Lagasafn. Íslensk lög 1. febrúar 1998. Útgáfa 122a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um meðferð sjávarafurða og eftirlit með framleiðslu þeirra
1992 nr. 93 20. nóvember
I. kafli.
Almenn ákvæði.
1. gr. Tilgangur laga þessara er að tryggja neytendum að íslenskar sjávarafurðir séu heilnæmar, standist settar kröfur um gæði, séu framleiddar við fullnægjandi hreinlætisaðstæður og að merkingar og upplýsingar um þær séu fullnægjandi.
2. gr. Sjávarafli telst samkvæmt lögum þessum öll sjávardýr önnur en spendýr, þar með talin skrápdýr, liðdýr og lindýr. Fiskafurðir teljast matvæli sem unnin eru að öllu leyti eða að hluta úr sjávarafla. Sjávarafurðir teljast sjávarafli og fiskafurðir eins og skilgreint er hér að framan, svo og fóðurvörur unnar úr fiski eða fiskúrgangi.
3. gr. Lög þessi taka til veiða og hagnýtingar á sjávarafurðum, þar með talið til löndunar, flutnings, meðferðar, geymslu, vinnslu og útflutnings og jafnframt til eftirlits með slátrun, vinnslu og pökkun hafbeitar- , vatna- og eldisfisks. Lögin taka einnig til innfluttra sjávarafurða sem ætlaðar eru til umpökkunar eða vinnslu hér á landi. Lögin taka ekki til smásöluverslunar innan lands.
4. gr. Fiskistofa annast framkvæmd laga þessara og reglna settra með stoð í þeim.
II. kafli.
Opinberar kröfur.
5. gr. Sjávarafurðir, sem ætlaðar eru til manneldis, skulu vera heilnæmar, ómengaðar og uppfylla að öðru leyti skilgreindar kröfur.
![](/lagas/hk.jpg)
Óheimilt er að nýta sjávarafurðir sem mengaðar eru hættulegum efnum til fóðurframleiðslu.
![](/lagas/hk.jpg)
Sjávarútvegsráðuneytið getur bannað hagnýtingu sjávarafla af hafsvæðum sem talin eru menguð.
![](/lagas/hk.jpg)
Sjávarútvegsráðherra setur reglur um efni þessarar greinar, þar á meðal um leyfilegt hámark gerla, niðurbrotsefna og mengandi efna í sjávarafurðum sem ætlaðar eru til útflutnings.
6. gr. [Við útflutning sjávarafurða sem fluttar hafa verið inn til landsins til vinnslu eða umpökkunar skal upprunalands hráefnis getið í fylgiskjölum.]
1) Halda skal innfluttum sjávarafurðum aðgreindum frá innlendum uns þær eru fluttar úr landi. [Þó er ráðherra heimilt að kveða á um í reglugerð í hvaða tilvikum sé ekki krafist slíkrar aðgreiningar.]
2)
![](/lagas/hk.jpg)
…
1)
1)L. 89/1997, 1. gr. Breytingin tekur gildi 1. nóvember 1998, sbr. l. 114/1997, 1. gr. 2)L. 58/1994, 1. gr.
7. gr. Geymslu og flutningi sjávarafurða skal haga í samræmi við eðli þeirra og eiginleika.
![](/lagas/hk.jpg)
Fyrirtæki, sem upp eru talin í 12. gr. laganna, skulu fullnægja kröfum um hreinlæti og búnað.
8. gr. Í sjávarafurðir til neyslu innan lands má einungis nota þau aukefni og í því magni sem íslensk yfirvöld leyfa. Í sjávarafurðir, sem ætlaðar eru til útflutnings, má einungis nota þau aukefni og í því magni sem leyft er í viðkomandi markaðslandi.
![](/lagas/hk.jpg)
Ílát, umbúðir og aðrir fletir, sem sjávarafurðir koma í snertingu við, skulu vera úr efnum sem samþykkt eru af íslenskum yfirvöldum.
![](/lagas/hk.jpg)
Óheimilt er að nota til þrifa og gerileyðingar önnur efni en þau sem íslensk heilbrigðisyfirvöld heimila.
![](/lagas/hk.jpg)
Sjávarútvegsráðherra getur með reglugerð sett nánari ákvæði um notkun hvers kyns efna sem komist gætu í snertingu við sjávarafurðir.
9. gr. Vatn, sem notað er til þvotta, þrifa, ísframleiðslu og við framleiðslu sjávarafurða, skal uppfylla kröfur íslenskra yfirvalda um gæði drykkjarvatns. Nota má hreinan sjó uppfylli hann sömu kröfur varðandi heilnæmi.
10. gr. Sjávarafurðir skulu vera rétt og greinilega merktar þannig að þær upplýsingar, sem fram koma, séu ekki villandi. [Á umbúðum skal koma fram leyfisnúmer vinnslustöðva þannig að unnt sé að rekja uppruna afurðanna til framleiðandans. Sé afurðin send ópökkuð skulu sömu upplýsingar koma fram í fylgiskjölum.]
1) Merkingar skulu að öðru leyti vera í samræmi við kröfur sem gerðar eru í viðkomandi markaðslandi.
1)L. 89/1997, 2. gr. Breytingin tekur gildi 1. nóvember 1998, sbr. l. 114/1997, 1. gr.
11. gr. Óheimilt er að vinna, pakka, dreifa eða flytja úr landi sjávarafurðir sem ekki uppfylla settar kröfur um gæði, heilnæmi, aukefni, umbúðir og merkingar samkvæmt lögum þessum eða reglugerðum settum með stoð í þeim. Þetta gildir einnig um afurðir sem líklegt er að uppfylli ekki settar kröfur þegar þær koma á áfangastað.
III. kafli.
Leyfisveitingar og eftirlit.
12. gr. Vinnslustöðvar, lagmetisiðjur, skip sem leyfi hafa til veiða í atvinnuskyni, sbr.
lög nr. 38/1990, skip sem vinna afla um borð, uppboðsmarkaðir fyrir sjávarafla og fiskgeymslur sem ekki eru hlutar af fiskvinnslufyrirtæki, fiskimjölsverksmiðjur og framleiðendur dýrafóðurs úr sjávarafurðum skulu hafa tölusett vinnsluleyfi til staðfestingar því að fullnægt sé settum skilyrðum.
![](/lagas/hk.jpg)
Eldisfiski má aðeins slátra með leyfi yfirdýralæknis og með þeim skilmálum sem hann setur. Fiskistofa gefur út leyfi fyrir vinnslu og pökkun hafbeitar- og eldisfisks.
![](/lagas/hk.jpg)
Fiskistofa veitir vinnsluleyfi samkvæmt þessari grein að uppfylltum kröfum um hreinlæti, búnað og innra eftirlit, sbr. 13. gr., auk samnings við viðurkennda skoðunarstofu, sbr. 14. gr. Vinnsluleyfi má binda framleiðslu tilgreindra afurða.
![](/lagas/hk.jpg)
Óheimilt er að veiða, vinna, geyma sjávarafurðir eða starfrækja uppboðsmarkaði án vinnsluleyfis.
![](/lagas/hk.jpg)
Sjávarútvegsráðherra setur með reglugerð nánari skilyrði fyrir leyfisveitingum samkvæmt þessari grein.
13. gr. Forsvarsmenn þeirra aðila, sem falla undir ákvæði laga þessara, sbr. 12. gr., bera ábyrgð á því að sett sé á fót og starfsrækt innra eftirlit
1) með framleiðslu. Innra eftirlit fyrirtækisins skal miðast við umfang reksturs og byggt á eftirfarandi meginatriðum:
1. Að skráð séu með tilliti til eðlis starfseminnar þau atriði sem farið geta úrskeiðis eða valdið skaða á afurðum, svo sem við veiðar, framleiðslu, flutning eða geymslu.
2. Að á staðnum sé starfsmaður með sérþekkingu á viðkomandi framleiðslu og fyrir hendi séu skráðar vinnureglur, lýsing á skiptingu ábyrgðar í viðkomandi fyrirtæki og til hvaða aðgerða grípa skuli sé aðstæðum ábótavant eða ef sjávarafurðir uppfylla ekki settar kröfur.
3. Að tekin séu reglulega sýni í framleiðslunni til greiningar á viðurkenndri rannsóknastofu til að sannprófa að aðferðir við þrif og gerileyðingu séu fullnægjandi.
4. Að haldin sé aðgengileg skrá um afla, framleiðslu og birgðir.
5. Að teknar séu upp skráðar vinnureglur til að fylgjast með og hafa stjórn á þeim atriðum sem getið er í 1.–4. tölul.
![](/lagas/hk.jpg)
Niðurstöður eftirlits, rannsókna og prófana skal varðveita a.m.k. einu ári lengur en geymsluþol vörunnar segir til um, þó aldrei skemur en í tvö ár.
1)Rg. 558/1997.
14. gr. Fyrirtækjum og útgerðum skipa, sem falla undir ákvæði 12. gr., er skylt að hafa samning við viðurkennda skoðunarstofu. Ráðherra er þó heimilt að veita undanþágur frá þessu skilyrði mæli sérstakar ástæður með því.
![](/lagas/hk.jpg)
Fiskistofa eða annar aðili samkvæmt ákvörðun ráðherra veitir skoðunarstofum viðurkenningu að uppfylltum settum skilyrðum. Þær skulu fylgjast reglulega með hreinlæti, búnaði og innra eftirliti fyrirtækja og skipa. Skoðunarstofur fylgjast með því að önnur ákvæði laga þessara og reglna settra með stoð í þeim séu haldin og veita Fiskistofu upplýsingar um starfsemi og ástand fyrirtækja.
![](/lagas/hk.jpg)
Fiskistofa fylgist með starfi skoðunarstofa og sannreynir að þær ræki skyldur sínar á fullnægjandi hátt. Verði misbrestur þar á, vanræki þær upplýsingaskyldu sína eða gefi rangar upplýsingar veitir Fiskistofa áminningu eða sviptir þær viðurkenningu ef sakir eru miklar.
![](/lagas/hk.jpg)
Við veitingu viðurkenninga skal lagt mat á hæfni, áreiðanleika og skipulag skoðunarstofu.
![](/lagas/hk.jpg)
Sjávarútvegsráðherra setur nánari reglur um innra eftirlit og starfsemi skoðunarstofa.
15. gr. Forsvarsmönnum fyrirtækja sem 12. gr. tekur til og útflytjendum sjávarafurða er skylt að veita Fiskistofu og samningsbundinni skoðunarstofu allar þær upplýsingar og þá aðstoð sem nauðsynleg er við framkvæmd eftirlits og skoðunar, þar með talinn aðgang að hverjum þeim stað þar sem sjávarafurðir eru unnar eða geymdar. Fiskistofa og skoðunarstofur fara með upplýsingar þær sem leynt eiga að fara sem trúnaðarmál.
![](/lagas/hk.jpg)
[Eftirlitsmönnum eftirlitsstofnunar EFTA er heimilt í samvinnu við Fiskistofu og í fylgd starfsmanna hennar að gera vettvangsathugun hjá þeim aðilum sem fengið hafa vinnsluleyfi frá Fiskistofu, sbr. 12. gr. laganna, til að sannreyna að uppfyllt séu skilyrði laga þessara og reglna settra með stoð í þeim.]
1)
![](/lagas/hk.jpg)
Skylt er að láta skoðunarstofu og Fiskistofu í té án endurgjalds sýni af sjávarafurðum til rannsókna.
1)L. 85/1995, 1. gr.
16. gr. Fiskistofa gefur út opinber útflutningsvottorð sé þess krafist. Fiskistofa getur að uppfylltum sérstökum skilyrðum veitt viðurkenndri skoðunarstofu, sbr. 14. gr., heimild til útgáfu útflutningsvottorða.
17. gr. Fiskistofu er heimilt að láta stöðva vinnslu og dreifingu sjávarafurða sem brjóta í bága við 10. eða 11. gr. Enn fremur er heimilt að láta innkalla afurðir sem dreift hefur verið enda liggi fyrir rökstuddur grunur um að þær brjóti í bága við ákvæði laga þessara.
![](/lagas/hk.jpg)
Eigandi sjávarafurða ber allan kostnað af nauðsynlegum ráðstöfunum til að framfylgja ákvæðum þessarar greinar.
18. gr. Ákvarði Fiskistofa að sjávarafurðir séu óhæfar til manneldis eða fóðurs ber framleiðanda, eiganda eða útflytjanda að eyða vörunni innan þriggja mánaða frá dagsetningu ákvörðunar þar um.
![](/lagas/hk.jpg)
Fiskistofu er þó heimilt í sérstökum tilvikum að ákveða að hagnýta megi sjávarafurðirnar til annarrar framleiðslu.
[IV. kafli.
Innflutningur sjávarafurða.]1)
1)L. 89/1997, 3. gr. Breytingin tekur gildi 1. nóvember 1998, sbr. l. 114/1997, 1. gr.
Innflutningur frá ríkjum innan Evrópska efnahagssvæðisins.
[19. gr. Innflytjandi sjávarafurða, sem fluttar eru til Íslands frá ríkjum innan Evrópska efnahagssvæðisins, skal tilkynna Fiskistofu um komu sendinga með hæfilegum fyrirvara.
![](/lagas/hk.jpg)
Vinnsluleyfishafi, sbr. 12. gr., eða annar viðtakandi þessara sjávarafurða skal halda dagbók yfir mótteknar sendingar og ganga úr skugga um að samræmi sé milli þeirra og meðfylgjandi skjala. Varðveita skal vottorð og önnur skilríki þeim viðkomandi í eitt ár svo að unnt sé að framvísa þeim að kröfu eftirlitsaðila.
![](/lagas/hk.jpg)
Fiskistofu er heimil skyndiskoðun á þessum sjávarafurðum og sýnataka til rannsókna.
![](/lagas/hk.jpg)
Fiskistofa skal tilkynna viðkomandi ef hún óskar eftir að skoða vöruna eða taka sýni af henni til rannsókna. Berist viðtakanda ekki slík tilkynning áður en losun hefst er honum heimilt að ráðstafa sendingunni til vinnslu eða umpökkunar hjá viðurkenndum vinnsluleyfishafa. Afla fiskiskipa frá ríkjum innan Evrópska efnahagssvæðisins, sem landað er hér á landi, skal skoða á sama hátt og afla íslenskra skipa.
![](/lagas/hk.jpg)
Fiskistofa skal leggja áætlun um fjölda skyndiskoðana og nánari tilhögun þeirra fyrir Eftirlitsstofnun EFTA.]
1)
1)L. 89/1997, 3. gr. Breytingin tekur gildi 1. nóvember 1998, sbr. l. 114/1997, 1. gr.
Innflutningur frá ríkjum utan Evrópska efnahagssvæðisins.
[20. gr. Allur innflutningur lifandi fisks og fiskafurða, að meðtöldu fiskmjöli frá ríkjum utan Evrópska efnahagssvæðisins, skal fara um landamærastöðvar eða hafnir sem heimild hafa fyrir innflutningi, sbr. V. kafla þessara laga. Heimilt er að landa afla fiskiskipa utan landamærastöðva og skal skoða hann á sama hátt og afla íslenskra skipa.
![](/lagas/hk.jpg)
Sjávarútvegsráðuneytið getur veitt undanþágu frá 1. mgr. ef sérstakar ástæður réttlæta slíkt eða ef fram kemur rökstudd beiðni þar að lútandi frá yfirvöldum í ríkjum innan EES.
![](/lagas/hk.jpg)
Innflutningur á sjávarafurðum frá ríkjum utan Evrópska efnahagssvæðisins er aðeins heimill frá þeim framleiðendum, verksmiðjuskipum og frystiskipum sem hlotið hafa viðurkenningu þess efnis að framleiðsla og eftirlit með sjávarafurðum uppfylli kröfur Evrópska efnahagssvæðisins.]
1)
1)L. 89/1997, 3. gr. Breytingin tekur gildi 1. nóvember 1998, sbr. l. 114/1997, 1. gr.
[21. gr. Sjávarútvegsráðuneytið heldur skrá yfir þá aðila sem hlotið hafa viðurkenningu, sbr. 3. mgr. 20. gr. Birta skal þessa skrá í Stjórnartíðindum. Einnig skal birta mánaðarlega þær breytingar sem verða á henni.]
1)
1)L. 89/1997, 3. gr. Breytingin tekur gildi 1. nóvember 1998, sbr. l. 114/1997, 1. gr.
Öryggisákvæði.
[22. gr. Í þeim tilfellum þegar sjúkdómur eða annað, sem kann að stofna heilbrigði almennings eða heilbrigði dýra í alvarlega hættu, kemur upp eða breiðist út á yfirráðasvæði annars ríkis eða ef einhver önnur alvarleg ástæða er varðar heilbrigði manna og dýra réttlætir slíkt getur ráðuneytið án fyrirvara stöðvað innflutning frá viðkomandi ríki eða sett sérstök skilyrði fyrir innflutningi.]
1)
1)L. 89/1997, 3. gr. Breytingin tekur gildi 1. nóvember 1998, sbr. l. 114/1997, 1. gr.
[V. kafli.
Landamærastöðvar.]1)
1)L. 89/1997, 3. gr. Breytingin tekur gildi 1. nóvember 1998, sbr. l. 114/1997, 1. gr.
[23. gr. Eftirlitsmenn Fiskistofu eða aðrir þar til bærir eftirlitsaðilar annast eftirlit með innflutningi sjávarafurða frá ríkjum utan Evrópska efnahagssvæðisins. Í því skyni skal setja á fót landamærastöðvar þar sem starfi eftirlitsmenn sem eru sérþjálfaðir til þessara starfa og séu ábyrgir fyrir nauðsynlegum skoðunum á sjávarafurðum sem um stöðvarnar fara. Tilkynna skal Fiskistofu fyrir fram um slíkan innflutning þar sem getið er um magn, tegund, áfangastað og hvenær áætlað er að sending berist.]
1)
1)L. 89/1997, 3. gr. Breytingin tekur gildi 1. nóvember 1998, sbr. l. 114/1997, 1. gr.
[24. gr. Á landamærastöðvum eða í þeim höfnum sem heimild hafa fengið fyrir innflutningi skal fara fram athugun á skjölum og samanburður á þeim og sendingu til að sannreyna uppruna hennar og ákvörðunarstað og að sendingin sé frá vinnslustöð, vinnsluskipi eða frystiskipi sem er á skrá ráðuneytisins yfir viðurkennda aðila, sbr. 21. gr. þessara laga.
![](/lagas/hk.jpg)
Eftirlitsmaður skal kanna ástand afurðanna og taka sýni til rannsókna á rannsóknastofu. Skal hann í þeim efnum fylgja gildandi reglum um tíðni skoðana og um sýnatökur. Komi í ljós við skynmat eða rannsókn að þær séu óhæfar til manneldis skal eyða þeim. Heimilt er þó að endursenda afurðina að fengnu leyfi yfirvalda í framleiðslulandi eða að nýta hana í fiskmjöl enda sé hún laus við eiturefni. Innflytjandi er ábyrgur fyrir þeim kostnaði sem getur fallið til við að endursenda vöru, geyma hana, taka til annarra nota eða eyða henni.
![](/lagas/hk.jpg)
Í tollvörugeymslu skal aðeins fara fram athugun á skjölum og samanburður á þeim og sendingu.]
1)
1)L. 89/1997, 3. gr. Breytingin tekur gildi 1. nóvember 1998, sbr. l. 114/1997, 1. gr.
[25. gr. Innflytjandi eða annar viðtakandi sjávarafurða sem koma frá ríkjum utan Evrópska efnahagssvæðisins skal tilkynna Fiskistofu með hæfilegum fyrirvara hvert afurðirnar verða sendar og tilgreina magn, tegund og hvenær áætlað er að þær berist.]
1)
1)L. 89/1997, 3. gr. Breytingin tekur gildi 1. nóvember 1998, sbr. l. 114/1997, 1. gr.
Um gjaldtöku fyrir landamæraeftirlit.
[26. gr. Fiskistofa skal innheimta gjald til að bera uppi kostnað af eftirliti með sjávarafurðum frá viðurkenndum framleiðendum, verksmiðjuskipum og frystiskipum utan Evrópska efnahagssvæðisins.
![](/lagas/hk.jpg)
Fyrir hvert tonn af fyrstu 100 tonnum af innfluttum sjávarafurðum úr sömu sendingu skal greiða 405 kr. Fyrir hvert tonn þar umfram skal lækka gjaldið í 202 kr. Þó skal gjald af heilfrystum fiski sem aðeins hefur verið slægður lækka í 121 kr. fyrir hvert tonn. Fyrir hverja sendingu skal þó aldrei greiða minna en 2.460 kr.
![](/lagas/hk.jpg)
Heimilt er að breyta framangreindum gjöldum með tilliti til breytinga á meðalgengi Evrópumyntar (ECU). Grunngjaldið er miðað við gengi Evrópumyntar í mars 1997 eða 81 kr. Gjaldið greiðist af innflytjanda afurðanna og greiðist þar sem eftirlitið fer fram eða á landamærastöð.
![](/lagas/hk.jpg)
Sjávarútvegsráðherra er heimilt að hækka gjöld skv. 2. mgr. ef í ljós kemur að kostnaður Fiskistofu af eftirliti með innfluttum sjávarafurðum er meiri en sem nemur þessum gjöldum. Gjaldið skal þó aldrei vera hærra en sem nemur raunverulegum kostnaði við eftirlitið.
![](/lagas/hk.jpg)
Innflytjanda sjávarafurða eða öðrum aðila sem óskar eftir aðgangi að tollvörugeymslu ber að greiða fyrir eftirlit þar. Heimilt er að innheimta gjaldið áður en afurðir eru fluttar í tollvörugeymslu.]
1)
1)L. 89/1997, 3. gr. Breytingin tekur gildi 1. nóvember 1998, sbr. l. 114/1997, 1. gr.
[27. gr. Sjávarútvegsráðherra setur með reglugerð nánari ákvæði um fjölda landamærastöðva, staðsetningu þeirra, rekstur, búnað, útgáfu vottorða, tíðni skoðana, sýnatökur og rannsóknir. Með reglugerð skal einnig kveðið á um hvaða sendingar séu undanþegnar skoðunum og um nánara fyrirkomulag við gjaldtöku, þar á meðal um lækkunarheimildir og innheimtu.]
1)
1)L. 89/1997, 3. gr. Breytingin tekur gildi 1. nóvember 1998, sbr. l. 114/1997, 1. gr.
[VI. kafli.]1)
Ýmis ákvæði.
1)L. 89/1997, 3. gr. Breytingin tekur gildi 1. nóvember 1998, sbr. l. 114/1997, 1. gr.
[28. gr.]1) Uppfylli fyrirtæki eða skip, sbr. 12. gr., ekki ákvæði II. kafla um heilnæmi afurða, búnað og hreinlæti eða ákvæði 13. eða 14. gr. um innra eftirlit og samning við viðurkennda skoðunarstofu er Fiskistofu heimilt að svipta þau vinnsluleyfi og jafnframt að loka viðkomandi fyrirtæki með innsigli. Fái skip ekki vinnsluleyfi, sbr. 12. gr., eða sé svipt því er Fiskistofu heimilt að svipta það veiðileyfi. Áður en til sviptingar kemur samkvæmt þessari málsgrein skal gefa viðkomandi kost á að skýra mál sitt og veita honum sanngjarnan frest til úrbóta.
![](/lagas/hk.jpg)
Veiti framleiðandi, útflytjandi, forsvarsmenn fyrirtækja eða útgerða skipa Fiskistofu eða skoðunarstofu ekki nauðsynlegar upplýsingar eða aðstoð við framkvæmd eftirlits eða skoðun, sbr. 15. gr., getur Fiskistofa svipt viðkomandi vinnsluleyfi.
1)L. 89/1997, 3. gr. Breytingin tekur gildi 1. nóvember 1998, sbr. l. 114/1997, 1. gr.
[29. gr.]1) Ákvörðunum Fiskistofu í þá veru að sjávarafurðir teljist ekki uppfylla kröfur laga þessara eða reglugerða settra með stoð í þeim má vísa til málskotsnefndar, sbr. 21. gr.,
2) innan sjö daga frá því að ákvörðun var kynnt hlutaðeigandi.
1)L. 89/1997, 3. gr. Breytingin tekur gildi 1. nóvember 1998, sbr. l. 114/1997, 1. gr. 2)Nú 30. gr.
[30. gr.]1) Sjávarútvegsráðherra skipar nefnd þriggja manna og jafnmarga menn til vara til meðferðar málskots skv. 20. gr.
2) Tveir nefndarmanna og varamenn þeirra skulu hafa sérþekkingu á meðferð og framleiðslu sjávarafurða. Formaður nefndarinnar og varamaður hans skulu fullnægja skilyrðum til að hljóta skipun í embætti héraðsdómara. Nefndin úrskurðar hvort ákvarðanir Fiskistofu séu í samræmi við ákvæði laga eða reglugerða. Nefndin getur staðfest, breytt eða fellt úr gildi ákvarðanir Fiskistofu. Úrskurður nefndarinnar skal vera rökstuddur og vera endanlegur. Afl atkvæða ræður niðurstöðu nefndarinnar.
![](/lagas/hk.jpg)
Nefndinni er heimilt að kveðja sérfróða menn til ráðgjafar telji hún þörf á við úrlausn einstakra mála. Nefndin getur krafið málsaðila um greiðslu kostnaðar sem hlýst af meðferð máls. Fulltrúar málsaðila hafa rétt til að koma á fund nefndarinnar og skýra mál sitt.
![](/lagas/hk.jpg)
Nefndarmaður skal ekki taka þátt í meðferð máls er varðar fyrirtæki ef hann situr í stjórn eða er starfsmaður þess. Hann skal einnig víkja ef hann er fjárhagslega háður málsaðila vegna eignaraðildar, viðskipta eða af öðrum ástæðum. Sama gildir um þátttöku nefndarmanns í meðferð máls er varðar aðila sem honum er persónulega tengdur eða hætta er á að hann fái ekki að öðru leyti litið hlutlaust á mál.
![](/lagas/hk.jpg)
Ráðherra setur nefndinni starfsreglur.
1)L. 89/1997, 3. gr. Breytingin tekur gildi 1. nóvember 1998, sbr. l. 114/1997, 1. gr. 2)Nú 29. gr.
[31. gr.]1) Sjávarútvegsráðherra er heimilt að setja með reglugerð
2) nánari ákvæði um efni þessara laga.
![](/lagas/hk.jpg)
[Sjávarútvegsráðherra skal ákvarða gjald fyrir þjónustu sem Fiskistofa veitir á grundvelli laga þessara.
![](/lagas/hk.jpg)
Gjald Fiskistofu fyrir viðurkenningu á skoðunarstofu skal vera 200.000 krónur. Ráðherra er heimilt að hækka gjaldið er nemur hlutfallslegri hækkun vísitölu byggingarkostnaðar, sbr.
lög nr. 42/1987, um vísitölu byggingarkostnaðar. Grunntaxti gjaldsins er miðaður við byggingarvísitölu í ágúst 1993, þ.e. 192,5 stig.]
3)
1)L. 89/1997, 3. gr. Breytingin tekur gildi 1. nóvember 1998, sbr. l. 114/1997, 1. gr. 2)Rg. 429/1992, sbr. 558/1997. Rg. 684/1995, sbr. 344/1997. Rg. 163/1996. Rg. 342/1996. Rg. 450/1997. 3)L. 58/1994, 2. gr.
[VII. kafli.]1)
Viðurlög.
1)L. 89/1997, 3. gr. Breytingin tekur gildi 1. nóvember 1998, sbr. l. 114/1997, 1. gr.
[32. gr.]1) Fyrir brot á ákvæðum laga þessara eða reglugerða settra með stoð í þeim sem framin eru af ásetningi eða gáleysi skal refsa með sektum eða varðhaldi ef miklar sakir eru.
![](/lagas/hk.jpg)
Heimilt er að refsa stjórnarmönnum félaga og framkvæmdastjóra fyrirtækja vegna brota á 10. gr., 11. gr., 4. mgr. 12. gr. og 13. gr.
1)L. 89/1997, 3. gr. Breytingin tekur gildi 1. nóvember 1998, sbr. l. 114/1997, 1. gr.
[33. gr.]1) Rannsókn brota á lögum þessum fer að hætti opinberra mála.
1)L. 89/1997, 3. gr. Breytingin tekur gildi 1. nóvember 1998, sbr. l. 114/1997, 1. gr.
[34. gr.]1) Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 1993.
![](/lagas/hk.jpg)
…
1)L. 89/1997, 3. gr. Breytingin tekur gildi 1. nóvember 1998, sbr. l. 114/1997, 1. gr.
Ákvæði til bráðabirgða. …