Lagasafn. Íslensk lög 1. október 1998. Útgáfa 122b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um kirkjusóknir, safnaðarfundi, sóknarnefndir, héraðsfundi o.fl.1)
1985 nr. 25 3. júní
1)Falla úr gildi 31. desember 1998, sbr. l. 78/1997, 64. gr.
I. kafli.
Umdæmaskipting þjóðkirkjunnar.
1. gr. …
1)
1)L. 78/1997, 64. gr.
II. kafli.
Um kirkjusóknir og skipan þeirra.
a. Almenn ákvæði.
2. gr. …
1)
1)L. 78/1997, 64. gr.
b. Stærð kirkjusókna, sóknarmörk og breytingar á þeim.
3. gr. Í kirkjusókn skulu að jafnaði eigi vera fleiri en 4000 sóknarmenn og eigi færri en 100. Nú verða sóknir mannfleiri eða mannfærri, og skal héraðsfundur þá gera tillögur um, hvernig við skuli bregðast, að fengnum tillögum sóknarnefnda og aðalsafnaðarfunda.
![](/lagas/hk.jpg)
Sóknarmörk skulu vera glögg. Við ákvörðun þeirra skal taka tillit til félagslegra aðstæðna, samgangna, staðhátta og hefðar.
![](/lagas/hk.jpg)
Við skipulagningu í þéttbýli skal taka mið af líklegri skipan sókna og staðsetningu kirkna og höfð í því efni samráð við sóknarprest, sóknarnefndir og prófast.
4. gr. Aðalsafnaðarfundur eða aðalsafnaðarfundir, ef mál varðar fleiri sóknir en eina, gera tillögur til héraðsfunda um skiptingu kirkjusóknar, sameiningu sókna og um sóknarmörk, svo og um niðurlagningu kirkju eða tilfærslu. Héraðsfundur (safnaðarráð) getur einnig átt frumkvæði að tillögum í þessu efni, einkum er 1. mgr. 3. gr. á við, en mál skal þá leggja fyrir aðalsafnaðarfund (aðalsafnaðarfundi) til samþykktar.
![](/lagas/hk.jpg)
Ákvarðanir samkvæmt 1. mgr. taka gildi, ef aðalsafnaðarfundur samþykkir þær eða meiri hluti aðalsafnaðarfunda, ef því er að skipta, svo og héraðsfundur. Nú ná tillögur um þessi efni eigi samþykki allra þeirra aðilja, sem greindir voru, og sker kirkjumálaráðherra þá úr, að fengnum tillögum biskups.
![](/lagas/hk.jpg)
Þegar ný sókn er löglega stofnuð, er presti þess prestakalls, sem hin nýja sókn tekur yfir, skylt að annast þar kirkjulega þjónustu.
![](/lagas/hk.jpg)
Nú er hin nýja sókn hluti af tveimur prestaköllum, og ákveður þá kirkjumálaráðherra, að fengnum tillögum biskups, hvor hinna tveggja presta á að þjóna sókninni. Sama er, ef sókn er hluti úr fleiri en tveimur prestaköllum.
5. gr. Nú er kirkjusókn skipt og tekin upp ný sókn eða sóknarmörk færð til, og skal þá miða fjárskipti sóknanna við hlutfallslegan fjölda þeirra sóknarmanna sem breytingin tekur til. Ef aðilja greinir á um fjárskiptin, geta viðkomandi sóknarnefndir krafist þess, að kirkjumálaráðherra skipi tvo menn í nefnd með prófasti, er útkjái ágreiningsefnið til fullnaðar. Prófastur er formaður nefndarinnar. Sé prófastur sóknarprestur í kirkjusókn sem skipta á er honum rétt að víkja sæti og skal biskup skipa annan í hans stað. Nefndin veitir aðiljum færi á að skýra mál sitt, og kannar hún málsefni eftir föngum. Hún kveður að svo búnu á um fjárskiptin, þ. á m. um greiðslukjör.
6. gr. Nú er sókn aflögð með því að hún sameinast annarri sókn eða sóknum, og skulu eignir hennar þá renna til þeirrar sóknar eða þeirra sókna, sem sóknarmenn hinnar aflögðu sóknar hverfa til, og skiptast á milli þeirra í réttu hlutfalli við fjölda sóknarmanna, er hverri sókn bætist.
![](/lagas/hk.jpg)
Þegar sókn er aflögð vegna þess að hún eyðist af fólki, skal prófastur varðveita eignir hennar, en lausafé skal þá ávaxtað í Hinum almenna kirkjusjóði með bestu fáanlegu kjörum. Nú er aflögð sókn endurreist og veitt sóknarréttindi á ný með samþykki héraðsfundar, og á sú sókn þá rétt til framangreindra eigna.
![](/lagas/hk.jpg)
Sé um bændakirkju að ræða er leggja skal niður og söfnuður hennar sameinast annarri sókn, en bændur eða bóndi á bæði kirkjuhúsið og alla muni kirkjunnar, skal hann þá hafa ráðstöfunarrétt á eign þeirri. Þó skal honum skylt að hafa samráð við prófast um slík mál og getur prófastur, ef ekki næst samkomulag milli hans og kirkjubónda, vísað ágreiningsmálum til biskups sem tekur lokaákvörðun í hverju slíkra mála nema ákvæði annarra laga grípi þar inn í.
![](/lagas/hk.jpg)
Þegar sókn er aflögð samkvæmt ákvæðum 1. og 2. mgr., getur biskup, að fengnum tillögum aðalsafnaðarfundar og héraðsfundar, þá mælt svo fyrir, að sóknarkirkjan verði greftrunarkirkja.
III. kafli.
Um sóknarmenn og rétt þeirra til kirkjulegrar þjónustu.
a. Sóknarmenn.
7. gr. Sóknarmenn eru allir þeir, sem lögheimili eiga í sókn, miðað við 1. desember næst liðinn, hafa hlotið skírn og eru skráðir í þjóðkirkjunni. Um skráningu óskírðra í þjóðkirkjunni fer að öðru leyti eftir ákvörðun laga um
trúfélög, nr. 18/1975.
b. Réttur sóknarmanna á kirkjulegri þjónustu o.fl.
8. gr. Sóknarmenn eiga rétt á kirkjulegri þjónustu í sókn sinni og þátttöku í almennu safnaðarstarfi. Þeir sóknarmenn, sem ekki geta notið kirkjulegrar þjónustu í sókn sinni, svo sem vegna vistunar á stofnunum utan sóknar eða vegna dvalar utan sóknar ella, t.d. vegna sjúkleika eða af atvinnuástæðum, eiga rétt á slíkri þjónustu í þeirri sókn, sem þeir búa í eða dveljast.
9. gr. Sóknarmenn eiga rétt á guðsþjónustum í sóknum sínum, er skal að jafnaði miða við eftirfarandi tilhögun:
A. Ef sóknarmenn eru 600 hið fæsta skal almenn guðsþjónusta haldin hvern helgan dag. Ef tveir prestar þjóna sömu sókn, skulu a.m.k. vera tvær guðsþjónustur hvern helgan dag.
B. Í sókn með 300 til 600 sóknarmönnum skal vera almenn guðsþjónusta annan hvern helgan dag.
C. Í sókn með 100 til 300 sóknarmönnum skal vera almenn guðsþjónusta fjórða hvern helgan dag.
D. Í sókn með færri en 100 sóknarmönnum skal vera almenn guðsþjónusta áttunda hvern helgan dag.
![](/lagas/hk.jpg)
Prófastur endurskoðar þjónusturétt vegna fjölgunar eða fækkunar sóknarmanna eigi sjaldnar en fimmta hvert ár og kveður á um hann, að fengnum tillögum sóknarnefnda.
10. gr. Sóknarmenn njóta kosningarréttar og kjörgengis á safnaðarfundum og í öðrum opinberum kosningum innan þjóðkirkju, þegar þeir eru fullra 16 ára.
![](/lagas/hk.jpg)
Sóknarmönnum er skylt að hlíta þeim skyldum, sem á þá eru lagðar með lögum og lögmætum samþykktum safnaðarfunda og ákvörðunum kirkjustjórnar, sem stoð eiga í lögum.
IV. kafli.
Um safnaðarfundi.
11. gr. …
1)
1)L. 78/1997, 64. gr.
12. gr. Sóknarnefnd boðar safnaðarfundi með þriggja daga fyrirvara hið skemmsta á sama hátt og tíðkanlegt er um messuboð í sókninni.
![](/lagas/hk.jpg)
Fundarefni skal kynnt í fundarboði.
![](/lagas/hk.jpg)
Fundur er ályktunarfær, ef rétt er til hans boðað. Afl atkvæða ræður úrslitum mála á safnaðarfundum.
V. kafli.
Um sóknarnefndir, skipun, störf og starfshætti.
a. Sóknarnefndir, skipun og verkaskipting. Endurskoðendur.
13. gr. Í hverri kirkjusókn er sóknarnefnd, sem annast framkvæmdir á vegum sóknarmanna og styður kirkjulegt starf í sókninni ásamt sóknarpresti eða sóknarprestum og starfsmönnum sóknarinnar.
14.–15. gr. …
1)
1)L. 78/1997, 64. gr.
16. gr. …
1)
![](/lagas/hk.jpg)
Aðalsafnaðarfundi er heimilt að kveða svo á, að hver sóknarnefndarmaður hafi ákveðið verksvið í safnaðarstarfinu. Skal það þá kynnt á aðalsafnaðarfundi, áður en kosning fer fram.
![](/lagas/hk.jpg)
Sóknarnefnd skiptir að öðru leyti með sér verkum formanns, gjaldkera og ritara þegar eftir að kjör í sóknarnefnd hefur farið fram. Skipa þeir framkvæmdanefnd, þegar sóknarnefndarmenn eru fleiri en fimm.
![](/lagas/hk.jpg)
Sóknarnefnd getur skipað nefndir úr sínum hópi eða utan hans til að fjalla um einstök málefni, þ. á m. um byggingarframkvæmdir.
![](/lagas/hk.jpg)
Aðalsafnaðarfundur kýs tvo menn og aðra tvo til vara til fjögurra ára í senn til að endurskoða reikninga sóknarinnar og kirkjubyggingareikninga, ef því er að skipta.
1)L. 78/1997, 64. gr.
b. Starfshættir og verkefni sóknarnefnda.
17. gr. Formaður boðar fundi í sóknarnefnd og stýrir þeim. Fundur er ályktunarfær, ef meiri hluti nefndarmanna sækir fundinn. Sóknarprestur skal að jafnaði sitja sóknarnefndarfundi. Enn fremur organisti, meðhjálpari, hringjari, kirkjuvörður og formenn kirkjulegra félaga, sem tengjast sókninni, ef málefni þessara aðilja eru sérstaklega til umræðu þar.
18. gr. Sóknarnefnd vinnur að þeim verkefnum, sem henni eru ætluð í lögum og stjórnvaldsreglum eða fengin henni með samþykktum safnaðarfunda, svo og að málum, sem héraðsfundur, sóknarprestur, prófastur eða biskup vísar til hennar.
19. gr. …
1)
1)L. 78/1997, 64. gr.
20. gr. Sóknarnefnd sér um, að viðunandi húsnæði og búnaður sé til guðsþjónustuhalds og annars safnaðarstarfs í sókninni. Skal hún ásamt sóknarpresti hafa forustu um kirkjubyggingu, endurbyggingu kirkju eða stækkun kirkju og byggingu safnaðarheimilis, eftir því sem aðalsafnaðarfundur mælir fyrir um.
![](/lagas/hk.jpg)
Sóknarnefnd sér um, að kirkju sé vel við haldið og búnaði hennar, og skal leitast við að fegra og prýða kirkju og umhverfi hennar eftir því sem kostur er. Á þetta einnig við um safnaðarheimili.
![](/lagas/hk.jpg)
Sóknarnefnd annast vörslu og ávöxtun á lausafé kirkjunnar (safnaðarheimilis) og ber ábyrgð á fjárreiðum sóknarinnar og skal reikningsfærsla öll vera skipuleg og glögg. Sóknarnefnd leggur fram á aðalsafnaðarfundi endurskoðaða reikninga sóknarinnar fyrir umliðið ár. Að fenginni samþykkt þeirra skulu reikningarnir sendir áritaðir af sóknarnefnd til prófasts eigi síðar en 1. júní ár hvert, nema prófastur veiti rýmri frest. Nú gerir prófastur athugasemdir við reikning, sem sóknarnefnd getur eigi fallist á, og er henni þá kostur að láta fylgja skýringar sínar og andsvör til héraðsfundar, er úrskurðar reikninginn, sbr. 32. gr.
21. gr. Sóknarnefnd er sóknarpresti og starfsfólki sóknarinnar til stuðnings í hvívetna og stuðlar að eflingu kristinnar trúar og siðgæðis meðal sóknarmanna.
![](/lagas/hk.jpg)
Um afskipti sóknarnefndar af álagningu kirkjugjalda og innheimtu þeirra er mælt í lögum.
![](/lagas/hk.jpg)
Um ráðningu starfsmanna sókna eru ákvæði í 25. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Um störf sóknarnefndar í sambandi við veitingu prestsembætta fer svo sem fyrir er mælt í lögum.
c. Safnaðarfulltrúar.
22. gr. …
1)
1)L. 78/1997, 64. gr.
d. Bókhald og erindisbréf.
23. gr. Sóknarnefnd heldur þessar bækur:
1. Gerðabók, og skulu þar bókaðar fundargerðir sóknarnefnda og safnaðarfunda. Ef byggingarnefnd kirkju er skipuð, skal hún halda sérstaka gerðabók.
2. Bréfabók, þar sem varðveitt skulu bréf til sóknarnefndar og afrit af bréfum, er hún ritar.
3. Sjóðsbók, þar sem bókfærð eru öll útgjöld sóknarinnar og tekjur, gjafir, áheit og annað, er fjármál varðar, og vísað til fylgiskjala.
4. Kirkjubók, og skal í hana rita allar kirkjuathafnir og greina í megindráttum frá öðrum safnaðarstörfum.
5. Kirkjuskrá um sóknarkirkju, byggingarsögu hennar, viðhald kirkju og réttindi hennar o.fl.
![](/lagas/hk.jpg)
Bækur samkvæmt 1.–3. tölul. löggildir prófastur, en sóknin kostar andvirði þeirra. Bækur samkvæmt 4. og 5. tölul. löggildir biskup og leggur sókninni til.
![](/lagas/hk.jpg)
[Sóknarnefndir skulu senda Ríkisendurskoðun ársreikninga sóknarnefnda fyrir næstliðið ár fyrir 1. júní ár hvert. Um heimildir Ríkisendurskoðunar til að kalla eftir upplýsingum og til að kanna gögn fer eftir lögum um Ríkisendurskoðun.]
1)
1)L. 124/1997, 5. gr.
24. gr. Biskup Íslands setur sóknarnefndum almennt erindisbréf, að fenginni umsögn prófastsfundar og kirkjuráðs.
VI. kafli.
Um starfsmenn kirkjusókna.
25. gr. Sóknarnefnd ræður organista, meðhjálpara, hringjara og umsjónarmann kirkju (kirkjuvörð) og semur um kaup þeirra, kjör og ráðningartíma. Rétt er sóknarnefnd að ráða starfsmenn til að annast ákveðin safnaðarstörf, enda hafi safnaðarfundur heimilað það. Um kaup og kjör og ráðningartíma fer sem í 1. mgr. greinir.
![](/lagas/hk.jpg)
Biskup Íslands staðfestir erindisbréf sóknarnefndar fyrir þessa starfsmenn.
![](/lagas/hk.jpg)
Starfsmenn sókna, sem ráðnir eru í hálft starf hið minnsta, eiga rétt á setu á héraðsfundi með málfrelsi og tillögurétt, sbr. 31. gr.
26. gr. Stofna skal til námskeiða fyrir sóknarnefndarmenn, safnaðarfulltrúa og aðra starfsmenn sókna, eftir því sem fé er veitt til þess, og skal þar fjallað um almenn safnaðarstörf eða sérstaka þætti þeirra. Námskeiðin skulu haldin á vegum prófastsdæmis, biskupsdæmis eða kirkjulegra samtaka.
27. gr. Aðalsafnaðarfundur getur kveðið svo á, að mynda skuli starfsmannanefnd innan sóknar. Þar eiga sæti sóknarprestur (sóknarprestar), sóknarnefnd, formenn safnaðarfélaga og kirkjukórs og starfsmenn sóknarinnar, sem ráðnir eru í hálft starf hið minnsta. Starfsmannanefnd fjallar um störf og starfsháttu starfsmanna sóknarinnar, starfsskilyrði þeirra og það, sem til umbóta horfir og samræmingar í þeim efnum. Formaður sóknarnefndar boðar fundi starfsmannanefndar, er haldnir skulu a.m.k. einu sinni á ári, en skylt er að boða til fundar, ef þrír þeirra, sem sæti eiga í nefndinni, æskja þess. Starfsmannanefnd heldur sérstaka gerðabók. Samþykktir hennar eru ekki bindandi, nema safnaðarfundur staðfesti þær.
28. gr. Nú kemur upp ágreiningur varðandi störf starfsmanna innan sóknar og verður eigi leystur þar á vettvangi. Er þá rétt að vísa málinu til prófasts, sem leitar lausnar í samráði við sóknarprest. Ef eigi tekst að leysa málið skal ágreiningnum vísað til biskups til fullnaðarúrlausnar.
VII. kafli.
Um héraðsfundi og héraðsnefndir.
a. Um héraðsfundi.
29. gr. …
1)
1)L. 78/1997, 64. gr.
30. gr. Prófastur boðar héraðsfund skriflega með hálfs mánaðar fyrirvara og skal fundarboð, er greini fundarefni, sent öllum þeim, sem rétt eiga til setu á héraðsfundi, sbr. 31. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
Fundur er ályktunarfær, ef rétt er til hans boðað. Afl atkvæða ræður úrslitum mála á héraðsfundi.
![](/lagas/hk.jpg)
Mál, sem eigi eru greind í fundarboði, verða eigi tekin til umræðu, nema tveir þriðju hlutar atkvæðisbærra fundarmanna samþykki.
31. gr. Atkvæðisrétt á héraðsfundi eiga þjónandi prestar prófastsdæmis og safnaðarfulltrúar. Á héraðsfundi Reykjavíkurprófastsdæmis skulu safnaðarráðsfulltrúar hafa atkvæðisrétt.
![](/lagas/hk.jpg)
Sóknarnefndarmenn og aðrir þeir, sem sæti eiga í starfsmannanefnd sóknar, sbr. 27. gr., eiga rétt á fundarsetu og hafa þar málfrelsi og tillögurétt.
32. gr. Prófastur leggur fram á héraðsfundi endurskoðaða reikninga kirkna í héraðinu fyrir næst liðið reikningsár til umræðu og úrskurðar. Á héraðsfundi skal enn fremur gerð grein fyrir starfsemi og fjárreiðum héraðssjóðs á umliðnu starfsári, ef slíkum sjóði er til að dreifa, og fjárreiðum prófastsdæmis.
33. gr. Prófastur boðar aukahéraðsfund, ef þurfa þykir. Skylt er að boða slíkan fund, ef
1/
4 hluti atkvæðisbærra fundarmanna óskar þess. Um fundarboðun fer samkvæmt 30. gr.
34. gr. Hver sá, sem rétt á til setu á héraðsfundi, getur óskað að bera þar upp tillögur sínar um kirkjuleg málefni, sem heyra undir starfssvið héraðsfunda. Hann skal mælast til þess við héraðsnefnd, að málefni þessi verði rædd þar og greind í fundarboði.
35. gr. Þeir fundarmenn á héraðsfundi, sem verða í minni hluta við einstakar samþykktir fundarins, geta óskað þess, að sérálit þeirra fylgi ályktunum fundarins til biskups, ef um er að ræða málefni, sem til úrskurðar hans eða kirkjumálaráðherra kemur.
b. Um héraðsnefnd.
36. gr. …
1)
1)L. 78/1997, 64. gr.
VIII. kafli.
Stjórnvaldsreglur, gildistaka og brottfallin lög.
37. gr. Kirkjumálaráðherra getur með reglugerð kveðið nánar á um einstök atriði, er varða framkvæmd laga þessara, að fengnum tillögum biskups og kirkjuráðs.
38. gr. Lög þessi taka þegar gildi, og skulu kosningar safnaðarfulltrúa og kosningar í sóknarnefndir og héraðsnefndir prófastsdæma fara fram jafnskjótt og föng eru á, en umboð núverandi sóknarnefndarmanna og safnaðarfulltrúa fellur niður, þegar slík kosning hefur farið fram, sbr. 15. og 22. gr.
![](/lagas/hk.jpg)
…