Lagasafn. Íslensk lög 1. október 1998. Útgáfa 122b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um bátaábyrgðarfélög
1976 nr. 18 23. apríl
1. gr. Skip merkir í lögum þessum öll fljótandi för, stór og smá, sem sigla undir íslenskum fána, innan þeirra takmarka, sem lögin setja.
2. gr. [Allir skipaeigendur, sem eiga vélskip með þilfari 100,49 rúmlestir brúttó að stærð eða minni, sem aðallega eru ætluð til fiskveiða við Ísland, skulu skyldir að vátryggja þau hjá bátaábyrgðarfélagi sem starfar samkvæmt lögum þessum eða hjá öðru vátryggingafélagi sem hlotið hefur starfsleyfi, og með þeim skilmálum sem settir eru í lögum þessum og reglugerðum sem settar eru samkvæmt þeim.]
1)
![](/lagas/hk.jpg)
Neiti einhver skipseigandi að vátryggja skip, sem tryggingarskylt er samkvæmt lögum þessum, skal það eigi að síður skoðað og metið af skoðunar- og virðingarmönnum hlutaðeigandi félags og vátryggt sem önnur tryggingarskyld skip og iðgjaldið innheimt með lögtaki skv. 17. gr. ef þörf krefur.
![](/lagas/hk.jpg)
…
1)
1)L. 116/1993, 9. gr.
3. gr. Eigi er skylt að vátryggja skip, sem vegna ágalla hefur ekki haft haffærisskírteini í eitt ár. Þegar svo stendur á, skal bátaábyrgðarfélag segja tryggingu skipsins upp, en tilkynna skal það veðhöfum með 14 daga fyrirvara.
4. gr. Ráðherra getur heimilað bátaábyrgðarfélagi að taka að sér endurtryggingu á hluta þeirrar áhættu, sem Samábyrgðin yfirtekur frá öðrum bátaábyrgðarfélögum.
5. gr. [Ráðherra getur heimilað bátaábyrgðarfélagi að reka aðrar greinar vátrygginga í samræmi við ákvæði laga um vátryggingarstarfsemi.]
1)
![](/lagas/hk.jpg)
Slíka heimild skal því aðeins veita, að löglegur félagsfundur, þar sem mætt er með a.m.k. helming allra atkvæða í félaginu, hafi samþykkt að óska heimildarinnar, enda hafi þess verið getið í fundarboði, að málið yrði á dagskrá.
![](/lagas/hk.jpg)
Heimild skal binda þeim skilyrðum, sem þurfa þykir, til þess að fjárhag félaganna verði ekki stofnað í hættu, og skal leita álits Samábyrgðar Íslands á fiskiskipum, áður en heimildin er veitt.
![](/lagas/hk.jpg)
Í reikningum félaganna skal tilgreina sérstaklega tekjur og gjöld vegna þeirra trygginga, sem um ræðir í þessari grein, og skulu þeir vera í samræmi við reglugerð um ársreikninga vátryggingarfélaga.
1)L. 116/1993, 10. gr.
6. gr. [Bátaábyrgðarfélag það, sem nú starfar í Vestmannaeyjum, er undanþegið ákvæðum þessara laga. Þó skal því skylt, sé þess óskað, að tryggja fiskiskip sem skrásett eru í Vestmannaeyjum og eru innan þeirra stærðartakmarka sem ákveðin eru í 2. gr. laganna. Einnig skal það háð ákvæðum 14. gr. um aðstoð.]
1)
1)L. 116/1993, 11. gr.
7. gr. Landinu skal skipt í vátryggingarsvæði. Ráðherra ákveður takmörk þeirra í samráði við Samábyrgðina.
![](/lagas/hk.jpg)
[Á hverju vátryggingarsvæði skal vera eitt bátaábyrgðarfélag. Bátaábyrgðarfélagi eða vátryggingafélagi á tilteknu vátryggingarsvæði er skylt, sé þess óskað, að vátryggja vátryggingarskyld fiskiskip sem skrásett eru á því svæði.]
1)
![](/lagas/hk.jpg)
Nú er skip flutt á annað tryggingarsvæði, og skal þá eigandi, skrásetningarstjóri og bátaábyrgðarfélag á því svæði, er skipið flyst frá, tilkynna það bátaábyrgðarfélagi á því svæði, sem skipið flyst á, og Samábyrgðinni. Vanræksla á tilkynningu varðar sektum …
2) Sömu viðurlögum varðar það eiganda, ef hann vanrækir að skrásetja skipið tafarlaust á hinu nýja tryggingarsvæði. Ábyrgð fyrra félags fellur niður, jafnskjótt og skip hefur verið skrásett á öðru félagssvæði, enda hafi viðtakandi bátaábyrgðarfélag látið skoða skipið strax eftir að því barst flutningstilkynning, og samþykkt flutninginn.
![](/lagas/hk.jpg)
Sé skip, sem tryggt er samkvæmt lögum þessum, svipt haffærisskírteini, skal [Siglingastofnun Íslands]
3) þegar í stað tilkynna það viðkomandi bátaábyrgðarfélagi eða Samábyrgðinni.
1)L. 116/1993, 12. gr. 2)L. 116/1990, 38. gr. 3)L. 7/1996, 4. gr.
8. gr. Ráðherra ákveður, að fengnum tillögum Samábyrgðarinnar og bátaábyrgðarfélaganna, hámark þeirrar áhættu, sem hvert bátaábyrgðarfélag tekur á eigin reikning í hverju skipi.
![](/lagas/hk.jpg)
[Félögin geta óskað endurtryggingar hjá Samábyrgðinni á þeim hluta áhættunnar í hinum vátryggðu skipum sem þau bera ekki sjálf og getur hún ekki undan því skorast.]
1)
![](/lagas/hk.jpg)
Verði ágreiningur milli bátaábyrgðarfélags og Samábyrgðarinnar um endurtryggingariðgjöld, sker ráðherra úr.
1)L. 116/1993, 13. gr.
9. gr. Stjórn bátaábyrgðarfélags skal skipuð minnst þremur og mest fimm mönnum, og skal fjöldi þeirra ákveðinn á aðalfundi.
![](/lagas/hk.jpg)
Samábyrgðin skipar einn af stjórnarmönnum, en hinir eru kosnir á aðalfundi. Varamenn skulu valdir á sama hátt. Val stjórnarinnar gildir í tvö ár í senn.
![](/lagas/hk.jpg)
Aðalfundur ákveður þóknun stjórnarinnar.
![](/lagas/hk.jpg)
Stjórnin kýs sér formann og varaformann.
![](/lagas/hk.jpg)
Stjórnarfundi skal halda, þegar formaður telur þess þörf eða þegar tveir stjórnarmenn krefjast. Formaður er fundarstjóri, en varaformaðurinn, ef formaður er ekki mættur. Stjórnin er ályktunarfær ef meiri hluti stjórnarmanna er mættur, þar á meðal formaður eða varaformaður. Meiri hluti atkvæða ræður úrslitum mála.
![](/lagas/hk.jpg)
Stjórnarmaður má ekki taka þátt í afgreiðslu máls, sem snertir hann sjálfan fjárhagslega.
![](/lagas/hk.jpg)
Stjórnin skal halda fundarbók og skrá í hana allar ákvarðanir sínar.
![](/lagas/hk.jpg)
Stjórnin hefur æðsta úrskurðarvald í öllum málefnum félagsins innan takmarka þessara laga. Hún úrskurðar skaðabótagreiðslur, en þó þarf jafnan samþykki Samábyrgðarinnar, ef bótaupphæðin nemur 200.000 kr. eða meiru.
![](/lagas/hk.jpg)
Stjórnin ræður framkvæmdastjóra fyrir félagið og ákveður starfssvið hans og laun. Einnig ræður stjórnin annað starfsfólk eftir því, sem þörf er á.
10. gr. Reikningar bátaábyrgðarfélaganna skulu endurskoðaðir af löggiltum endurskoðanda og af tveimur endurskoðendum, sem kosnir eru á aðalfundi til tveggja ára í senn. Aðalfundur ákveður þóknun kjörinna endurskoðenda.
![](/lagas/hk.jpg)
Endurskoðendur skulu hafa lokið endurskoðun sinni í síðasta lagi 5 dögum fyrir aðalfund, og skulu reikningar viðkomandi félags liggja frammi hjá framkvæmdastjóra eða formanni frá því endurskoðun er lokið og þar til aðalfundur hefst.
11. gr. Aðalfund skal halda fyrir hvert einstakt félag fyrir lok júnímánaðar ár hvert og aukafund, þegar stjórnin telur þess þörf eða
1/
5 hluti skipaeigenda fer þess á leit.
![](/lagas/hk.jpg)
Til aðalfundar skal boðað með auglýsingum í blöðum og útvarpi eða á annan öruggan hátt eigi síðar en 14 dögum fyrir fundardag, og aukafund skal halda svo fljótt sem auðið er, eftir að stjórnin hefur fengið tilmæli um fundinn. Boða skal til aukafundar með viku fyrirvara.
![](/lagas/hk.jpg)
Á aukafundi
1) skal lagður fram endurskoðaður reikningur félagsins og kosin stjórn og endurskoðendur skv. 9. og 10. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Atkvæðisrétt á fundum og kjörgengi til stjórnar og annarra trúnaðarstarfa hafa allir skipaeigendur, eða fulltrúar þeirra, sem eiga skip í frumtryggingu hjá félaginu, og skulu þeir hafa eitt atkvæði fyrir hverjar 2.000.000 kr. eða minni upphæð í einu skipi, sem þeir hafa tryggt hjá félaginu.
![](/lagas/hk.jpg)
Ef fleiri en einn eru eigendur að sama skipi, skulu þeir fela einum umboðsmanni að fara með atkvæði skipsins, og skal tilkynna það stjórn félagsins.
![](/lagas/hk.jpg)
Félagsmaður getur farið með atkvæðisrétt fyrir aðra félagsmenn, enda hafi hann fengið til þess skriflegt umboð. Þó má enginn fara með meira atkvæðismagn en 10% af heildaratkvæðamagni félagsins.
![](/lagas/hk.jpg)
Fundur er lögmætur, ef mætt er með helming allra atkvæða í félaginu. Verði fundur ekki lögmætur, skal svo fljótt sem auðið er boða til nýs fundar með viku fyrirvara, og er sá fundur ályktunarfær án tillits til þess, með hve mörg atkvæði er mætt á þeim fundi.
![](/lagas/hk.jpg)
Senda skal ráðuneytinu, [Fjármálaeftirlitinu]
2) og Samábyrgðinni afrit af ársreikningum félagsins að afloknum aðalfundi ár hvert.
1)Svo í Stjtíð., en á bersýnilega að vera „aðalfundi“. 2)L. 84/1998, 19. gr., sem öðlast gildi 1. janúar 1999.
12. gr. Eignum félaganna má eingöngu verja samkvæmt tilgangi þeirra og samkvæmt lögum um vátryggingarstarfsemi.
13. gr. Stjórn bátaábyrgðarfélags og Samábyrgðin skipa hvor um sig einn skoðunar- og virðingarmann fyrir hvert félag og einn til vara til að framkvæma skoðunar- og virðingargerðir samkvæmt fyrirmælum þessara laga. Þeir skulu, áður en skip er tekið í tryggingu, skoða og meta skipið og gefa skriflega, sundurliðaða skýrslu um matið.
![](/lagas/hk.jpg)
Ef skoða skal skip, sem skoðunar- og virðingarmaður á að öllu eða nokkru leyti, skal varamaður framkvæma skoðun og mat.
![](/lagas/hk.jpg)
Skoðun skipa gildir til tveggja ára í senn. Þó er aðilum heimilt að krefjast þess, að skoðun og mat fari fram, hvenær sem þeim þykir ástæða til.
![](/lagas/hk.jpg)
Stjórn félagsins ákveður þóknun skoðunarmanna, og greiðist hún af eiganda skipsins.
![](/lagas/hk.jpg)
Bátaábyrgðarfélag, vátryggður og Samábyrgðin geta hvert um sig krafist yfirmats, og skal það framkvæmt af þremur dómkvöddum, sérfróðum mönnum.
![](/lagas/hk.jpg)
Sé skipi í einhverju ábótavant, er skoðun fer fram, getur félagið fellt það úr tryggingu, og skal bætt úr ágöllum þeim, sem skoðunarmenn telja á skipinu, áður en það er tekið í tryggingu á ný. Sé skipið fellt úr tryggingu vegna framangreindra orsaka, skal það tilkynnt veðhöfum með 14 daga fyrirvara áður en niðurfelling tryggingar tekur gildi.
![](/lagas/hk.jpg)
Vátryggingarverð skipanna skal miða við matsverð eftir nánari fyrirmælum, sem sett verða í reglugerð.
![](/lagas/hk.jpg)
Skoðunar- og virðingarmenn skulu einnig skoða hvert það tjón, sem vátryggt skip verður fyrir, áður en viðgerð á skipinu hefst og gefa skriflega, sundurliðaða skýrslu um tjónið. Þeir skulu síðan fylgjast með viðgerð á skipinu, og að henni lokinni leggja fram skriflega matsgjörð á tjóninu og skýrslu um, hvort skipið sé komið í samt lag eftir viðgerðina.
14. gr. Öll skip, sem tryggð eru samkvæmt lögum þessum eða af Samábyrgðinni, svo og öll þau skip, sem ríkisstofnanir eða ríkissjóður gera út eða sjá um útgerð á, eru skyld til að hjálpa hvert öðru úr háska. Greiðslu fyrir slíka hjálp verður ekki krafist eftir venjulegum björgunarreglum, heldur skal hún ákveðin af stjórn hlutaðeigandi félags, ef bæði skipin eru tryggð hjá sama félagi, ella af stjórn Samábyrgðarinnar. Greiða skal aðeins það fjártjón og þann tilkostnað, sem hjálpin hefur bakað þeim, er hana veitti, og aldrei getur greiðslan orðið hærri en vátryggingarfjárhæð skipsins, sem hjálpina þáði. Ákvæði
laga nr. 25/1967 og
66/1963
1) um hlutdeild skipshafnar í björgunarlaunum breytist í samræmi við ákvæði greinar þessarar.
1)Nú l. 34/1985.
15. gr. …
1)
1)L. 116/1993, 14. gr.
16. gr. [Ef fjárhagur gagnkvæms bátaábyrgðarfélags telst ekki sæmilega traustur getur ráðherra ákveðið að lagt skuli aukaiðgjald á vátryggðu. Gjald þetta má eigi vera hærra en 20% af iðgjöldum af vátryggðum skipum og 100% af iðgjöldum trygginga sem snerta útgerð fiskiskipa. Gjald þetta renni í sjóð félaganna.]
1)
![](/lagas/hk.jpg)
Aukaiðgjald verður eigi lagt á iðgjöld tiltekins árs, nema ákvörðun um það hafi verið tekin áður en 2 mánuðir eru liðnir frá lokum ársins.
1)L. 116/1993, 15. gr.
17. gr. Bátaábyrgðarfélag hefur lögveð í skipi og lögtaksrétt fyrir skoðunarkostnaði og vátryggingariðgjöldum af skipum, þó eigi fyrir lengra tímabil en 2 ár frá gjalddaga þeirra að telja. Sama gildir um aukaiðgjöld, sem reiknuð eru af vátryggingariðgjöldum skipa.
18. gr. Nú hefur bátaábyrgðarfélag ekki innheimt vátryggingariðgjöld og stendur jafnframt ekki í skilum við Samábyrgðina með endurtryggingariðgjöldin og skal þá ráðuneytinu heimilt að leggja félagið niður og ráðstafa tryggingunum yfir á annað félagssvæði eða beint til Samábyrgðarinnar. Öðlast þá sá aðili, sem tekur við tryggingunum, allar eignir félagsins, kröfur og réttindi.
19. gr. …
1)
1)L. 116/1993, 16. gr.
20. gr. Þegar vátryggðar eignir eru veðsettar, nær veðrétturinn einnig til vátryggingafjárins. Þegar vátryggingafé er útborgað, ber félaginu skylda til þess að rannsaka, hverjir hafi þinglesin veð í skipinu, og að haga útborgun fjárins eftir því.
21. gr. [Ákvæði laga þessara gilda eftir því sem við getur átt um vátryggingafélög önnur en bátaábyrgðarfélög sem vátryggja fiskiskip 100,49 rúmlestir eða minni.]
1)
1)L. 116/1993, 17. gr.
22. gr. [Ráðherra setur með reglugerð
1) nánari ákvæði um framkvæmd laga þessara, þar á meðal um vátryggingaskilmála.]
2)
1)Rg. 274/1977, 465/1981, 269/1982, 231/1984 og 673/1994. 2)L. 116/1993, 18. gr.
[Ákvæði til bráðabirgða.]1)
1)L. 116/1993, 19. gr.
[I. Setja skal bátaábyrgðarfélögum félagssamþykktir, þar á meðal ákvæði um eignarhald og félagsslit eigi síðar en á aðalfundi 1994.]
1)
1)L. 116/1993, 19. gr.
[II. Bátaábyrgðarfélög hafa frest til 1. janúar 1995 til að færa starfsemi sína að fullu til samræmis við ákvæði laga þessara. Vátryggingasamningar halda gildi sínu fram til þess tíma, að því undanskildu að við eigendaskipti á bátum, sem undir lögin falla, er nýjum eiganda frjálst að skipta um tryggingafélag.]
1)
1)L. 116/1993, 19. gr.