af leit að loftfari, sem er saknað, er flugmálaráðherra rétt að leggja að nokkru eða öllu leyti á eiganda eða umráðanda loftfarsins, enda hnígi rök til þess og það fari eigi í bág við milliríkjasamninga. Sama gildir um kostnað af bjargstarfa, að því leyti, sem hann greiðist eigi með bjarglaunum.
Björgun loftfara.
139. gr. Nú bjargar maður eða stuðlar að björgun á loftfari, sem hlekkst hefur á eða er statt í háska, farangri eða varningi, sem í því er, eða nokkru því, sem telst til slíks loftfars, farangurs eða varnings, og á hann, hvort heldur bjargað er í lofti, á láði eða legi, rétt til bjarglauna samkvæmt gildandi reglum um björgun skipa og varnings, sem til þeirra telst. Nú bjargar maður eða stuðlar að björgun á mannslífum úr þeim háska, sem tilefni til björgunar varð, og á hann kröfu til hlutdeildar í bjarglaununum.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú hefur maður stofnað til óvenjulegra útgjalda, sem nauðsynleg voru til varðveislu á loftfari eða varningi úr því, og á hann rétt til, að honum séu endurgreidd nefnd útgjöld, enda hafi hann eigi breytt gegn beinu og réttmætu banni flugstjóra þess, sem í hlut á.
![](/lagas/hk.jpg)
Krafa um bjarglaun eða endurgjald fyrir téð óvenjuleg útgjöld má eigi fara fram úr verðmæti því, sem bjargað var, svo sem loftfari ásamt flutningsgjaldi fyrir farangur, varning og farþega.
140. gr. Eigandi bjargaðs varnings ábyrgist einungis með verðmæti þess, sem bjargað var. Krafa um bjarglaun er tryggð með veði í loftfari, farangri og varningi, sem gengur fyrir öllum öðrum veðböndum. Veðkrafa, sem stafar af síðari atburði, gengur fyrir veðkröfu, sem stafar af fyrri atburði.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú er farangur eða varningur af hendi látinn, og fellur þá veðrétturinn niður. Veðréttur í loftfari fellur niður eftir þrjá mánuði, ef hann er eigi þinglesinn og fjárhæð hans samþykkt eða mál höfðað til staðfestu veðrétti. Mál má höfða þar sem bjargstarfa lauk eða þar sem loftfar og varningur er.
Rannsókn á flugslysum.
141.–147. gr. …
1)
1)L. 59/1996, 19. gr.
XII. kafli.
Ýmis ákvæði.
148. gr. Nú er ástæða til að ætla, þá er loftfar ætlar á loft, að það sé eigi lofthæft eða tilhlýðilega áhöfn skipað eða það muni verða notað andstætt ákvæðum laga þessara eða reglum, settum samkvæmt þeim, og er þeim handhafa valds, sem í hlut á, rétt að leggja bann við för loftfarsins og, beri nauðsyn til, aftra, að það hefji sig upp af flugvelli, uns úr er bætt. Flugmálastjórnin eða sá, sem hún til þess veitir vald, tekur ákvörðun í þessu efni. Ákvörðun skal tafarlaust leggja fyrir flugmálastjórnina, ef hún sjálf hefur eigi tekið hana.
149. gr. Réttum umráðanda flugvallar, sem er heimill almenningi, er rétt að aftra för loftfars af flugvellinum, uns eftirgjald eftir síðustu lendingu og notkun loftfarsins af vellinum er greitt eða trygging sett fyrir greiðslu þess.
150. gr. Rétt er flugmálaráðherra til aukins öryggis við loftferðir að setja reglur um meðferð, geymslu og afhending eldsneytis
1) og annars, sem til búnaðar loftfara þarf, og um eftirlit með því, að reglurnar séu haldnar.
1)Rg. 282/1980, sbr. 466/1991.
151. gr. Eigandi eða notandi loftfars og réttur umráðandi viðurkennds flugvallar eða annars loftferðavirkis er skyldur að láta í té þá vitneskju, sem flugmálastjórnin krefst til að geta rækt störf sín. Sömu skyldu hefur forráðandi viðurkenndrar starfsemi samkvæmt 33. gr. eða annarrar starfsemi, sem rekin er samkvæmt viðurkenningu eftir lögum þessum eða reglum, settum samkvæmt þeim.
![](/lagas/hk.jpg)
Rétt er flugmálastjórninni að skýra þriðja aðilja frá vitneskju, sem hún hefur fengið með framangreindum hætti, að því leyti sem það er nauðsynlegt samkvæmt alþjóðasamningi. Að öðru leyti er rétt að skýra frá slíkri vitneskju eða birta hana almenningi, enda sé eigi um að tefla trúnaðarmál. Nú hefur sá, sem telur sig eiga rétt til launungar, mótmælt því, að vitneskja fari lengra eða sé birt, og verður það einungis samkvæmt úrskurði flugmálaráðherra.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú hefur maður fengið greinda vitneskju í starfa sínum, og hefur hann þagnarskyldu, að því leyti sem vitneskjan eigi má fara lengra eða hana má eigi birta.
152. gr. Flugmálaráðherra kveður á um gjöld, sem inna ber af hendi fyrir stjórnvaldsgerðir, sem framkvæmdar eru eftir lögum þessum.
![](/lagas/hk.jpg)
Rétt er flugmálaráðherra að ákveða, að sá, sem hefur hag af gerðum þeim, sem í 1. mgr. segir, greiði kostnað af þeim.
![](/lagas/hk.jpg)
Gjöld samkvæmt grein þessari má heimta með lögtaki.
XIII. kafli.
Refsiákvæði.
153. gr. Nú notar eigandi eða umráðandi (notandi) loftfars, sem eigi er íslenskt og eigi hefur erlent þjóðerni með þeim hætti, er í b-lið 3. gr. segir, loftfarið án sérstaks leyfis til loftferða yfir íslensku yfirráðasvæði eða skeytir eigi skilyrðum fyrir veittu leyfi, og skal hann sæta sektum eða varðhaldi.
154. gr. Nú veitir maður rangar eða ófullnægjandi skýrslur, þá er hann:
a. tilkynnir loftfar til skrásetningar,
b. æskir þess, að það sé af skrá strikað,
c. sækir um leyfi samkvæmt síðustu málsgrein 7. gr. eða b-lið 13. gr., og skal hann sæta sektum eða varðhaldi. Sömu refsingu skal hver sá sæta, sem leiðir hjá sér að tilkynna skrásetningarstjóra eitthvert það atriði, sem boðið er í lögum þessum, eða tilkynnir eitthvert atriði ranglega eða ófullnægjandi.
155. gr. Nú nemur maður ranglega af loftfari þjóðernismerki eða skrásetningar eða annað lögmælt merki eða setur rangt merki á loftfar, og skal hann sæta sektum eða varðhaldi.
![](/lagas/hk.jpg)
Sömu refsingu skal eigandi eða umráðandi (notandi) loftfars sæta, ef hann notar loftfar til loftferða, þótt það vanti þjóðernismerki eða skrásetningar eða hafi röng merki.
156. gr. Nú notar eigandi eða umráðandi (notandi) loftfars það til loftferða, þótt það sé eigi lofthæft eða tilhlýðilega áhöfn skipað, tygjað eða fermt til þeirrar farar, sem því er ætlað að fara, eða það er af öðrum ástæðum eigi þannig búið, að það fullnægi nauðsynlegum öryggiskröfum, og eigi er veitt leyfi til notkunarinnar samkvæmt lögum þessum, og skal hann sæta sektum, varðhaldi eða fangelsi allt að 3 árum.
157. gr. Ef maður hefur í frammi óhæfilegt atferli við smíð loftfars, fylgitækja þess og varahluta eða við viðhald þess, viðgerð eða breytingar á því, og veldur með því hættu á því, að loftfarið verði tekið í notkun, án þess að fullnægt sé kröfum til öryggis, skal hann sæta sektum, varðhaldi eða fangelsi allt að 3 árum.
![](/lagas/hk.jpg)
Sömu refsingu skal sá sæta, sem viðhefur með nefndum hætti óhæfilegt atferli við búnað loftfars, fermingu eða aðra tygjun.
158. gr. Nú notar eigandi eða umráðandi (notandi) loftfars það til loftferða, þótt eigi sé fyrir hendi lögmælt vátrygging eða önnur trygging, er það varðar samkvæmt 137. gr., og skal hann sæta sektum eða varðhaldi.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú notar hann loftfarið, án þess að fyrir hendi séu flugskjöl, sem boðin eru í lögum þessum eða reglum, settum samkvæmt þeim, og skal hann sæta sektum eða varðhaldi allt að 8 mánuðum.
159. gr. Flugstjóri, sem hefur á hendi stjórn loftfars í loftferð, þá er svo stendur á sem segir í 153. gr., 2. mgr. 155. gr., 156. gr. eða 158. gr., skal sæta sömu refsingu sem eigandi eða umráðandi (notandi).
160. gr. Nú innir maður af hendi starfa í loftfari, án þess hann hafi gilt skírteini eða leyfi, sem lög þessi mæla, eða sé slíks skírteinis eigi krafist, án þess að fullnægja þeim skilyrðum, sem sett eru um starfann, og skal hann sæta sektum eða varðhaldi.
161. gr. Ef flugverji hlýðir eigi við starfann skipunum yfirboðara síns, skal hann sæta sektum eða varðhaldi allt að 6 mánuðum.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú hefur hann með neitun sinni um hlýðni stofnað loftfari eða mannslífi í hættu eða hann neitar að hlýða, þrátt fyrir það þótt skipan sé endurtekin, eða séu sakir mjög miklar, og má beita varðhaldi eða fangelsi allt að 4 árum.
162. gr. Nú innir maður af hendi starfa í loftfari eða reynir það andstætt ákvæðum 1. mgr. 52. gr., og skal hann sæta sektum, varðhaldi eða fangelsi allt að 3 árum. Ef hann framkvæmir starfa með áhrifum áfengis eða annars æsandi eða deyfandi lyfs eða hann hefur brotið gegn ákvæði 3. mgr. 52. gr., skal beita varðhaldi eða fangelsi.
163. gr. Nú brýtur maður gegn reglum, sem flugmálaráðherra hefur sett til að afstýra árekstri milli loftfara eða öðrum flugslysum eða til að tryggja fólk gegn hættum og trafala af loftferðum, og skal hann sæta sektum, varðhaldi eða fangelsi allt að 3 árum.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú víkur maður af flugleið, sem ákveðin er samkvæmt 90. gr., eða brýtur gegn reglum,
1) sem flugmálaráðherra setur loftförum, er fljúga inn á íslenskt yfirráðasvæði, og skal hann sæta sektum eða varðhaldi.
1)Rg. 263/1986.
164. gr. Nú hefur maður á hendi stjórn loftfars á loftbraut eða öðru svæði, þar sem flugumferð hlítir sérstakri skipan, en fer eigi eftir eða brýtur gegn leiðbeiningum flugumferðarstjórnar, sem honum er skylt að hlýða, og skal hann sæta sektum, varðhaldi eða fangelsi allt að 3 árum.
![](/lagas/hk.jpg)
Sömu refsingu skal sá flugstjóri sæta, sem brýtur gegn ákvæðum 91. gr. um lendingarskyldu.
165. gr. Ef eigandi eða umráðandi (notandi) loftfars brýtur gegn ákvæðum 1. mgr. 92. gr. um flutning hergagna eða reglum, sem settar hafa verið samkvæmt 2. mgr. sömu greinar um flutning annars varnings, skal hann sæta sektum eða varðhaldi eða fangelsi allt að 2 árum.
![](/lagas/hk.jpg)
Sömu refsingu skal flugstjóri sæta, sem stjórnar loftfari, þá er það er notað til ólöglegra flutninga, þeirra er í 1. mgr. þessarar greinar getur.
166. gr. Nú brýtur maður gegn boði forseta Íslands samkvæmt 4. gr., og skal hann sæta sektum, varðhaldi eða fangelsi allt að 2 árum.
167. gr. Nú lendir loftfar í háska, og flugstjóri gerir eigi allt, sem honum er unnt til að bjarga loftfari, mönnum og varningi, sem í því er, eða gerir eigi annað það, sem honum er skylt samkvæmt 49. gr., og skal hann sæta sektum, varðhaldi eða fangelsi allt að 2 árum.
168. gr. Nú veldur flugverji því með smygli eða með öðru athæfi, sem brýtur í bág við starfsskyldur hans, að yfir loftfari eða varningi vofir kyrrsetning eða hald af hendi íslenskra eða erlendra yfirvalda, og skal hann sæta sektum eða varðhaldi allt að 1 ári.
169. gr. Ef flugstjóri eða annar flugverji lætur fyrir farast að gera skyldu sína um gerð, íritun eða geymslu flugskjala eða um vist flugskjala, skírteina eða annarra skjala í loftfari, skal hann sæta sektum eða varðhaldi allt að 5 mánuðum.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú framkvæmir hann ranga íritun í flugskjöl eða veldur því á annan hátt, að efni slíks skjals er rangt, og skal hann sæta sektum eða varðhaldi eða fangelsi allt að 2 árum.
170. gr. Nú vanrækir flugstjóri eða flugverji starfsskyldur sínar með ítrekuðum eða óhæfilegum hætti eða fremur annars konar óhæfu í starfa sínum, án þess þó að ákvæði 153. til 169. gr. taki til, og skal hann sæta sektum eða varðhaldi.
171. gr. Ef umráðandi flugvallar eða annars flugvirkis lætur það vera í notkun, þótt það fullnægi eigi settum skilyrðum eða hafi eigi viðurkenningu flugmálastjórnar, þá er slíkrar viðurkenningar er krafist, skal hann sæta sektum eða varðhaldi.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú brýtur hann gegn ákvæðum 79. gr., og skal hann sæta sektum.
172. gr. Nú hlítir sá, sem í hlut á, eigi forræðisskerðingu samkvæmt 66., 67., 71., 72., 73., 74. og 75. gr., og skal hann sæta sektum eða varðhaldi allt að 1 ári. Refsa skal fyrir tilraun sem fullframið brot.
173. gr. Nú stundar maður loftferðastarfsemi eða aðra starfsemi án sérleyfis, leyfis eða viðurkenningar, sem krafist er í lögum þessum eða reglum, settum samkvæmt þeim, og skal hann sæta sektum eða varðhaldi.
174. gr. Ef maður brýtur bann samkvæmt 148. gr. við för loftfars af flugvelli, skal hann sæta sektum eða varðhaldi. Refsa skal fyrir tilraun sem fullframið brot.
175. gr. Ef maður tálmar framkvæmd skoðunar, eftirlits eða annarrar rannsóknar samkvæmt lögum þessum, eða reglum settum samkvæmt þeim, eða veitir eigi aðstoð við slíka rannsókn, þá er þess er krafist með heimild í lögum eða reglunum, skal hann sæta sektum eða varðhaldi.
![](/lagas/hk.jpg)
Sömu refsingu skal sá sæta, sem andstætt ákvæðum 143. gr. hróflar við loftfari, flaki af því eða öðru eftir flugslys. Fyrir tilraun skal refsa sem fullframið brot.
176. gr. Nú er manni boðið samkvæmt 138. gr. að veita aðstoð sína við leit og bjargstörf, en hann veitir eigi þá þjónustu eða rækir annars eigi skyldur sínar, og skal hann sæta sektum.
177. gr. Nú lætur maður í öðrum tilvikum en í 154. gr. getur farast fyrir að veita tilkynningu, sem boðin er í lögum þessum eða reglum, settum samkvæmt þeim, eða hann veitir ranga eða ófullnægjandi tilkynningu eða skýrslur, og skal hann sæta sektum eða varðhaldi.
![](/lagas/hk.jpg)
Brot gegn ákvæðum IX. kafla varðar eigi refsingu samkvæmt þessari grein.
178. gr. Nú vanrækir maður að afhenda þjóðernis- eða skrásetningarskírteini, lofthæfnisskírteini eða annað skírteini eða skjal, sem afhenda skal samkvæmt lögum þessum eða reglum, settum eftir þeim, og skal hann sæta sektum.
179. gr. Ef maður brýtur gegn reglum, settum samkvæmt lögum þessum, skal hann sæta sektum eða varðhaldi allt að 6 mánuðum, enda taki eigi önnur refsiákvæði þessa kafla yfir atferlið.
180. gr. Nú hlýst af broti, sem lýst er í 156., 157., 159., 161.–164., 167. og 170.–172. gr., mannslát eða tjón til mikilla muna á líkama manns, heilsu eða eign, og má beita fangelsi allt að 5 árum.
![](/lagas/hk.jpg)
Þessari auknu refsingu má einnig beita fyrir brot gegn 158. gr., ef maður verður fyrir fjártjóni til mikilla muna, sökum þess að eigi hefur verið fyrir hendi lögmælt vátrygging eða önnur trygging.
181. gr. Ef brot, sem lýst er í 153.–179. gr., er framið af gáleysi, skal beita sektum eða varðhaldi allt að 1 ári, þó þannig, að aldrei má beita þyngri refsingu en fyrir ásetningsbrot.
182. gr. Ákvæðum almennra hegningarlaga um hlutdeild skal beita.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú taka hegningarákvæði þessa kafla til eiganda eða umráðanda (notanda) loftfars, umráðanda flugvallar eða annars flugvirkis eða til starfsherra samkvæmt 173. gr., og skulu undirmenn látnir sæta refsingu samkvæmt þeim, þá er þeir gerast brotlegir með þeim hætti, er í hegningarákvæðunum segir. Hegningarákvæðin taka með samsvarandi hætti yfir stjórnarmenn og aðra trúnaðarmenn félaga og annarra lögaðilja.
183. gr. Nú hefur maður, sem er í fyrirsvari félags, stofnunar, samtaka eða annars lögaðilja, framið athæfi, sem refsivert er samkvæmt kafla þessum, og er rétt að dæma nefndum lögaðilja fésekt og missi starfsréttinda, enda sé brotið drýgt til hagsbóta lögaðiljanum eða hann hafi haft ágóða til muna af brotinu.
Um sviptingu réttinda.
184. gr. Svipta skal flugstjóra eða flugverja með dómi rétti til að starfa í loftfari, þá er hann hefur rækt starfa sinn á mjög vítaverðan hátt eða telja verður með hliðsjón af eðli mistaka hans eða atferli við starfann varhugavert af öryggisástæðum, að hann starfi í loftfari.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú brýtur maður gegn ákvæðum 52. gr. og starfar síðan eða reynir að starfa í loftfari, og skal svipta hann með dómi rétti til slíkra starfa.
![](/lagas/hk.jpg)
Svipting réttar skal vera um ákveðinn tíma, eigi skemur en 6 mánuði, eða að fullu og öllu, ef miklar sakir eru. Svipting réttar samkvæmt 2. mgr. skal þó að jafnaði eigi vera styttri en 1 ár. Nú hefur maður verið sviptur rétti um stundarsakir samkvæmt ákvæðum 5. mgr. hér á eftir, og skal ákveða í dómi, hvort sá tími dragist frá endanlegum sviptingartíma.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú hefur maður verið sviptur rétti til að starfa í loftfari eða til að öðlast hann um lengri tíma en 3 ár, og má bera undir þann dómstól, sem dæmt hafði til fullnaðar sviptingu réttar, kröfu um endurheimtu hans, þótt sviptingartíminn sé eigi runninn út. Mál skal reka að hætti opinberra mála, þó þannig, að hinn dómfelldi er sóknaraðili, en ákæruvaldið varnaraðili. Slíkt málskot má í fyrsta lagi verða, þá er 3 ár eru liðin frá uppsögu fullnaðardóms um sviptingu réttar. Réttur verður einungis endurheimtur, þá er sérstakar ástæður mæla með því. Nú hefur sóknaraðili áður verið sviptur með dómi rétti til að starfa í loftfari, og verður rétturinn í undantekningartilvikum einungis dæmdur honum aftur og í fyrsta lagi, þá er 6 ár eru liðin frá uppsögu þess dóms, er svipti hann réttindum.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú telur flugmálastjórnin, að efni séu til að svipta mann rétti til að starfa í loftfari, og er henni rétt að svipta hann réttinum til bráðabirgða, þó svo að dómari sá, sem málið ber undir, getur, hvenær sem er og áður málið er dæmt til fullnaðar, ógilt ákvörðun flugmálastjórnar.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú er kveðinn upp sýknudómur í héraði og ákæruvaldið áfrýjar honum, og er því rétt í kærumáli að æskja dóms Hæstaréttar, að ákærði sé sviptur réttindum, meðan á áfrýjun stendur, enda séu gildar ástæður til.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú er maður sviptur rétti til starfa í loftfari til bráðabirgða eða með dómi til fullnaðar, og skal flugmálastjórnin taka skírteini hans í sínar vörslur.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú hefur manni, sem hefur íslenskt ríkisfang eða íslenskt heimilisfang, verið refsað erlendis fyrir atferli, sem leitt hefði samkvæmt grein þessari til sviptingar á rétti til að starfa í loftfari, ef mál hefði dæmt verið eftir lögum þessum, og er rétt að krefjast slíkrar sviptingar á réttindum í opinberu máli hér á landi. Ákvæðum greinar þessarar skal þá beita með samsvarandi hætti.
![](/lagas/hk.jpg)
Ákvæðum 1.–7. mgr. skal með samsvarandi hætti beita um menn, sem starfa þann hafa á hendi, er í 81. gr. getur.
XIV. kafli.
Sérreglur.
185. gr. Flugmálaráðherra er rétt að undanþiggja ákvæðum laga þessara eða setja sérreglur um loftför, sem eigi hafa stjórnanda innan borðs eða eigi eru knúin fram af hreyfli eða eru annars sérstakrar tegundar, enda sé öryggi loftferða eigi teflt í tvísýnu né gildar ástæður standi í vegi. Þó verður eigi með þessum hætti gerð breyting á ákvæðum einkaréttarlegs eðlis né refsiákvæðum.
![](/lagas/hk.jpg)
Flugmálaráðherra er og rétt að setja reglur um tæki, sem ætluð eru til að hreyfast um loftið, en eru eigi loftför.
186. gr. Flugmálaráðherra er rétt að ákveða, að erlend loftför, sem íslenskur aðili notar eða ræður yfir, skuli lúta tilteknum ákvæðum í lögum þessum og reglum, settum samkvæmt þeim, sem varða íslensk loftför.
1)
![](/lagas/hk.jpg)
Rétt er ráðherra, þá er skilyrðum 1. mgr. er fullnægt, að ákveða, að loftfarið skuli teljast íslenskt eftir 2. tölul.
4. gr. laga nr. 19/1940.
1)Rg. um vöruflutninga með loftförum, 51/1976, sbr. 562/1987. Rg. um meðalþunga o.fl., 52/1976, sbr. 394/1984. Rg. um mannflutninga í loftförum, sbr. 53/1976, sbr. 293/1979, 443/1979, 251/1984 og 33/1993. Rg. um flutninga hreyfiskerts fólks með stórum flugvélum, 442/1979. Rg. um öruggan flutning hættulegs varnings flugleiðis, 322/1990. Rg. um lágmarksafkastagetu flugvéla, 263/1986. Rg. um lágmarksbúnað loftfara nr. 627/1983, sbr. 396/1985 og 254/1986. Rg. um flutning hergagna með loftförum, 348/1983. Rg. 443/1976, sbr. 433/1979 og 478/1982 (skoðanir, viðhald og viðgerðir loftfara). Rg. 248/1995 (um tilkynningarskyldu).
187. gr. Flugmálaráðherra ákveður,
1) hverjir fari með vald flugmálastjórnar eftir lögum þessum, að því leyti sem sérlög skipa eigi því efni.
1)Rg. 441/1997.
188. gr. Flugmálaráðherra er rétt að setja reglugerð til nánari fyllingar lögum þessum.
1)
1)Rg. um vöruflutninga með loftförum, 51/1976, sbr. 562/1987. Rg. um meðalþunga o.fl., 52/1976, sbr. 394/1984. Rg. um mannflutninga í loftförum, sbr. 53/1976, sbr. 293/1979, 443/1979, 251/1984, 33/1993 og 86/1995. Rg. um fallhlífastökk, 440/1976, sbr. 479/1982. Rg. um flutning hreyfiskerts fólks með stórum flugvélum, 442/1979. Rg. um öruggan flutning hættulegs varnings flugleiðis, 322/1990. Rg. um heimasmíði loftfara, 216/1982. Rg. um Flugmálastjórn, 292/1993. Rg. um flug loftfara í millilandaflugi um íslenska lofthelgi, 20/1985. Rg. um fis, 555/1987, sbr. 286/1991.
Augl. 176/1983. Rg. 443/1976, sbr. 433/1979 og 478/1982 (skoðanir, viðhald og viðgerðir loftfara). Rg. 442/1976 (flugsýningar og flugkeppni). Rg. 348/1983 (flutningur hergagna með loftförum). Rg. 237/1990 (starfsreglur fyrir flugeftirlitsnefnd). Rg. um skírteini gefin út af Flugmálastjórn nr. 344/1990, sbr. 387/1997. Rg. 488/1997 (um almannaflug). Rg. 641/1991, sbr. 43/1992, 109/1992, 47/1993, 432/1993, 139/1996, 250/1996 og 479/1996 (um flutningaflug).
Augl. 375/1992, sbr.
232/1994.
Augl. 567/1993.
Augl. 102/1994.
Augl. 439/1994.
Augl. 477/1994. Rg. 336/1995. Rg. 185/1997 (um leiguflug til og frá Íslandi).
Augl. 199/1997.
Augl. B 575/1997.
Augl. 650/1997.
Augl. 651/1997.
XV. kafli.
189. gr. Ákvæði 137. gr. taka eigi til loftfara íslenska ríkisins.
![](/lagas/hk.jpg)
Flugmálaráðherra er rétt að undanþiggja loftför þessi öðrum ákvæðum laganna, þó hvorki ákvæðum einkaréttarlegs eðlis né refsiákvæðum.
190. gr. …